Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 8. NÖVEMBER 1976,-
Eftir ósigur Fords í forsetakoSningunum verður hann að sætta sig
við það að vaxmynd af honum i vaxmyndasafni Madame Tussaud í
London hefur nú verið tekin niður og nýrri af Jimmy Carter komið
fyrir. Hér er verið að koma myndinni fyrir til sendingar í geymslu
safnsins í Sommerset, þar sem hún verður áfram til sýningar.
Ford leggur
höfuðið í
bleyti
Ford Bandaríkjaforseti hóf í
dag stutt frí á Palm Springs
ströndinni í Kaliforníu þar sem
hann mun dveljast við golfiðk-
anir um leið og hann reynir að
gera sér grein fyrir framtíðinni
eftir að hann verður að flytja
úr Hvíta húsinu 20. janúar nk.
„Tíminn verður notaður til
þess að kanna möguleika,"
sagði Robert Barrett, ráðunaut-
ur forsetans. „Ég á ekki von á
því, að hann taki neinar stór-
ákvarðanir."
Yfirleitt er búizt við að Ford,
sem nú er 63 ára að aldri, muni
flytja til síns forna heimilis í
útjaðri Washingtonborgar og
deila tíma sínum milli golfiðk-
ana og lögfræðistarfa.
Enda þótt hann missi nú for-
setalaun sín, 200.000 dollara
(um 38 milljónir ísl.) er hann
sæmilega vel stæður. Hanri
fær sem svarar um 20 milljón-
um ísl. króna í eftirlaun sem
þingmaður og forseti og
svipaða upphæð til þess að ráða
sér starfsfólk.
Til viðbótar því mun hann fá
ókeypis póstburðargjöld, skrif-
stofuhúsnæði og vernd leyni-
þjónustunnar fyrir lífstíð.
Ford sagði fréttamönnum við
komuna til Palm Springs, að
hann ætlaði sér eingöngu að
eiga náðugar stundir án nokk-
urs utanaðkomandi þrýstings.
Israel:
ÁTTIAÐ GERA
INNRÁS AF HAFI?
Ellefu Arabar, sem grunaðir
eru um að vera skæruliðar,
hafa verið til yfirheyrslu í Tel
Aviv síðan í gær, er ísraelskur
fallbyssubátur kom í veg fyrir
að þeir gætu hrundið í fram-
kvæmd ætlun sinni um árás á
ísrael af hafi.
Einn Arabi var skotinn til
bana í átökum sem urðu
snemma í gærmorgun á hafinu
út af landamærum ísraels og
Líbanons, en þar hafa tsraels-
menn haldið uppi stöðugum
vöktum síðan borgarastyrjöldin
brauzt út þar i landi.
Það er hald manna i Israel að
mennirnir, sem voru um borð n
tveim átta metra löngum fiski-
bátum, muni hafa ætlað að gera
árás á borgina af hafi.
Hópur skæruliða gerði árás á
hótel á ströndinni fyrir utan
átökum með því að 18 menn
lágu í valnum, skæruliðar, ísra-
elskir hermenn og erlendir
ferðamenn.
Þá kom hópur manna á land á
ströndinni íyrir utan borgina
nú í september undir þvi yfir-
skini, að þeir ætluðu að biðja
um hæli sem pólitískir flótta-
menn. Við yfirheyrslur kom þó
í ljós að vélbáti þeirra hafði
verið skotið á flot frá vöruflutn-
ingaskipi og höfðu þeir átt að
gera árás í landi. Þeir höfðu þó
hent vopnum sínum fyrir borö
er öryggisverðir komu auga á
Þá.
Fréttamönnum var boðið að
skoða báta skæruliðanna í gær i
flotastöð skammt frá Haifa. t
öðrum bátanna var mikið safn
skotvopna, sprengiefnis og
aukaeldsneytisbirgða.
tólf arabískir skæruliðar teknir
höndum, — einn felldur
Tel Aviv í fyrra og lauk þeim
Líbanon:
FRIÐARGÆZLULIÐIÐ
HEFUR STÖRF í DAG
Elias Sarkis, forseti
Líbanon, hefur hvatt þjóð sína
til að sýna auknu
friðargæzluliði Arababanda-
lagsins bræðralag og kærleika.
Talið er að þetta aukna lið
hefji störf sín í dag.
