Dagblaðið - 12.04.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐ.JUDAGUR 12. APRlL 1977.
i
Erlendar
fréttir
ASGEiR
TÖMASSON
REUTER
t — —- *
Róstusamtí
suðurhluta
Eþíópíu:
Rændu
lækni og
flugmanni
Uppreisnarmenn i
Eþíópíu hafa látið kanadisk-
an þyrluflugmann og eþíóp-
iskan lækni lausa eftir að
hafa haldið þeim í gíslingu,
samkvæmt tilkynningu
kanadíska utanríkisráðu-
neytisins í Ottawa.
Mönnunum var rænt sl.
fimmtudag og voru þeir báð-
ir ómeiddir, er þeir voru
látnir lausir. Segir í tilkynn-
ingu utanríkisráðuneytisins,
að flugmaðurinn, William
Waugh , 43 ára, hafi aðeins
týnt seðlaveskinu sínu.
Ekki var gefið til kynna,
hverjir hér hefðu verið að
verki, en róstusamt hefur
verið í suðurhluta landsins
að ' undanförnu, þar sem
mennirnir tveir voru í
læknisleiðangri vegna bólu-
sóttar, sem þar hefur komið
upp.
Ekki var heldur sagt,
hvernig þeir hefðu verið
teknir til fanga, né hvers
vegna þeir voru látnir laus-
ir.
—
París:
Dönskstúlka
segirfransk-
anlögreglu-
mannhafa
nauðgaðsér
Parísarlögreglunni hefur
verið falið að rannsaka full-
yrðingar átján ára gamallar
danskrar stúlku, að franskur
lögreglumaður hafi nauðgað
henni. Að sögn talsmanns
danska sendiráósins í París
tilkynnti stúlkan nauðgun-
ina í aðalstöðvum lögregl-
unnar á laugardag.
Þar fullyrti hún að lög-
regluþjónar hefðu handtek-
iö hana á járnbrautarstöð á
föstudaginn. Hún hefði ver-
ið flutt á lögreglustöð, þar
sem einhver yfirmaður
hefði nauðgað henni á með-
an einn undirmanna hans
horfði á. — Ófagurt ef satt
er.
Stúlkan, sem heitir Bitten
Mortinsen, var að sögn
sendiráðsins flult til Dan-
merkur í gær.
Eru Frakkar að steypa sér
út ínýtt nýlendustríð?
—Franskir kommúnistar fullyrða að svo sé
Viðbrögð I Frakklandi voru á
þá lund, að Frakkar væru að
blanda sér í innanrikismál
Zaire og franskir kommúnistar
töku meira að segja svo djúpt 1.
árihni að telja þetta vera upp-
hafið að nýju nýlendustríði.
Valery Giscard d’Estaing
Frakklandsforseti kemur
væntanlega fram í sjónvarpi í
dag, þar sem hann útskýrir
hvers vegna franskar flugvélar
standa nú í stöðugum vopna- og
hermannaflutningum frá
Marokkó til Zaire. Mikil ólga er
meðal vinstri manna, bæði i og
utan Frakklands, vegna þessa
máls.
Bandaríkjamenn hafa óbeint
lýst sig fylgjandi þeim að-
gerðum franska forsetans að
lána ellefu herflugvélar til her-
gagnaflutninganna. Tekið var
skýrt fram að Bandaríkin ættu
á engan hátt neinn hlut að máli,
þrátt fyrir stuðninginn.
franskra her-tæknifræðinga
komnir til Zaire, „en taka á
engan hátt þátt i hernaðarað-
gerðunum," eins og komizt
var að orði. Þeir eiga fullan
rétt á að vera í Zaire, þvi að árið'
1974 var gerður samningur
milli landanna um, að franskir
sérfræðingar skyldu sjá um
þjálfun hermanna, sem ættu að
nota frönsk vopn, hvort sem
væri á láði eða i lofti.
Leiðtogi kommúnista á
franska þinginu hefur boðað til
skyndifundar í dag til að ræða
þessar aðgerðir forsetans.
Mobutu Sese Seko forseti
Zaire fullyrðir, að uppreisnar-
menn í landinu séur studdir af
Angóla, Kúbu og Sovétinönnum
í nágrannaríkinu Angola. Bar-
dagarnir fara fram í Shaba-
héraði, sem eitt sinn nefndist
Katanga.
Að sögn franska utanríkis-
ráðuneytisins eru nokkrir tugir
Giscard d’Estaing forseti gerir grein fyrir ákvörðun sinni að senda flugvélar til Zaire i sjónvarpi f dag.
Morðingja fyrrverandi forsætisráð-
*
herra Yemen leitað um allt Bretland
—sjónarvottum tókstað takamyndafmorðingjanum
Brezka lögreglan leitar nú
sem ákafast morðingja Al-
Hajari fyrrumforsætisráðherra
Yemen, konu hans og yemensks
stjórnarerindreka, sem einnig
létust. Þau voru skotin fyrir
framan hótel sitt i London á
páskadag. Engin ástæða hefur
verið gefin upp fyrir
morðunum.
Morðið átti sér stað um
hábjartan dag. Tveir sjónar-
vottar gáfu sig þegar i stað
fram við lögregluna — og það
sem meira var: þeir höfðu
einnig tekið mynd af at-
burðinum. Henni var dreift í
morgun um allt Bretland.
Vitnin eru nú bæði í strangri
gæzlu lögreglunnar af ótta við
að reynt verði að þagga niður í
þeim.
Llk forsætisráðherrans fyrr-
verandi og hinna tveggja voru í
gær flutt til Yemen. Hajari var
forsætisráðherra landsins á
árunum 1972-74. Hann lét
handtaka þúsundir manna og
taka af lífi fyrir meinta neðjan-
jarðarstarfsemi.
Aldrei
meira
iírval af
loftljósum
Landsins
mesta
lampaúrval
Póstsendum
UOS & ORKA
ISuðurlcinclsbraut 12 simi 84488]