Dagblaðið - 06.06.1977, Page 16
16
i
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. JtJNÍ 1977.
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Hálfdán Þ. Karlsson sigurvegari íÞotukeppni Fl.
DB-mynd R.Lár.
Haukar glötuðu
stigi í Firðinum
Haukar glötuðu dýrmætu stigi í
2. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu er þeir mættu Völsungi í
Hafnarfirði á laugardag. Völs-
ungur, er tapað hafði tveimur
siðustu leikjum sinum fyrir norð-
an, kom talsvert á óvart og náði
jafntefli 1-1.
Völsungur náði forustu með
marki Sigurkarls Aðalsteinssonar
og hinir ungu leikmenn Húsa-
vikurliðsins börðust vel. En
Sigurður Aðaisteinsson náði að
jafna fyrir Hauka og tryggja stig.
Haukar, er áður höfðu sigrað
Þrótt, R. hafa nú hlotið 6 stig
ásamt Ármanni og greinilegt að
baráttan um sætin í 1. deild
verður mjög hörð.
• A-Iið Júgósiavíu gerði jafntefii
við Pólland 18-18 á handknatt-
leiksmótinu í Bjelovar í gær.
Sovétríkin sigruðu B-lið
Júgóslavíu 20-18 (8-8). Ungverja-
land sigraði Svíþjóð 25-23 (14-
12). A-lið Júgóslavíu er efst eftir
fjórar umferðir með 7 stig. Sovét-
ríkin hafa sex stig, Ungverjaland
5, Júgóslavía B-lið og Póiiand 3
stig, en Svíar hafa ekki hlotið
stig.
Prmlsterkir
stálofnar
Framleiðum
samkvæmt íslenskri
hönnun, nýja tegund
stálofna sem eru
sérstaklega ætlaðir til
að þola og nýta
hitaveituvatn sem
best.
Ofnar þessir henta
einnig mjög vel við
önnur kerfi.
Þsirsra:
★ Framleiddir úr þykkara og sterkara efni en
aörir ofnar hérlendis.
★ Fyrirferöalitlir, falla vel í umhverfiö. Þykkt
frá 15 mm. Einfaldir, tvöfaldir, þrefaldir
eöa fjórfaldir, eftir aöstæöum, til bestu
hitanýtni fyrir hvern og einn.
★ Lágt verö, leitiö tilboöa. Stuttur
afgreiöslufrestur.
„ STfiLOFNfiRHF.
pr MÝRARGÖTU 28, SiMI 28140
Ný sportvöruverzlun í Kopavogi
Hörkurok og hörku-
keppni á Hvaleyri!
— Þotukeppni FÍfór þar fram um helgina
Þotukeppni Flugfélagsins fór
fram á Hvaleyrarvellinum um sl.
helgi. Þátttaka var mjög góð, eða
110 keppendur og er það með því
flesta sem verið hefur síðan
keppnin fór fyrst fram árið 1968.
Hörkubarátta var um fyrstu
sætin, en hér á eftir fer röð fyrstu
manna án forgjafar:
1. Hálfdán Þ. Karlsson 157 högg.
2. Ágúst Svavarsson 157 högg.
(Ágúst gat ekki keppt til úrslita
um fyrsta sætið, þar sem hann var
farinn til Svíþjóðar í mótslokin).
3. Sigurður Pétursson 158 högg.
Með forgjöf:
1. Björn Karlsson 144 högg.
2. Björgvin Hólm 146 högg.
3. Þorgeir Þorsteinsson 147 högg.
Þeir Ragnar Jónsson og Jón V.
Karlsson voru með sama högga-
fjölda og Þorgeir, en dregið var
um þriðja sætið.
Aukaverðlaun voru veitt þeim
sem næstur var holu á 5. braut.
Þau verðlaun hlaut Tómas
Holton, og var hann 2,31 cm frá
holunni.
Báða mótsdagana var bezta
veður fyrir hádegi, en síðan
hvessti eftir hádégið og á sunnu-
daginn voru 8 til 9 vindstig, enda
fór illa fyrir sumum kylfinganna
vegna roksins.
Þetta mót gat 200 stig til lands-
liðs og munu þau skiptast eins og
hér segir:
Hálfdán Karlsson,
Ágúst Svavarsson
Sigurður Pétursson
Sveinn Sigurbergsson
Magnús Halldórsson
Björgvin Þorsteinsson
Ragnar Ólafsson
Loftur Ölafsson
Óskar Sæmundsson
Magnús Hjörleifsson
Óttar Yngvason
stig
36
36
30
24
24
18
10
10
10
1
1
rl.
