Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. NÖVEMBER 1976:
m krónur
Afram í fangaklefa í 3 daga án
pess að við hann væri rætt. Á
laugardag kom svo játningin og
loforðið um bætur. En dýr var
þessi kvöldskemmtun sjó-
mannsi og næturævintýrið sem
á eftir fylgdi. Peugeot
bíllinn 'er dæmdur ónýtur og
verðmæti hans er milli sjö og
níu hundruð þúsund krónur.
Það tjón lofar sjómaðurinn nú
að bæta — og mun hafa
möguleika til þess.
-*St.
Hér ríkir skálmöld
— segir lögreglan og telur að
áfengi eigi mikinn hlut að máli
„Það ríkir hin mesta
skálmöld hérna hjá okkur, og
ég er anzi hræddur um að
áfengið eigi heilmikinn þátt í
þessu," sagði Gylfi Jónsson
varðstjóri á aðalstöð
lögreglunnar í viðtali við DB í
gærdag.
„Við verðum líklega að taka
saman höndum og læra að
drekka áfengi, bæði ungir og
aldnir," sagði Gylfi.
Um hverja helgi stendur
lögreglan í stappi við drukkið
fólk sem hún þarf að taka í
gæzlu. Borgararnir eiga í
útistöðum hver við annan,
innbrot eru framin og
lögreglan er á þönum allar
nætur vegna drykkjuláta
almennings.
Það er greinilegt að ekki er
vanþörf á að hér verði á
breyting.
Gylfi sagði að um helgina
hefðu þrettán ökumenn verið
teknir grunaðir um ölvun við
akstur. -A.BJ.
Klófestur við veskja- og ávísanastuld
Á þriðja tímanum aðfaranótt
iaugardags var lögreglan kvödd
Hefndi fyrir systur sína
Rétt fyrir klukkan eitt á laugar-
dagskvöldið réðst tuttugu og
tveggja ára maður á tuttugu
og fimm ára gamla stúlku fyrir
utan veitingahúsið Klúbbinn.
Veitti hann stúlkunni áverka.
Þegar lögreglan kom á staðinn
og hugðist taka árásarmanninn í
sína vörzlu kom þar annar ungur
maður aðvífandi. Hafði sá engin
umsvif en rak árásarmanninum
hnefahögg beint í andlitið. Var
þar kominn bróðir stúlkunnar,
sem fyrir árásinni varð og
hugðist hann hefna fyrir systur
sína.
Lögreglan flutti þetta fólk á
slysadeild Borgarspítalans þar
sem læknar fengu aðila málsins
til meðferðar. -A.BJ.
Nefbrotnaði á Lækjartorgi
Maður nokkur, sem staddur var
á Lækjartorgi um miðjan dag á
laugardag hrasaði á torginu með
þeim afleiðingum að hann
nefbrotnaði og skarst i andliti.
Var hann_ fluttur á slysadeild
Borgarspítálans og gert að sárum
hans.
Maðurinn var við skál.
-A. Bj.
Skemmdir á kyrrstæðum bílum
Skemmdir voru unnar á
tveimur fólksbílum aðfaranótt
sunnudags þar sem þeir stóðu
fyrir utan hús í vesturborginni.
Ekki er vitað hverjir þar voru að
verki. -A.Bj.
TILTOLULEGA ROLEGT I
MIÐBORG UM HELGINA
Eitthvað mun aðsókn
unglinganna að hinu svonefnda
Hailærisplani vera farin að dvína
að sögn varðstjóra á miðborgar-
stöðinni. Það var tiltölulega
rólegt þar á laugardagskvöld en
samt þurfti að flytja 4-5 unglinga
í gæzlu vegna ölvunar.
Með kólnandi veðri má búast
við minnkandi aðsókn að þessu
„hallærislega plani“, því ekki
nenna unglinarnir að hanga úti
við undir berum himni í kulda og
trekki.
-A.Bj.
Þrír útaf en allir sluppu ómeiddir
Fyrsta slydduhrið vetrarins
kom á Húsavík í gær og gránaði
þar í fjöll. Þar hafði helgin verið
róleg og allt samkomuhald farið
vel fram að sögn lögreglunnar.
Þrjár útafkeyrslur urðu seint á
föstudagskvöld en farþegar og
ökumenn sluppu svo að segja
ómeiddir. Þessar útafkeyrslur
urðu í Kinn, Aðaldalshrauni og á
Tjörnesi. Orsakir eru taldar vera
náttmyrkur, bleyta og jafnvel
hálka, en ölvun var ekki með í
spiiinu.
Bílarnir eru mikið skemmdir.
-A.Bj.
Annir lögreglu vegna
ölvunar í Kópavogi
Miklar annir voru hjá
lögreglunni í Kópavogi um
helgina vegna ölvunar. Tveir
ökumenn voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur. Samkvæmt
upplýsingum Kópavogslögregl-
unriar eru þar aðeins fjórir
menn á hvern vakt, og undir
verijulegum kringumstæðum
dugar það. En það rná ekkert út af
bera til þess að vandræðaástand
skapist. Sem dæmi um erillinn
aðfaranótt laugardags urðu þrjú
útköll á fimm mínútna fresti.-A.Bj.
Innbrotsþjófar á ferli
um helgina
Brotizl var inn á fimm stöðum,
fyrir utan innbrotið í verzl. Sport-
val á Hlemmtorgi um helgina.
