Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 17
DAC.BLAÐIÐ. MANUDAGUR 8. NOVEMBER 1976.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
uu
u. Á DB-mynd Bjarnleifs
ittaf mörkum sínum í leiknum.
ISLANDSMEISTARAR
KAFSIGLDU GRÓTTU
— Geir Hallsteinsson skoraði 11 mörk í 29-19 sigri FH
íslandsmeistarar FH kafsigldu
Gróttu í 1. deild íslandsmótsins í
handknattleik i íþróttahúsinu í
Hafnarfirði í gær, stórsigur 29-19
sem í raun hefði getað orðið mun
stærri. FH féll ekki í þá gryf ju að
slaka á í byrun eins og í tveimur
fyrstu leikjum sínum í Íslands-
mótinu, sem kostuðu liðið sigur.
Þegar frá upphafi var keyrt á
fullu og stórsigur varð staðreynd.
Já, sannarlega keyrðu íslands-
meistararnir á fullu frá upphafi
og eftir 10 mínútna leik var
staðan orðin 7-1 og þá þegar ljóst
hvert stefndi. Bilið hélt sifellt
áfram að aukast og bókstaflega
allt lak inn í marki Gróttu. Lán-
leysi liðsins var líka algjört —
þannig komst Arni Indriðason tví-
vegis inn í sendingar hjá FH og
stöðvaði
gu Vals!
leik íslandsmótsins hingað til
meiddist og var frá leik drjúgan
tíma. Þetta var við nefið á
Kristjáni Erni. En hvað skeöi?, ja,
hvað skeði? — Ekkert. Ekki
áminning.
Víkingur byrjaði mjög vel í
leiknum. Komst í 2-0, 3-1 með
þremur stórglæsilegum mörkum
Ólafs Einarssonar — en þá fóru
dómarnir heldúr betur að bitna á
þeim. Viggó Sigurðsson rekinn af
velli af Kristjáni Erni — og þegar
Valur hafði jafnað í 3-3 fengu
þeir Þorbergur og Magnús
reisupassann með stuttu millibili.
Auk þess dæmd þrjú vítaköst á
Víking — eitt nýtt .— og Valur
gekk á lagið. Öli Ben varði Vals-.
markið með miklum tilþrifum
og Jón Karlsson komst í harn.
Tölurnar breyttust, Valur komst
yfir 7-4, 8-4, og mest fimm
mörkum yfir, 10-5. Karl Ben.
breytti þá um leikaðferð hjá
Víking — lét taka Jón Karlsson
úr umferð, og þar með hafði
lykillinn að sigri Víkings verið
smíðaður. Víkingur fór að minnka
muninn, 10-8, sem var staðan,
þegar leiktíma í fyrri
hálfleik lauk. Valur átti auka-
annarra leikmanna Aberdeen í
leiknum.
Eins og áður segir var þetta 13.
úrslitaleikur Celtic í röð i
deildabikarnum — sjöundi
ósigurinn, en í fyrra tapaði liðið í
úrslitum fyrir Rangers. Liðin
voru þannig skipuð í leiknum.
Aberdeen: —Clarke, Kennedy,
Williamsson, Smith, Garner, Mill-
er, Sullivan, Scott, Harper,
Graham og Jarvie — og Robb kom
svo í stað Jarvie.
Celtic: — Latchford, MacGrain,
Lynch, MacDonald, Jóhannes Eð-
valdsson, Aitken, Doyle, Galvin,
Dalglish, Wilson og Burns.
Lennox kom í stað Burns.
Ekki verður leikið í úrvals-
deildinni skozku nk. laugardag
vegna HM-leiks Skotlands og
Wales. Celtic mun hins vegar
leika á sunnudag við Ipswich og
verður leikurinn á Parkhead í
Glasgow.
