Dagblaðið - 06.06.1977, Qupperneq 14
PAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. JONt 1977.
íþróftir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
ELIAS HJO NÆRRIMETISTEFANS
— Hlaut 7440 stig ítugþrautarkeppni Reykjarvíkurmótsins. íslandsmet Ingunnar
Elias Sveinsson, KR, hjó
nærri íslandsmeti Stefán Hall-
grímssonar, KR, í tugþraut
Reykjavíkurmótsins á fimmtu-
dag og föstudag. Elías hlaut
7440 stig, þrátt fyrir leiðinda-
veður síðari daginn. Það er
annar bezti árangur ísiendings
í tugþraut og gefur vísbend-
ingu um, að Elías nái mjög
góðum árangri í sumar.
Íslandsmet Stefáns er 7589 stig.
Ölafur Unnsteinsson, þjálfari,
sem var með Elíasi allan tim-
ann i keppninni, sagði eftir
hana, að miðað við aðstæður
væri afrek Elíasar mjög gott,
það svo, að fólk gerði sér raun-
verulega ekki grein fyrir því.
Rigning í lok keppninnar dró
mjög úr árangri. Elías þurfti að
hiaupa 1500 m — síðustu
greinina — á 4:33.1 mín. til að
ná meti Stefáns og eftir góða
tilraun varð hann að gefa eftir í
rigningunni og slabbinu. Hljóp
á 4:58.0 mín.
Elías byrjaði vel. Sigraði í
100 m hlaupinu á 11.1 sek.
Björn Blöndal, KR, fékk sama
tíma og Jón Sævar Þórðarson,
iR. hljóp á 11.2 sek. t langstökk-
inu bætti Elías sinn bezta
árangur um 15 sm. Stökk 6.71
m., en átti bezt áður 6.56 m.
Kúlunni varpaði hann 14.55 m
eða 70 sm betur en áður í
þraut. Þá stökk hann 1.95 m í
hástökki, sem er jafnt bezta
árangri hér á Landi í ár, og
hljóp 400 m á 52.6 sek. kl. 10.30
á fimmtudagskvöld. Sá tími er
frægur í þeirri grein, íslands-
met Sveins Ingvarssonar, KR,
var lengi 52.6 sek. Jón Sævar
sigraði á 51.7 sek. og Björn
Blöndal hljóp á 52.8 sek.
Síðari keppnisdagurinn hófst
með 110 m grindahlaupi, þar
sem vindur var á hlið á dró úr
árangri allra. Elías sigraði á
15.8 sek., en Jón Sævar og
Björn fengu sama tíma. Það
segir talsvert um árangur
Elíasar, því hinir tveir hafa
hlaupið áð undanförnu niður
undir 15 sek. Kringlukast Elías-
ar var mjög gott 48.70 m og í
stangarstökki fór hann hátt yfir
4.15 m — en réð ekki við næstu
hæð. Þegar að spjótkastskeppn-
inni kom var kuldi og rigning i
bak. Elías kastaði 59.20 m., en
aðrir voru langt frá sínu bezta.
1500 m. hljóp hann svo á 4.58.0
mín. Samtals gaf þetta 7440
stig. Jón Sævar var annar með
6358 stig og bætti árangur sinn
um 167 stig. Það er 13. bezta
afrek Islendings í tugþraut og
Jón Sævar er í mikilli framför.
Seria hans var: — 11.2 — 6.44
— 11.47 — 1.86 — 51.7 — 15.8
— 29.74 — 3.35 — 43.26 og
4:51.2 mín.
Þriðji í tugþrautinni varð
Þráinn Hafsteinsson, HSK, með
5997 stig eða nokkru frá sínu
bezta. í Kaupmannahöfn í fyrra
náði hann 6332 stigum. Björn
Blöndal bætti árangur sinn
mjög. Fékk 5876 stig —
árangur, sem hann gæti bætt
verulega með því að leggja ein-
hverja stund á sínar lökustu
greinar. Þá hlaut 18 ara piltur,
Óskar Thorarensen, tR, 5580
stig og bætti sinn fyrri árangur
um 640 stig. Tveir hættu
keppni, þeir Þorvaldur Þórsson
og Vésteinn Hafsteinsson.
Þá var keppt í fimmtarþraut
kvenna á Reykjavíkurmotinu
og nú með 800 m hlaupi í lokin
í stað 200 m áður — en
fimmtarþrautin hefur verið
færð i það horf. Ingunn Einars-
dóttir, IR, sigraði og setti
íslandsmet með 3036 stig, þö
hún lyki ekki keppni í 800 m.
Fór þar of hratt af stað.
