Dagblaðið - 08.11.1976, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 8. NOVKMBER 1976.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Léttur sigur
Njarðvíkinga
UMFN—Breiöablik,94—44
(50—23).
Fyrsla og eina minútan, sem
Stefán Bjarkason, var með í leik
UMFN gegn Breiðabliki, í
Njarðvík á laugardaginn, nægði
honum til að skora fyrstu körfuna
i I. deildinni leiktimabilið 1976-
77 og reyndar aðra líka, en þá
tognaði hann illilega um ökklann
og verður sennilega frá keppni
um sinn. Skömmu fyrir leikslok
fór eins fyrir Jónasi Jóhannes-
syni, hinum hávaxna
Njarðvíkingi, svo að allar horfur
eru á, að UMFN verði án sinna
tveggja sterkustu leikmanna, að
minnsta kosti í næsta ieik.
„Komið ekki með fleiri, við eig-
um ekki fleiri hækjur,“ var sagt á
sjúkrahúsinu í Keflavík þegar
Jónasi var ekið þangað.
Að framansögðu mætti ætla að
um mikinn hitaleik hefði verið að
ræða en því fer fjarri, til þess
voru yfirburðir Njarðvíkinga
gegn nýliðunum úr Kópavogi'allt
of miklir. Heimamenn náðu strax
öruggu forskoti þótt svo að Marco-
vitch, tefldi í byrjun fram þeim
leikmönnum sem einna lengst
hafa vermt bekkinn i undanförn-
um leikjum, en hvíldi skærari
stjörnurnar. _
En þrátt fyrir það höfðu
Njarðvíkingar náð rúmlega
helmings forskoti í leikhléi, 50
stigum, gegn 23 og mismunurinn
varð nákvæmlega fimmtíu stig,
þegar leiknum lauk, 94—44.
Ötulastur var Gunnar Þorvarðs-
son, skoraði 22 stig, en næstur
honum kom Þorsteinn Bjarnason
með 20 stig. Athyglisverður
árangur hjá honum þar sem hann
var fremur skamman tíma inn á.
Geir Þorsteinsson náði sér vel á
strik í þessum leik, skoraði 13 stig
og gómaði mörg fráköst, en Jónas
Jóhannesson skoraði 12 stig.
Njarðvlkingarnir náðu oft
skemmtilegum leikköflum, en
mishittnir að vanda.
Breiðablikspiltarnir höfðu lítið
að gera í klærnar á UMFN og
róðurinn verið þungur hjá þeim í
deildinni, enda er körfuknatt-
leikurinn ung íþrótt í þeirra
félagi. Einn piltur bar nokkuð af,
Ágúst Haraldsson, keflvískur
námsmaður í Reykjavík, sem
skoraði yfir helming stiga UBK.
Geysilega hittin langskytta með
góða knattmeðferð. Af öðrum
leikmönnum má nefna Guttorm
Olafsson, gamalreyndan jaxl, sem
oft sýndi góð tilþrif. -emm.
Borussia
heldur
strikinu
Urslit í þýzku knattspyrnunni á
laugardag urðu þessi:
Hamborg—Saarbrucken 0-0
Kaiserslautern—Ba.vern 1-1
Essen—Bremen 0-0
Brunswich—Hertha 2-2
Frankfurt—Dortmund 1-4
Schalke—Karlsruhe, 2-2
Dusseidorf—Bochum 1-0
Tennis, Berlin,—Duisburg 1-5
Köln—Borussia, Mön. 0-3
Urslit í hollenzku 1. deildinni í
knattspyrnu í gær urðu þessi:
Twente—Eindhoven 4-0
Venlo—Utrecht 1-5
Nac Breda—Teístar 3-1
Ajax—Go Ahead 4-0
Sparta—Fejenoord 1-3
Ilaag—Amsterdam 3-0
PSV Eindhoven—Roda 2-1
Haaricm—Nec 1-1
AZ ’67—Graafsehap 4-1
Eftir 13. umferðir er Fejenoord
efst með 23 stig. Ajax hefur 21
stig, Roda 18, AZ, Haarlem og
Utrecht 16slig.