kast. Þorbjörn Guðmundsson
skoraði beijdúr því. 11-8 í hálfleik
í síðari hálfleiknum hélzt
tveggja til þriggja marka munur
Vals fram á sjöundu mín. Þá
skoruðu Víkingar þrjú mörk í röð
og jöfnúðu i 14-14, en Valsmenn
komust í 16-14 með tveimur víta-
köstum Þorbjörns.Tveggja marka
munur hélzt um stund, en svo
fekk Viggó að kæla sig í fimm
mínútur. Víkingar tóku kipp við
það mótlæti. Björgvin, sem skorað
hafði þrjú mörk framan af síðari
hálfeiknum, kom inn á aftur eftir
meiðslin og gerði mikin usla í
vörn Vals. Víkingar skoruðu
næstu fjögur 'mörk. Komust í 20-
18, þegar átta mín. voru til
leiksloka. Eftir það léku þeir
ákaflega yfirvegað — rólega upp
á mark, og þó Valur minnkaði
muninn af og til í eitt mark,
virtist sigur Víkings í höfn og
liðið hafði tvö mörk yfir fram á
lokamínútuna. Valur skoraði
síðasta mark leiksins, en það var
of seint til að bjarga stigi.
Loksins sýndi Víkingsliðið
þann leik, em búizt hafði verið af
því í upphafi mótsins. Karl Bene-
diktsson hefur tengt saman
hæfileikana, sem þar eru— gert
Víking að liðsheild. Björgvin
skoraði nokkur frábær mc^k j
leiknum —sum hreint á undra-
verðan hátt. Ólafur var einnig
ákafléga hættulegur, og af öðrum
leikmönnum Kom Ólafur Jónsson
mest á óvart. Skoraði þrjú góð
mörk. Rósmundur varði prýðilega
allan síðari hálfleikinn.
Leikur Vals riðlaðist mjög,
þegar Jón Karlsson var tekinn úr
umferð. Sóknarleikurinn varð
ákaflega einhæfur, þegar
skipulagshæfileika Jóns naut
ekki við — og öðrum leikmönnum
tókst ekki að nýta þær glufur,
sem mynduðust i Víkings-
vörnina við það. En oft —einkum
um miðjan fyrir hálfleik — náði
Valsliðið skemmtilegum fléttum,
sem gáfu af sér gullfalleg mörk.
En leikur liðsins Niaðnaðí um of.
þegar Jón Karlssonfókk ekki að
leika lausum hala.
Mörk Víkings skoruðu Björgvin
7, Ölafur 7, (eitt víti), Ólafur
Jónsson 3. Þorbergur 3, Viggó 2
og Magnús 1. Mörk Vals skoruðu
Þorbjörn 8 (4 víti), Jón P. Jónss
5, Jón Karlsson 3, Jóhannes
Stefánsson 3. Bjarni Guðmunds-
son 2 og Björn Björnsson 1. -hsim.
brunaði einn upp en Birgir Finn-
bogason gerði sér lítið fyrir og
varði í bæði skiptin.
t leikhléi skildu liðin 9 mörk
— 17-8 og leikmenn FH gátu
nánast leyft sér allt, slík var mót-
staðan Gróttu. Það kom heldur
ekki að sök að Viðar Símonarson
meiddist fljótlega í fyrri hálfleik
og lék ekki meira með liði sínu.
En Geir Hallsteinsson, sá frábæri
leikmaður átti stjörnuleik og
skoraði nánast þegar hann vildi.
Réyndu leikmenn Gróttu að taka
Geir úr umferð en hann hristi þá
iðulega af sér — opnaði skemmti-
lega fyrir samherja sína eða
skoraði sjálfur. Já, Geir Hall-
steinsson er frábær leikmaður og
íslenzkum handknattleik mikið
lán að eiga slíkan leikmann.
FH keyrði ekki á fullu í siðari
hálfleik — en Grótta náði aldrei
að nálgast íslandsmeistarana sem
sigruðu örugglega með 10 marka
mun — 29-19.
Já, Geir var í banastuði og 11
sinnum sendi hann knöttinn í net-
möskva Gróttu en hitt hlýtur að
vera áhyggjuefni fyrir FH að
breidd vantar tilfinnanlega í
liðið. Þórarinn Ragnarsson
skoraði 6 mörk — 4 úr vítaköst-
um, Sæmundur Stefánss. skoraði
4 mörk. Júlíus Pálsson og Janus
Guðlaugsson skoruðu 2 mörk
hvor. Þeir Helgi Ragnarsson —
knattspyrnumaður með FH ásamt
Janusi — Guðmundur Arni
Stefánsson, Viðar Símonarson og
Guðmundur Magnússon skoruðu
eitt mark hver.