Forsetinn sagði ekkert um
það í ræðu, er hann flutti til
þjóðarinnar í gærkvöld,
hvenær þetta aukna lið væri
væntanlegt til landsins en
sýrlenskar hersveitir — sem
álitið er að eigi að skipa liðið að
tveimur þriðju — sáust safnast
saman í fjöllunum austur af
Beirút í gærkvöld.
Þetta var fyrsta ræðan, sm
Sarkis flutti í útvarpi til
þjóðarinnar eftir að ha .1 tók
við völdum í september. Hann
hvatti hin stríðandi öfl í
landinu til að Ieggja niður vopn
sín og bætti við: „Við höfum
fengið nóg af blóðsúthellingum
og eyðileggingu....ég bið ykkur
að taka þeim (friðargæzlumönn
unum) með bræðalagsanda og
kærleika...1'
Friðargæzlusveitir Araba-
bandalagsins eru megininntak
áætlunar um að gera vopnahlé,
sem nú hefur staðið í nítján
daga, að varanlegum friði. Þær
áttu að hefja störf fyrir viku
síðan, samkvæmt þeirri áætlun
er arabískir þjóðhöfðingjar
gerðu í Kairó í síðasta mánuði.
Mózambík:
Landsvæði endurheimt
frá Ródesíumönnum
Her Mózambík hefur aftur
náð á sitt vald þeim þremur
héruðum sem ródesískar her-
sveitir tóku með hervaldi í
síðustu viku er þær gerðu
innrás í landið, að sögn hinnar
opinberu fréttastofu Mózam-
bík.
í Tete-héraði í norðurhluta
landsins tókst mózambískum
hersveitum að snúa vörn í sókn,
að sögn fréttastofunnar. Sagði
einnig að átta hermenn frá
Mózambik — tveir þeirra konur
— hefðu fallið.
Hin tvö héruðin í suðurhluta
landsins, Manica og Gaza, eru
undir öruggri stjórn hers
Mózambík, að sögn fréttastof-
unnar.
Stálu 13
tonnum af
súkkulaði
Öféfengjanlegar sannanir eru
nú fengnar fyrir því, að íbúar
borgarinnar Rheims í Frakklandi
eru miklir sælkerar, — að
minnsta kosti þegar súkulaði er
annars vegar.
Bílstjóri, sem var að flytja
svissneskt súkkulaði, varð fyrir
því óhappi nú um helgina að velta
vörubíl sínum skammt frá
Rheins. Á meðan hann fór i
næsta síma til að tilkynna um
óhapplð notuðu nokkrir borgkr-
búar tækifærið og nældu sér í
súkkulaðibita.
Þegar farið var að vega farminn
eftir að súkkulaðið var komið á
áfangastað, kom í ljós, að þrettán
tonnum af súkkulaðinu hafði
verið stolið.
íran/Filippseyjar:
Tveir snarpir
jarðskjálftar
— tólf manns létu lífið
og tugir slösuðust
Mikill jarðskjálfti varð í
norðausturhluta írans í gær,
nánar tiltekið í héraðinu
Khorasan. 12 manns létu lífið
og um 20 særðust, samkvæmt
fréttum Pars-fréttastofunnar.
Jarðskjálftinn, sem mældist
fimm stig á Richter-kvarða,
lagói öll hús í 150 manna þorpi
til grunna.
Þá varð jarðskjálfti á austur-
hluta Mindanao á Filippseyjum
og óttast menn nú að mann-
skæð flóðbylgja, eins og sú er
þúsundir manna fórust í fyrr á
þessu ári, kunni að fylgja í kjöl-
farið. Ekki er vitað hverjar af-
leiðingar skjálftinn hafði, en
hann mældist 6,8 á Richter-
kvarða.
Fremur dauflegt yfirbragð var á hátiðarhöldum vegna 59 ára afmælis b.vltingarinnar í Moskvu í gær.
Myndir. af leiðtogunum 15, sem skipa æðsta ráð Kommúnistaflokksins prýddu götur, en síðan var um
tveggja tíma samkoma á Rauða torginu. Sjálf hersýningin, sem oft hefur þótt tilkomumikil og átt að
vekja ugg með mönnum um allan heim, stóð aðeins í um stundarf jórðung, en þá tók við skrúðganga
valtlra hersveita úr Rauða hernum og verkamanna.