Kraftur í Isfirðingum
Keflavíkurvöllur, 2.-deiId,
Reynir S.-ÍBÍ, 1:2 (1:0)
ísfirðingar hófu ieikinn af
miklum krafti og kváðu Reynis-
menn strax í kútinn á malarvell-
inum i Keflavík á laugardaginn.
með skemmtilegum samieik og
miklum baráttuvilja. Voru þeir
allan ieikinn sterkari aðilinn, að
undanskildum síðustu mínútun-
um er Reynismenn gátu herjað
eitthvað 'að gagni að marki
isfirðinga.
Þegar rúmlega stundar-
fjórðungur var liðinn af leiknum
kom að því er virtist hættulítil
sending fyrir mark Sandgerðinga,
sem Reynir Óskarsson, mark-
vörður ætlaði að góma léttilega,
en missti knöttinn inn fyrir mark-
línuna, 1:0, — en markið er bókað
á Örnólf Oddsson.
ísfirðingar áttu nokkur færi
sem ekki nýttust en Reynismenn
aðeins eitt, þegar Ari Arason
skallaði rétt hjá marki úr auka-
spyrnu.
ísfirðingar héldu strikinu í
seinni hálfleik. Strax á þriðju
mínútu, slapp Jón Oddsson, —
eldfljótur og leikinn piltur, inn
fyrir Reynisvörnina, en skotið
geigaði. Ur löngu innkasti tekst
Ömari Torfasyni öllu betur og
skorar með föstu skoti úr þröngri
stöðu í bláhornið, 2:0. Eftir
markið má segja að sigur ís-
firðinga hafi verið í höfn, en
Reynismenn voru samt ekki af
baki dottnir, og tókst aðeins að
rétta sinn hlut undir lokin með
marki Ömars Björnssonar, —
eftir mikinn darraðardans og
ævintýralegt úthlaup markvarðar
aðkomumanna, 2:1.
Jón Oddsson og Rúnar
Guðmundsson voru ásamt
Gunnari Gunnarssyni, beztu
menn Isfirðinga, en hjá Reyni bar
mest á Ara Arasyni og Guðjóni
Ölafssyni. Dómari var Eysteinn
Guðmundsson og dæmdi vel.
gme.
Skotar Bretlandsmeistarar
Skotar áttu ekki i hinum
minnstu erfiðleikum með að
tryggja sér sigur í brezku
meistarakeppninni í knattspyrnu,
þegar þeir mættu Englendingum
á Wembley á iaugardag. Skotland
vann 2-1 — fyrsti sigur Skota á
Wembley i 10 ár.
Sigur Skota í leiknum var
auðveldari en úrslitin gefa til
kynna. Það var ekki fyrr en tvær
mín. voru til leiksloka, að Eng-
iendingar skoruðu sitt mark.
Channon úr vitaspyrnu. Gordon
McQueen skoraði fyrra mark
Skota á 43. mín., en Kenny
Dalglish það síðara á 58. mín.
Skozka liðið — drifið áfram af
stórleik framvarðanna Hartford,
Rioch og Masson — var betra
allan tímann. Á föstudag gerðu
TapUnion
Union tapaði báðum leikjum
sínum í vikunni í keppninni um
réttinn til að leika í 1. deiid i
Beigíu næsta keppnistímabil.
Fyrst á heimavelli fyrir La
Louviere 0-2 og siðan á útivelli
gegn Eisden 1-0. Þeir Marteinn
Geirsson og Stefán Haildórsson
léku ekki með Union vegna veik-
inda og meiðsla. 1 gær vann
Waterschei La Louviere 2-1 og
liðin eru nú efst með 7 stig hvort.
Eisden hefur 4 stig og Union 2.
Ein umferð er eftir. Þeir
Marteinn og Stefán eru væntan-
legir heim á miðvikudag.
Höfum opnað
sportvöruverzlun að Hamraborg 10
undir nafninu SP0RTB0RG
Sími 44577
Ný sportvöruverzlun íKópavogi
Wales og N-Irland jafntefli 1-1
Deacy, PSV Eindhoven skorað
fyrir Wales, en Nelson jafnað
fyrir Irland. Lokastaðan
keppninni varð því þannig.