Árangur hennar var 14.5 sek. í
100 m grindahlaupi, 9.96 m í
kúluvarpi, 5.61 m í langstökki
og 1.55 m í hástökki. Þórdís
Gísladóttir, ÍR, varð önnur með
um 2900 stig. í 4x800 m boð-
hlaupi varð sveit Ármanns
Reykjavíkurmeistari og Rúnar
Gunnarsson, KR í 10 km hlaupi
á 39:15.6 mín.
Aukakeppni var í kringlu-
kasti. Erlendur Valdimarsson,
KR kastaði 58.26 m og hefur
greinilega náð sér að fullu eftir
meiðsli, sem háð hafa honum í
vor. Var mjög öruggur í köstum
sínum. Öskar Jakobsson, ÍR,
gerði öll sín köst ógild — en
hann og Erlendur áttu báðir
ógild köst um fimmtíu og níu og
hálfan metra.
hsím.
ENN TVÖ STIG TIL KEFLVIKINGA
—en Vestmannaeyingar hafa ekki skorað frá fyrsta leik sínum f 1. deildinni
Keflavíkurvöllur, 1. deild, ÍBK-
ÍBV 1:0 (1:0).
Það var sólskin og norðan-
strekkingur i Keflavík þegar leik-
ur heimamanna og Eyjarskeggja
hófst á grasvellinum á laugar-
daginn. í upphafi var augljóst að
Keflvikingar ætluðu sér ekkert
annað en sigur i leiknum við ÍBV.
Þeir byrjuðu af mikium krafti og
það voru ekki liðnar nema tvær
mínútur, þegar hinn eldfljóti
Ómar Ingvarsson, sendi knöttinn
í mark ÍBV, eftir baráttu við
Friðfinn Finnbogason, 1:0.
Vestmannaeyingar virkuðu
heldur áhugalausir á fyrstu min-
útum leiksins, því Keflvíkingar
sóttu nær stanzlaust og hefðu átt
að geta skorað fleiri mörk. Á 7.
mínútu skapaðist mikil hætta
fyrir framan mark Eyjarskeggja,
Tjöldin og
tjaldhimnarnir
frá Seglagerðinni vekja alls staðar
athygli
5-6 manna tjöld: 25.270,-
3 manna tjöld: 19.432,-
4-5 manna tjöld og himinn: 37.600,-
Erum flutt í glœsileg húsakynni að Eyjagötu 7
Örfirisey. Komið og sjóið tjöldin uppsett.
Póstsendum um allt land.
6$\ag er(fj
Eyjagötu 7, Örfirisey
Sími 13320 og 14093
sem endar með því að Sigurður
Björgvinsson, sendir knöttinn i
netið, en markið var dæmt af,
öllum til mikillar furðu.
Þegar lengra leið á hálfleikinn
vöknuðu Eyjamenn aðeins til lífs-
ins og leikurinn jafnaðist nokkuð.
Snorri Rútsson komst í dauðafæri
en skaut yfir, — þar máttu heima-
menn prísa sig sæla að ekki varð
mark. Svipað gerðist svo við mark
ÍBV, á 38. mín, þegar Þórður
Karlsson, fær góða sendingu frá
Hilmari Hjálmarssyni, en skot
hans geigaði illilega. A marka-
mínútunni miklu skall hurð nærri
hælum hjá tBK. Hörkuskot Val-
þórs Sigþórssonar small í þver-
slánni og niður í þvöguna fyrir
framan markið en Keflvíkingum
tókst að bægja hættunni frá.
Vestmannaeyingar mættu mjög
ákveðnir til seinni hálfleiks og
voru heldur meira með knöttinn,
en það vantaði allan brodd í sókn-
ina, en aftur á móti var framlína
tBK, mun beittari og það
skapaðist ávallt hætta í sóknarlot-
um þeirra. Bezta tækifærið í
seinni hálfleik áttu þó Eyjamenn,
á 41. mín. þegar Karl Sveinsson
skaut hátt yfir í opnu færi. Leikn-
um lauk því með verðskulduðum
sigri ÍBK, 1:0.
Beztu menn ÍBK voru þeir Gísli
Torfason, klettur í vörninni, —
Óskar Færseth og Hilmar'
Hjálmarsson. Einnig átti Ómar
Ingvarsson góða spretti, en
kannski fulleigingjarn með knött-
inn. Ekki má gleyma því að
Ólafur Júlíusson lék ekki með
ÍBK, — var að afplána brott-
rekstrarrefsinguna frá Fram-
leiknum. Munaði mikið um að
hafa hann ekki i liðinu.
Hjá tBV, bar mest á þeim Karli
Sveinssyni og Magnúsi Þorsteins-
syni, og einnig átti Valþór Sig-
þórsson, góðan leik.