ARMANNIEFSTA
SÆTI í 2. DEILD
sigraði KA 24-22 og KR tapaii óvænt
21-27 fyrir Þór
Ármann hefur nú náð tveggja
stiga forustu í 2 deild íslands-
mótsins í handknatlleik. A
laugardag lék Ármann við KA —
það Iið, sem ásamt KR mun
væntanlega veita Ármanni mesta
keppni um sætið í 1. deild næsta
keppnistímabil.
Hið unga lið Ármanns sigraði
KA — og á undan tapaði KR fyrir
Þór — mjög óvænt í Laugardals-
höllinni. Ármann hafði ávallt
undirtökin í leik sínum gegn KA
— staðan í leikhléi var 21-8
Ármanni í vil. KA tókst að
minnka muninn í síðari hálfleik
— minnst í 1 mark. Þannig var
staðan 17-16 og síðan 21-20 þegar
aðeins tvær mínútur voru eftir.
En Ármann reyndist sterkari á
endasprettinum og sigraði 24-22.
KR og Þór höfðu leikið á
undan og mjög á óvart tapaði KR
fyrir Þór — sem aðeins hafði
hlotið eitt stig f.vrir leik sinn gegn
KR. Engu líkara virtist en
leikmenn KR héldu leikinn
unninn fyrirfram, leikmenn voru
kærulausir og vörn liðsins var
nánast eins og gatasigti.
Þór komst snemma í 6-2 —
síðan var 15-10 í leikhléi.
KR tókst engan veginn að
minnka muninn í síðari hálfleik
og Þór sigraði örugglega 27-21,
óvæntur sigur en að sama skapi
ánægjulegur fyrir Þór. Liðið
virðist nú að vera að ná sér á
strik. Þeir Þorbjörn Jensson og
Sigtryggur Guðlaugsson voru
mjög sterkir — og eins komst
Elías Jónsson vel frá leiknum. KR
lék hins vegar illa — leikmenn
voru ósamstilltir og því upp-
;keran i samræmi við það.
Loks léku á laugardag Fylkir og
Keflavík. Fylkir átti ekki í vand-
ræðum með slakt lið ÍBK og
sigraði örugglega 28-15.
Staðan í 2. deild er nú:
Ármann 4 3 1 0 92-73 7
KA 4 2 1 1 99-80 5
KR 4 2 1 1 96-81 5
Stjarnan 4 2 1 1 77-65 5
Fylkir 4 2 0 2 75-78 4
Þór 3 1 1 1 66-64 3
Leiknir 5 1 1 3 101-119 3
Keflavík 4 0 0 4 70-105 0
UNI0N SIGRAÐI,
STEFÁN SKORAÐI
— Þetta var auðveldur sigur
gegn La Louviere og ég er ánægð-
ur með hlut okkar Stefáns Hail-
dórssonar í leiknum. Lékum
báðir allan leikinn og Royale
Union sigraði með 4-0, sagði Mar-
tcinn Geirsson, þegar blaðið hafði
samband við hann í gær. Union er
nú í efsta sæti í 2. deildinni í
Belgíú. Hefur 13 stig úr níu
leikjum. Ekki var leikið í 1. deild-
inni vegna HM-leiks Beigíu og
Norður-írlands næstkomandi
miðvikudag. — Við erum búnir
að kaupa okkur miða á landsleik-
inn og allir ísienzku leikmenn-
irnir í Belgíu munu sjá ieikinn.
Líta á þessi mótherjalið okkar í
heimsmeistarakcppninni, sagði
Marteinn ennfremur.
— Eg er ákaflega ánægður með
leik Union gegn La Louviere, sem
lék í 1. deild sl. keppnistímabil,
en var dæmt niöur í 2. deild vegna
mútumálsins, sem kom upp í lok
keppnistímabilsins sl. vor, sagði
Marteinn ennfremur.
Stefán Halldórsson ,,lagði upp“
fyrsta markið fyrir Stanley, sem
skoraði. Sjálfur skoraði Stefán
annað mark Union í leiknum.
Stanley það þriðja og fjórða og
síðasta markið skoraði Denuel.