Þór Ottesen var sá eini sem
eitthvað kvað að í liði Gróttu en
hann skoraói 7 mörk fyrir lið sitt.
Arni Indriðason og Grétar ViL-
mundarson skoruðu 3 mörk hvor
— Árni sín mörk úr vítaköstum.
Hörður Kristjánsson skoraði • 2
mörk og þeir Magnús Sigurðsson,
Halldór Kristjánsson, Gunnar
Lúðvíksson og Axel Friðriksson
skoruðu 1 mark hver.
Leikinn dæmdu Ólafur Stein-
grímsson og Gunnar Kjartansson.
h halls.
Skinner
áfram með
IBV
Þórður Hallgrímsson var kjör-
inn „Knattspyrnumaður Vest-
mannaeyja“ í hófi, sem haldið var
í Eyjum á iaugardag til að fagna
því, að ÍBV hefur endurheimt
sæti sitt í 1. dcildinni á ný. Það
var bæjarstjórn Vestmannaeyja,
sem stóð fyrir þeim fögnuði.
George Skinner, þjálfara liðsins
sl. leiktímabil, var sérstakiega
boðið til hófsins frá Englandi
ásamt eiginkonu sinni. Þar kom
fram, að Skinner verður áfram
þjálfari ÍBV næsta leiktímabil.
Einn leikur í 3. deild var leik-
inn í Vestmannaeyjum í hand-
boltanum á laugardag. HK, Kópa-
vogi, sigraði Tý með 30-18. RS.
Danir unnu
Englendinga
í badminton
Danir sigruðu Englendinga í
landskeppni í badminton i
Carlisle á Englandi í gær með 5-4.
Danirnir, sem keppa .hér á NM
eftir hálfan mánuð stóðu sig vel.
Svend Pri vann Ray Stevens 15-7
og 15-7 og Flemming Dclfs vann
Dcrek Talobot 15-10 og 15-12. Pri
og Steen Skovgaard unnu Stevens
og Mike Tredget í tvíliðaleik með
15-9, 7-15 og 15-3 og Lena Koppen
vann Gillian Gilks í einliðaleik
kvertna, 3-11, 11-8 og 11-6.
Hringavitleysa
þegar ÍR vann!
— Furðulegur leikur Fram og ÍR í 1. deild
Hringavitleysa. Það hæfir ekki
annað orð betur þeim ósköpum,
sem leikmenn Fram og ÍR sýndu
í 1. deild handknattleiksins i
Laugardalshiill í gærkvöld. Þar
stóð sjaldan steinn yfir steini, en
ÍR-ingar voru betri aðiiinn og
sigruóu öruggiega 23-19. Sá sigur
byggðist þó mest á ágætri mark-
vörzlu Arnar Guðmundssonar,
hins nýja markvarðar ÍR, sem
vakið hefur svo mikla athygli í
haust. Hann var áberandi bezti
maður á vellinum.
IR náði strax forustu í
leiknum, sem liðið hélt'
nær óslitið til loka.
Aðeins einu sinni tókst Fram að
jafna í 9-9, en ÍR-ingar svöruðu
strax með tveimur mörkum.
Unnu auðveldlega sinn þriðja
sigur i mótinu og eru [ öðru sæti
— aðeins stigi á eftir Val.
Fram-liðið var algjörlega heill
um horfið og innbyrðis missætti
bætti þar ekki úr skák, þegar líða
tók á leikinn. Að vísu er rétt að
taka fram, að það var eins og allt
væri á móti Fram í leiknum. Fjöl-
rriörg stangarskot — og opin færi
misnotuð. einkum þegar tR-ingar
voru orðnir sigurvissir og kæru-
lausir undir leikslokin. En hvað
um það. Slakari leik hefur Fram-
liðið ekki sýnt um langt árabil.
Það er heldur ekki mikið til að
hrópa húrra fyrir hjá ÍR-ingum,
þegar markvarzla Arnar Guð-
mundssonar er frátalin —en hjá
Fram var markvarzlan líka skást.