Þessir staðir voru togara-
afgreiðslan á Faxagarði, verzl
Ríma í Austurstræti, en par vai
brotin rúða, verzl. Alafoss.
Vesturgotu 2 og ÞvoUahúsið
Fönn á Langholtsvegi.
Þá var stolið dýrum hljóm-
flutningstækjum úr herbergi I
húsi einu í Þingholtunum.
Mál þessi eru öll í rannsókn hjá
rannsóknarlögreglunni. -A.Bj.
Tjáningarfrelsi
er ein meginforsenda þess
ad frelsi geti viöhaldizt
í samfélagi.
að Glæsibæ þar sem ráðizt hafði
verið á mann fyrir utan
veitingastaðinn. Saknaði
maðurinn peningaveskis sem í
var ávísanahefti.
Skömmu síðar komutveir ungir
piltar með mann á
lögregluvarðstofuna. Piltarnir
höfðu verið í bifreið sem þeir
yfirgáfu aðeins smástund, er þeir
brugðu sér inn í hús, sem var
skammt frá Glæsibæ. Þegar þeir
komu aftur út sáu þeir að
peningaveski, er hafði verið á
mælaborðinu var horfið. Piltarnir
sáu hvar maður laumaðist brott
frá bílnum.
Þeir höfðu engin umsvif, gripu
manninn og færðu hann á
lögregluvarðstofuna.
Þar kom í ljós að maðurinn var
með peningaveskið úr bifreiðinni
og einnig hafði hann í fórum
sínum eitt eða tvö óútfyllt
ávísanaeyðublöð. Er talið
sennilegt að þau séu úr
áðurnefndu ávísanahefti, sem
stolið var af þeim sem ráðizt var á
við veitingastaðinn.
-A.Bj.
Ungir þjófar á ferli
Gripnir með góssið
Tveir ungir piltar voru gripnir
í gærmorgun klukkan rumlega
fimm, þar sem þeir voru með
fangið fullt af sælgæti og
sígarettum sem þeir höfðu stolið
úr sælgætisbúð við Leifsgötu.
Þeir voru báðir fimmtán ára
og af upptökuheimili ríkisins í
Kópavogi. Samkvæmt
upplýsingum lögregluvarðstjóra
er annar þeirra þekktur bllþjófur
og hefur oft komið við sögu hjá
lögreglunni.
-A.Bj.
Fæneyjar
Markaður fyrir þig?
Þegar islendingar leita sér aö markaði erlendis fyrir framleiðsluvörur
sínar, yfirsést þeim gjarnan einn markaður, þrátt fyrir nálaegö hans
og skyldleika- það eru Færeyjar.
Það er ef til vill smæð færeyska markaðarins, sem veldur því að hann
gleymist svo oft, og satt er það stærri markaðir finnast - en
stærðin segir ekki allt, söluárangur ræðst ekki alltaf af stærö mark-
aðarins.
Markaður af viðráðanlegri stærð, er það sem flest íslensk framleiðslu-
fyrirtæki hefur vantað - og það að færeyski markaðurinn skuli ekki
vera stærri er einn af kostum hans- það gerir seljendum auðveldar
með að nálgast hann, með litlum tilkostnaöi.
í Færeyjum býr 43 þúsund manna dugmikil þjóð, lífskjör eru þar góð,
laun há og kaupgeta mikil.
Sögulegur bakgrunnur færeyinga og íslendinga er hinn sami, og margt
er skylt með þjóðunum, tengsl á mörgum sviðum mjög náin og tungu-
málaerfiðleikar ekki teljandi í samskiptum þjóðanna. Þessir þættir
skipta miklu máli þegar á reynir - og oft hefur sannast frændsemi
færeyinga og jákvæð afstaða í okkar garð og þess sem íslenskt er.
Að stunda sölustarfsemi við slíkar aðstæður sem okkar bjóðast í
Færeyjum, er í rauninni einstakt tækifæri - og þegar allt kemur til alls,
þá eru Færeyjar ekki svo lítill markaður, íbúafjöldi Færeyja er sá sami
og íbúafjöldi Akureyrar - Kópavogs - Hafnarfjarðar og Keflavíkur til
samans. Og hvaða íslenskur framleiðandi eða seljandi myndi vilja
vera án viðskipta við íbúa þessara staða.
Nokkur íslensk fyrirtæki hafa náð góðum söluárangri i Færeyjum, og
sýnt þannig aö þeir markaðsmöguleikar sem kunna að bjóðast í
Færeyjum eru sannarlega þess virði að þeir séu athugaðir.
Hvernig væri að kanna málið?
I vetur munum við fljúga tvisvar í viku um Egilsstaði til Færeyja, á
fimmtudögum og sunnudögum. Við höfum náð hagstæðum samningum
viö Hótel Hafnía um gistingu, og getum þannig boðið lægra verö,
þeim sem kaupa saman flugfar og gistingu í 3 nætur.
Fjölgun Færeyjaferða okkar í vetur gera íslendingum kleift að auka
samskiptin við færeyinga á öllum sviðum.
Til þess er leikurinn gerður.
• ________
ÞÓRSHÖFN
• VÍSTMANNAEYJAR
FLycFÉLAG LOFTLEIBIR
/SLAJVDS
VOGAR 5