Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDACUR 8. NÓVEMBER 1976. 9 Erlendar fréttir REUTER Alsír: Fyrstu forseta- kosningar 113 ár Boumedienne einn í kjöri Samkvæmt fréttum í stjórnarblaðinu E1 Moudjahid í Alsír munu fyrstu forsetakosningarnar í þrettán ár fara fram þar í landi í næsta mánuði. Houari Boumedienne, forseti byltingarráðsins og forsætisráðherra, var ígæi tilnefndur af ráðherrum í stjórn landsins, sem eini frambjóðandinn í kosningunum. Þá sagði í fréttum blaðsins að fyrstu almennu kosningarnar . til þjóðþingsins, síðan árið 1964 yrðu - haldnar í janúarmánuði. V-Berlín: Þrettán nasistar handteknir Lögreglan í Vestur Berlín tók í sína vörzlu brjóstmynd af Adolf Hitler og eina vélbyssu er húsrannsókn var gerð í ibúð þar i borginni, þar sem a.m.k. 13 manns höfðu ætlað að stofna skrifstofu nýnasista, að sögn talsmanna lögreglunnar í gær. Við húsrannsóknina, sem framkvæmd var seint á laugardagskvöldið, fundu lögreglumenn mikið af bókmenntum um nasisma, hlaðna skammbyssu, hnífa og sönnunargögn sem bendla hópinn við nasistísk samtök í Bandaríkjunum og í einni annarri borg'í V-Þýzkalandi. Tveir þrettánmenninganna voru sakaðir um að hafa ólöleg vopn í fórum sínum, en hinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Segir lögreglan að rannsókn verði haldið áfram. Þá sagði í frétt frá V-Berlín, að þrettánmenningarnir hafi ætlað að koma á fót skrifstofu Sósialistiska verkantanna- flokksins, (nasista), sem bannaðurer í V-Þýzkalandi. Eftir húsrannsóknina voru gerðar athuganir i tíu öðrum íbúðum í borginni. Þessi mynd var tekin á aðalgötu Plains i Georgiu á kosninganóttina, er nokkur þúsund manna söfnuðust þar saman til að fylgjast með niðurstöðum. Húsið tii vinstri voru aðalstöðvar kosningabaráttu Carters. Carter leggur línurnar — einn ráðherra repúblikani Jimmy Carter, hinn nýkjörni forseti Bandarikjanna, sagði í viðtali í gær að hann mundi skipa repúblikana sem ráðherra í ríkisstjórn sinni og að hann mundi leita eftir góðum ráðum hjá leiðtogum repúblikana, bæði á þingi og í viðskiptaheiminum. „Stefna Repúblikanaflokks ins er enn stjórnmálastefna milljóna Bandaríkjamanna og ég mun því skipa ráðherra úr þeim flokki,“ sagði Carter í viðtalinu. „Þá mun ég leita ráða hjá . leiðtogum flokksins á þingi, úti í viðskiptaheiminum og annars staðar og það er von mfn, að margir þeirra muni styðja mig í endurbótatilraunum mínum.“ Sagði hann að hann vildi ekki fá einhvern „dæmigerðan“ repúblikana í stjórnina en sagði að hlutfallslega ætti a.m.k. einn repúblikani að eiga sæti i ríkisstjórn 12 manna. Þá sagði Carter í viðtalinu að þjóðin mætti ekki búast við flóði nýrra lagasetninga er hann tekur við embætti. ,,Ég held, að bandaríska þjóðin vilji heldur fá vel grundaðar laga- setningar og ákvarðanir, heldur en skæðadrífu af breytingum á fyrstu vikum nýs forseta í emb- ætti.“ Frakkland: „Klóakrottumar” byggðu attt sitt á einni vekiaraklukku Einföld tilraun með vekjaraklukku varð til þess, að „Klóakrotturnar" svonefndu, bankaræningjarnir í Frakk- landi, létu til skarar skríða og rændu fimmtíu milljónum franka nú i sumar, eins og greint hefur verið frá í fréttum. Þeir létu klukkuna í bankahólf sem þeir höfðu tekið á leigu og er ekkert aðvörunarkerfi fór í gang, enda þótt klukkan hringdi fjórum sinnum hátt og mikið voru þeir vissir um að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af slíkum kerfum í bankanum. Herma fréttirfráFrakklandi, þar sem a.m.k. átta menn hafa játað aðild sina að bankaránunum, að hugmyndin að þessu hafi Albert Spaggiari átt, en hann er talinn vera „heilinn“ að baki ránanna. Það sem mennirnir vissu hins vegar ekki var að skömmu áður en þeir frömdu ránið hafði verið komið fyrir slmalinu í bankahvelfingunni þar sem koma átti fyrir hlustunartæki. Hún hafði hins vegar ekki verið tengd. ^ KENWOUD Hl FI-STEREO SAMSTÆÐUR í SÉRFLOKKI MEÐ KENWOOD FÁIÐ ÞÉR BEZTU HLJÓMGÆÐI SEM VÖL ER Á KENWOOD AÐEINS ÞAÐ BESTA Q Síi tii í» í wSk&íik FALKINN Suðurlandsbraut 8 . Reykjavík . Sími 8 46

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.