Einkum Guðjóns Erlendssonar.
iR-ingar eiga margar stórskyttur
og fallegust voru mörk Harðar
Hákonársonar utan af velli —
Sigurðar Svavarssonar af línu. Þá
er nýliði í liói IR — ákaflega
athyglisverður varnarmaður,
Sigurður Gíslason.
Mörk IR skoruðu Brynjólfur
Markússon 5, Agúst Svavarsson 5,
Hörður 3, Sigurður Svavarsson 3,
Sigurður Gíslason 2, Bjarni Bessa-
son 2, Bjarni Hákonarson 2 og
Vilhjálmur Sigurgeirsson 1. Mörk
Fram skoruðu Arnar Guðlaugs-
son 4, (2 víti). Sigurbergur Sig-
steinsson 4, Jens Jensson 3, Pálmi
Pálmason 3 (allt víti), Jón Árni
Rúnarssson 2, Arni Sverrisson,
Birgir Jóhannsson og Gústav
Björnsson eitt rnark hver.
Dómarar Björn Kristjánsson og
Oli Olsen.
Jóhannes
fékk
góða dóma
Jóhannes Eðvaldsson fékk
mjög góða dóma fyrir leik sinn í
úrslitum deildabikarsins í skozku
blöðunum. Þrjú þeirra gefa leik-
mönnum einkunnir. 1 Sunday
Mail voru þeir Jóhannes,
MacGrain, MacDonald og
Dalglish allir með fjóra — en
flestir aðrir með tvo. 1 Sunday
People voru þeir Jóhannes og
Roddy MacDonald efstir Celtic-
leikmannanna — hlutu fimm í
einkunn hjá blaðinu. í Sunday
Post var Danny MacGrain efstur
með átta — Jóhannes, MacDonald
og Kenny Dalglis með sjö. Aðrir
leikmenn Celtic með færri stig.
Þegar einkunnir blaðanna eru
lagðar saman er Jóhannes, Mac-
Donald og MacGrain efstir og
jafnir.
3ja stiga
forusta
Dundee Utd.
Dundee Utd. er komið með
þriggja stiga forustu í skozku úr-
valsdeildinni eftir leikina á
laugardag. Þrír Ieikir voru háðir
og úrslit urðu þessi:
Ayr — Partick 2-1
Dundee Utd. — Hibernian 2-1
Motherwell — Kilmarnock 5-4
Staðan er nú þannig:
Dundee Utd. 10 8 0 2 21-13 16
Aberdeen 9 5 3 1 19-9 13
Celtic 9 4 3 2 19-9 11
Partich 9 3 3 3 10-10 9
Rangers 8 2 4 2 11-11 9
Motherwell 10 3 3 4 17-19 9
Hibernian 9 1 6 2 10-11 8
Hearts 9 0 7 2 13-16 7
Ayr 10 2 2 6 12-28 6
Kilmarnock 8 1 3 4 14-20 5
STAÐAN
Urslit leikja í 1. deild hand-
knattleiksins urðu þessi í gær:
Haukar — Þróttur 22-11
FH — Grótta 29-19
Valur — Víkingur 22-23
Fram—ÍR 19-23
Staðan er nú þannig:
Valur 5 4 0 1 113-87 8
ÍR 5 3 1 1 107-106 7
Haukar 4 3 0 1 85-77 6
FH 4 2 0 2 92-82 4
Víkingur 4 2 0 2 89-89 4
Fram 4 1 1 2 85-87 3
Þróttur 5 0 3 2 87-103 3
Grótta 5 0 1 4 97-120 1
Markahæstu leikmenn:
Hörður Sigmarss. Haukum, 38/13
Þorbjörn Guðmundss. Val, 31/6
Jón Karlsson, Val, 30/6
Konráð Jónsson, Þrótti, 28/3
Geir Hallsteinsson, FH, 27/6
Brynj. Markússon, iR, 24
Arnar Guðlaugsson, Fram, 21/3
Jón P. Jónsson, Val, 21
Arni Indriðason, Gróttu, 20/14.