Skotland 3 2 1 0 5-1 5
Wales 3 1 2 0 2-1 4
England 3 1 0 2 3-4 2
N-Irland 3 0 1 2 2-6 1
Eftir leikinn á Wembley
ruddust skozkir áhorfendur niður
á völlinn í gleði sinni — en gleðin
varð of mikil. Mörkin og girðingar
rifin niður og önnur spellvirki'
unnin. Tjón talið nema 15 þúsund
sterlingspundum — en tekjur af
leiknum námu rúmum 300
þúsund sterlingspundum. Allt
laugardagskvöldið og aðfaranótt
sunnudags var Lundúnaborg í
hershöndum Skota og þetta er
það versta sem skeð hefur þar
eftir knattspyrnuleik í manna
minnum.
I skozka liðinu voru átta leik-
menn úr ensku deildaiiðunum, en
liðið var þannig skipað:
Rough, Partick, MacGrain,
Celtic, Donachie, Man. City,
Forsyth, Rangers, McQueen,
Leeds, Rioch, Everton, Hartford,
Manc. City, Masson, QPR,
Dalglish, Celtic, Macari, Man.
Utd. Johnston, WBA, Gemmill,
Derby, kom í lokin í stað Masson.
Stuttar f réttir
• Gunnar Nilsson, Svíþjóð, kom
á óvart í Grand Prix kappakstrin-
um í gær. Sigraði rétt á undan
Niki Lauda, Austurríki. Keppt
var í Belgiu. Eftir keppnina er
Jody Scheckter, S-Afríku, efstur
með 32 stig, en Lauda er aðeins
stigi á eftir. Síðan koma Carlos
Reuteman, Argentínu og Mario
Andretti, USA, en þeir urðu báðir
að hætta keppni i gær. Nilsson,
sem nú keppir á öðru ári í Grand
Prix-keppninni er í fimmta sæti.
Hann ekur fyrir Lotus.
• Portland Trail Blazers sigraði
Philadelphia _ 76ers með 109
stigum gegn 107 í New York i nótt
og varð þvi handariskur meistari
í körfuknattleik. Portiand sigraði
i fjórum leikjum — Philadelpiá
tveimur fvrstu — og þurfa liðin
því ekki að leika sjöunda leikinn.
Enska liðið var þannig skipað.
Clemence, Neal, Liverpool, Mills,
Ipswich, Watson, Manc. City,
Kennedy, Liverpool, Brian Green-
hoff, Man. Utd., Hughes, Liver-
pool, fyrirliði, Francis, Birming-
ham, Channon, Southampton,
Pearson, Manch. Utd. Talbot,
Ipswich, Tueart, Manch. City og
Cherry, Leeds, komu í stað
Greenhoff og Kennedy.
Staðan í
l.deild
Urslit leikja i 1. deild:
Breiðablik—Fram 4-1
Akranes—Vikingur 1-1
Keflavík—ÍBV 1-0
KR—Þór 6-0
Staðan i 1. deiid íslandsmótsins
er nu: Akranes 7 5 1 1 10-5 11
Keflavík 6 4 1 1 11-7 9
Valur 6 4 0 2 10-8 8
Breiðablik 6 3 1 2 10-7 7
Víkingur 5 1 4 0 4-3 6
Fram 7 2 1 4 10-12 5
Þór 7 2 1 4 8-16 5
KR 5 1 1 3 7-5 3
ÍBV 5 1 1 3 2-4 3
FH 6 1 1 4 4-9 3
Síðasti leikur 7. umferðar fer
fram í kvöld á Laugardalsveilin-
um. Þá mætir Valur neðsta iiðinu
í l.deild — FH.
Staðan í
2. deild
Urslit leikja i 2. deiid:
Armann-Þróttur, N 3-0
Haukar-Völsungur 1-1
Reynir Ar-Þróttur, R 1-1
Reynir S-ísafjördur 1-2
Selfoss-KA 1-2
Staðan i 2. deild er nú
KA 4 3 1 0 7-3 7
Armann 4 3 0 1 9-2 6
Haukar 4 2 2 0 6-2 6
Þróttur. R 4 2 I 1 5-3 5
Reynir, S 4 2 0 2 6-6 4
Selfoss 4 2 0 2 4-4 4
Ísafjörður 4 1 1 2 3-6 3
Yölsungur 4 1 1 2 3-6 3
Þróttur. N 4 0 1 3 1-6 1
Reynir Ar 4 0 1 3 2-8 1