Dagblaðið - 12.04.1977, Síða 4

Dagblaðið - 12.04.1977, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1977. 4 Þeir rölluöu blautviðri i roki og Nrtján keppenduraf 23komuímark pDB-myndir:-| Sveinn Þormóðsson Jóhannes Reykdal Blaðaljósmyndarar verða oft að leggja mikið á sig við að ná sem beztum myndum. Sveinn Þor- móðsson var sér þess vel með- vitandi, þegar hann skaut á þessa Cortinu um leið og hún renndi í drullupoll. Auðvitað fékk Sveinn síðan gusuna yfir sig, en myndin var ekki síðri fyrir það. inn í keppninni. Þar brotnaði dempari og var ökumaðurinn, Finnbogi Ásgeirsson, þar með úr leik. Hinn bíllinn, sem bilaði, var Simca 1100 TI. Sá bíll var einnig með í Rallýkeppninni í fyrra, en varð þá að hætta, þar eð dekk sprungu tvisvar og öku- maðurinn hafði ekki nógu mörg varadekk. Að þessu sinni hafði ökumaðurinn, Þorkell Guðna- son, vaðið fyrir neðan sig og enda þótt tvíspryngi að þessu sinni eins og í fyrra, gat hann ekið áfram. Á Isólfsskálavegin- um varð hann hins vegar að hætta keppni, þar eð hann missti allt vatn af bílnum eftir að hafa ekið nokkruð áður upp í drulluhvarf á veginum. Eftir að ísólfsskálaveginum sleppti áttu ökumenn auðvelt með að halda bílum sínum á veginum. Ekið var fram hjá Kleifarvatni og sem leið lá upp á Keflavíkurveg. Þaðan var farið yfir Kaldárdalsveg, Flóttamannaleiðina og kráku- stígar þræddir alla leið fram hjá Hafravatni og upp að Úlfarsfeili. Þaðan var síðan ekið í átt til Reykjavíkur og loks upp úr fjögur um daginn tóku bílar keppenda að tínast einn af öðrum að Loftleiða- hótelinu. Alls voru það nítján bílar, sem komust á leiðarenda. Ómar Ragnarsson frétta- maður sjónvarpsins og Jón bróðir hans sigruðu í Páska- rallýi Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, sem haldið var á laugardaginn. Jafnir sigurveg- urunum að stigum urðu þeir Vilmar Þór Kristinsson og leið- sögumaður hans, Sigurður I. Ólafsson, — hlutu sex minusa hvorir. Dómurum keppninnar þótti þó Ómar og Jón standa sig betur, því að þeir komu inn á allar tímastöðvar keppninnar á nákvæmlega réttum tíma, en hlutu minusana sex fyrir of hraðan akstur á einum vegar- kafla þar sem lögreglan lá í leyni með radar. I þriðja sæti í keppninni urðu hjónin Jón R. Sigmunds- son og Dröfn Björnsdóttir. Jón hafði hlotið viðurnefnið Jón fjórði meðal félaga sinna, þar eð hann þótti eiga öðrum mönn- um auðveldara með að hafna í fjórða sæti í rallýakstri. Sæti Jóns hlaut að þessu sinni Hall- dór .Jónsson ásamt leiðsögu- manni sínum, Ulfari Hauks- syni. Halldór sigraði í fyrstu rallýkeppninni, sem haldin var hér á landi árið 1975. Rallýið haldið með velþóknun lögreglunnar Páskarallýið hófst stundvís lega klukkan tíu á laugardags- morguninn við Hóteí Loftleiðir. Alls höfðu 24 ökumenn látið skrá sig til keppninnar, en einn þeirra mætti ekki. Það voru því 23 bíiar, sem voru ræstir af stað að þessu sinni. Sem vott um velvild lögreglu- yfirvalda gagnvart rallýkeppn- inni hafði Sigurjón Sigurðsson lögreglustóri í Reykjavík fallizt á að ræsa fyrsta keppandann. — Þeir lögðu síðan af stað hver á eftir öðrum með mínútu milli- bili og stefndu í vesturátt. Veðrið var einstaklega heppi- legt til rallýkeppni. Um morg- uninn, þegar beðið var eftir því að keppnin hæfist, skein sólin glatt. Um það leyti, sem lög- reglustjóri afhenti fyrsta keppandanum tímakort sitt, gerði heljarmikla haglskúr og það sem eftir var dagsins skiptist á sólskin, rigning, snjó- koma og hagiél. Fyrstu bílar taka að bila Eftir um þriggja klukku- stunda akstur komu keppendur að Fitjanesti, — á gatnamótum Keflavíkurvegar og Hafnaveg- ar. Þar var áð í tuttugu mínút- ur, bensin sett á bilana og Tvær Trabantbifreiðar tóku þátt í Páskarallýinu. Þær luku báðar keppni. fyrir Reykjanesið og til Grinda- víkur. Á þeirri leið þurftu öku- menn að gæta sérstakrar var- úðar, því að vegurinn var ákaf- lega mjór og hlykkjóttur. I öryggisskyni var þessari leið lokað fyrir almennri umferð, enda er varla viðlit fyrir bíla að mætast þar. Þeir keppendur, sem hvað mest höfðu æft sig undir rallýið, nutu nú góðs af að þekkja leiðina fyrirfram, því að hún var ákaflega vandfarin nema að hægt væri ekið. Þar lenti einn bíll út af veginum, en komst af stað aftur og lauk keppni öllum að óvörum. „Alversta forarvíti, sem hugsazt getur“ Ekki tók betra við, er komið var út fyrir Grindavík og á Isólfsskálaveg. Vegurinn þar var, eins og einn keppandinn komst að orði: „það alversta forarvíti, sem hugsazt gat.“ Þar festust nokkrir bilar, en gátu fengið sig dregna upp gegn því að fá 30 refsímínusa. Þó nokkrir þáðu að láta draga sig, — aðrir létu sig hafa það að vaða út og ýta. Á ísólfsskálaveginum urðu tveir bílar að hætta keppni. Annar þeirra var af Ford Capri gerð og jafnframt stærsti bíll- dyttað að því, sem betur mátti fara. Þar kom í ljós, að tveir bílar höfðu helzt úr lestinni. Annar var Volvo „kryppa“ 544. Hann fór verst af öllum bílun- um i keppninni, því að þar brotnaði spyrna og bíllinn skðf upp götuna, er hann féll niður. Hinn bíllinn var af gerðinni Sunbeam Alpine. Á honum kom gat á vatnskassann og auk þess festist bensíngjöfin í gólfi og sitthvað fleira smávegis kom fyrir. Báðir þessir bílar biluðu á veginum skam'mt frá Her- dísarvík. Þar var vegurinn ákaflega harður og stórgrýttur, — sennilega hvað verstur fyrir bilana á allri leiðinni. Erfiðustu kaflarnir Frá Fitjanesti var stefnt á Hafnir. Þaðan var siðan ekið Lögreglustjórinn í Reykjavik, Sigurjón Sigurðsson, ræsir fyrsta bílinn. V

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.