Sá háttur er á keppninni í 2.
deild, sagði Marteinn ennfremur,
að það lið, sem er efst eftir 10
leiki, fær rétt til að leika til
úrslita um sæti í 1. deild næsta
keppnistímabil þö það verði ekki
efst i lok keppninnar. Liðið, sem
er efst eftir allar 30 umferðirnar,
fer beint upp í 1. deild — en liðin,
sem eru efst eftir 10 umferðir og
20 umferðirleika til úrslita um
lausa sætið í 1. deild ef annað
hvorl þeirra er ekki í efsta sætinu
í lok keppninnar. Ef svo reynist
fá liðin, sem eru í öðru sæti eftir
10 eða 20 umferðir, rétt á úrslita-
leiknum.
Union er nú í efsta sæti í 2.
deild með 13 stig. Malines hefur
einnig 13 stig. en lakari niarka-
tölu og hefur auk þess sigrað í
færri leikjum. Um næstu helgi
leikur Union við neðsta liðið í 2.
deild, Eupen, á útivelli og með
sigri í þeim leik tryggir Union sér
að minnsta kosti rétt í úrslita-
keppni um 1. deildarsæti næsta
keppnistímabil.
Celtic sótti
— Celtic-liðið skapaði sér svo
mörg tækifæri að það hcfði átt að
nægja til að sigra í tólf úrslita-
leikjum — en þó vannst ekki
sigur hjá Celtic í 13. úislita-
leiknum hjá félaginu í röð í
deildabikarnum, skrifaði eitt
skozku blaðanna í gær uni ieik
Aberdeen og Celtic á Hampden
Prk á laugardag. Það ótrúlega
skeði eftir gangi leiksins, að
Aberdeen sigraði með 2-1 eftir
framlengingu — og enn einu
sinni sannaðist, að allt gctur skeð
í knattspyrnu.
Fyrri hálfleikur var ekki
ójafn — en í þeim síðari var
aðeins eitt liö á vellinum, Ceitic.
Sóknarbylgjurnar gengu látlaust
á mark Aberdeen og furðulegt, að
einherjum leikmanni Celtic
sk.vldi ekki takasl að skora. í
leiknum fékk Celtic 28
hornspyrnur á möti fjórum hjá
Aberdeen og segir það meira en
flest annað um gang leiksins.
Síðari hálfleiknum og fram-
lengingunni var lýst beint hiá
BBC — og kom þar greinilega
fram, að Jóhannes Eðvaldsson var
ákaflega virkur í leik Celtic. Nafn
hans var mjög oft nefnt í
lýsingunni — mun oftar en
annarra varnarmanna Celtic, og
aldrei var minnst á mistök hjá
honum hvað ekki hægt er að segja
um flesta aðra leikmenn Celtic-
liðsins.
Það er óheppni Celtic, að Paul
Wilson hefur fengið flest
tækifæri Celtic. Honuin er alveg
fyrirmunað að skora, sagði þulur
BBC. Eitt sinn skallaði Jóhannes
—eftir hornspyrnu—knöttinn til
hans, þar sem Wilson stóð frír á
marklínu. Samt tókst honum ekki
að skora. Spyrnti knettinum i
stöng og út. En Paul Wilson var
ekki eini syndaselurinn í fram-
línu Celtic John Doyle fékk
Sæmundur Stefánsson er stöðugt vaxandi leikmaður i FH-Iiðin
hefur hann heldur betur sloppið í gegnum vörn Gróttu og skorar ei
Víkingur
sigurgoi\
— Sigraði með 23-22 í bezta
Björgvin Björgvinsson, lands-
lið^kappinn kunni og fyrirliði
Víkings, sýndi alla sína snilldar-
takta á fjölum Laugardals-
hallarinnar í gær — vel studdur
af Ólafi Einarssyni og öðrum ieik-
mönnum Víkings. Það var meir
en Valur réð við og í lokin stóð
Víkingur uppi sem sigurvegari í
leik liðanna í 1. d. 23-22. Fyrsti
tapleikur Vals í mótinu var
staðreynd. Sigur Víkings var
verðskuldaður — liðið var betra
en Vals í ieiknum og mikil er sú
breyting, sem orðið hefur á
Víkingsliðinu síðan Kari Bene-
diktsson tók þar við stjórnar-
taumunum á ný og Rósmundur
Jónsson fór aftur í markið.