Dómari leiksins var Guðmund-
ur Haraldsson og reyndist heldur
slakur. Einu sinni þurfti hann að
lyfta gula spjaldinu í leiknum,'
þegar Magnús Þorsteinsson, ÍBV,
braut gróflega á Þórði Karlssyni.
Einnig gaf hann Hólmbert
Friðjónssyni þjálfara tiltal, fyrir
að hrópa til leikmanna sinna.
gme.
Óli Júll. ekki marka-
laus þann daginn!
Þótt Ólafur Júlíusson hafi
ekki leikið með ÍBK gegn Eyja-
mönnum vegna leikbanns var
hann samt ekki alveg marka-
laus þann daginn, — kona hans
ól honum 16 marka son, sem
vafalaust fetar i fótspor
föðurins, — verður marka-
skorari mikill.
-emm.
Þriðji sigur KA a utivelli
KA vann sinn þriðja sigur á
útivelli er það sigraði Selfoss 2-1
á Selfossi. Staðan KA er sannar-
lega góð — liðið hefur leikið alla
fjóra leiki sina á útivöllum og
hlolið 7 stig. En hamingjudís-
irnar hafa sannarlega brosað við
KA i leikjum þess það sem af er
og svo var einnig á Selfossi.
KA lék undan norð-austan
strekkingskalda í fyrri hálfleik
en þrátt fyrir það átti lið Selfoss
sizt minna í samleik en hins
vegar vantaði illilega sóknar-
brodd, KA náði forustu á 10.
mínúlu. Armann Sverrisson
skoraði upp úr þvögu af stuttu
færi. Selfoss fékk tvö mjög góð
tækifa'ri á sömu mínútunni. A 30.
mínútu var Kjartan Jónsson i
góðu færi en Guðbergur Ellerts-
son varði vel í horn. Þegar á eftir
stóð Stefán Larsen einn fyrir
opnu marki á markteig en skot
hans geigaði — hann hitti ekki.
Síðan náði KA að auka forustu
sina á 36.. mínútu. KA tók langt
innkast að marki Selfoss.
Eyjólfur Agústsson skoraði af
stuttu fa*ri eftir siæm mistök í
vörn Selfoss.
KA byrjaði síðari hálfleik af
krafti en Selfoss náði síðan lök-
um á leiknum og sótti stíft.
Guðjón Arngrímsson náði að
minnka muninn á 20. mínútu er
hann skoraði af stuttu færi. Þrátt
fyrir þunga sókn var lítið um
opin tækifæri. Þó komst Guðjón
Arngrímsson einn innfyrir vörn
og eins sleppti slakur dómari
leiksins, Einar Hjartarson aug-
ljósri vítaspyrnu á KA.
En stigin voru KA — og geta
þeir þakkað markverði sinum,
Guðbergi Ellertssyni þau en hann
varði af stakri snilld. Hjá Selfoss
bar mest á Kjartani Jónssyni,
Trvggva Gunnarssyni og Stefáni
Larsen.
BG
Þróttur nær sér ekki á strik
Þrótti úr Reykjavík hefur ekki
vegnað vel í 2. deild eftir veru í 1.
deild á siðastliðnu sumri. A laug-
ardag lék Þróttur við Reyni frá
Arskógsströnd. Leikurinn fór
fram á Arskógsströnd og lyktaði
með jafntefli, 1-1. Þar með
hlaut Reynir sitt fyrsta sig i 2.
deild í sumar eftir þrjá tapleiki.
Þrótlur hefur hins vegar lapað
þremur stigum i 2. deild — beið
ósigur f.vrir Haukum.
Reynir lék undan norðan
slrekkingskalda i fyrri hálfleik og
sólti mun meira. Þó var fátt um
marktækifæri og samspil hjá
báðum liðum í lágmarki. Um
miðjan fyrri hálfleik náði Reynir
forustu er Björgvin Gunnlaugs-
son skoraði fyrir heimamenn.
Þróttur sótti stíft í síðari hálf-
leik — án þess þó að skapa sér góð
marktækifæri. Þróttarar reyndu
mjög að skj’óta af löngu færi —
en litil hætta skapaðist. Páli
Ólafssyni tókst að jafna og Þrótt-
ur tók stig með sér suður. Greini-
legt er að vilji Þróttur endur-
heimta sæti sitt i 1. deild. verður
liðið að leika betur en á laugardag
en Þróttur olli talsverðum von-
brigðunt þó auðvitað heimamenn
væru ánægðir með stigið. -St.A.
• Heimsmeistarar V-Þýzkalands
sigruðu Argentinu i landsleik í
knattspyrnu i Buenos Aires i gær-
kvöld 3-1. Fischer skoraði tvö af
mörkurn Þjóðverja á 7. og 60.
mín. og Holzenbein það 3ja á 69.
mín. Passarella skoraði eina
mark Argentinu á 73. mín.