Víkingur er orðið lið — lið með
ákaflega sterkum einstaklingum.
Leikur Vals og Víkings er hinn
bezti, sem sézt hefur á íslands-
mótinu í handknattleiknum—éld-
fjörugur og tvísýnn, leikur.sem
hlýtur að laða fleiri áhorfendur á
leiki mótsins en verið hefur
hingað til.
Að Valur tToaði með aðeins
1 marks mun á sér eina skýringu.
Dómgæzla Kristjáns Arnars og að
vissu marki Kjartans Steinbach
einnig var Valsmönnum svo hag-
stæð, að ólíklegt er, að þeir verði
annars eins aðnjótandi oftar í
mótinu. Þar var allt á einn veg.
Fjórum leikmönnum Víkings var
vikið af leikvelli í 16 mínútur.
Einum Valsmanni. Tvær
mínútur. Valur fékk sex vítaköst
— Víkingur tvö.
Broslegast var, þegar Hilmar
Björnsson, þjálfari Vals, stökk
upp úr sæti sínu og að
hliðarlínunni. Hrópaði til
Kristjáns Arnar. ,,Hvað á þetta að
ganga lengi?“Það va r eins og við
manninn mælt. Nokkrum
sekúndum síðar rak Kristján Örn
Þorberg Aðalsteinsson, Víking, af
leikvelli — og hann var vart
kominn inn á aftur, þegar
Kristján Örn rak Magnús
Guðmundsson, Víking, af velli.
Brot þeirra voru þó aðeins barna-
leikur miðað við ýmislegt síðar í
leiknum t.d. þegar Valsmaður
braut mjög illa á Björgvini Björg-
vinssyni — beinlínis kastaði
honum niður í vitateiginn með
þeim afleiðingum, að Björgvin
Aberdeen
upplögð tækifæri. Var til dæmis
eitt sinn frir fyrir opnu marki
Aberdeen — markvörðurinn ekki
einu sinni í markinu, en tókst að
spyrna framhjá. Slíkt var sorgar-
saga Celtic i leiknum.
Celtic var á undan til að skora í
leiknum. Á 12. mín. var dæmd
vítaspyrna á Aberdeen og Kenny
Dalglish skoraði örugglega úr
henni. Á 25 mín. tókst Jarvie að
jafna fyrir Aberdeen. Staðan í
hálfleik 1-1 og einnig eftir
venjulegan leiklima, þrátt fyrir
allapre’ssuCeltic í síðari hálfleikn-
ium.
Þá var framlengt í 2x15
mínútur. Strax á 2. mín. tókst
Robb, sem komið hafði inn sem
varamaður fyrir Jarvie í síðari
hálfl.eik, að skora fyrir Aberdeen.
Það reyndist sigurmark leiksins
—en Peter Latchford fell á biaut-
um vellinum, þegar hann reyndi
að verja frá Robb. Miklar deilur
urðu í sambandi við markið — og
töldu margir að Robb hefði verið
rangstæður. Hann var það um
tíma áður, þegar McGrain átti í
höggi við Sullivan úti á kanti. Féll
og Sullivan gaf fyrir, Knötturinn
fór til Robb af Celtic-leikmanni.
Eftir markið var sókn Celtic nær
látlaus, en liðinu tókst ekki að
skora. Aberdeen stóð því uppi
sem sigurvegari.
„Þetta var ekki sanngjarn sigur
— Hamingjudísin var vissulga
með Abérdeen í leiknum“, sagði
þulur BBC. Áhorfendur voru
69.676 á Hampden Park í ausandi
rigningu. Joe Harper,
hættulegasti sóknarmaður
Aberdeen, sást varla í leiknum,
og sama var að segja um hinn
miðherja Aberdeen, Scott. Þeir
Jóhannes og Roddy MacDonald
kváðu þessa leikmenn alveg í
kútinn — en þulur BBC sagði, að
Harper hefði notið lítils stuðnings