Dagblaðið - 06.06.1977, Side 28
„Enginn hefur efni á verkfalli,” segir sveitarsf jörinn
Samið um 100 þús. kröna
lágmarkslaun á Þörshöfn
án vitundar ASI, VSI og Vinnumálasambandsins
— Við gerðum samkomulag
við Hraðfrystistöð Þórshafnar
og Þórshafnarhrepp þann 24.
maí þar sem okkar umbjóðend-
um eru tryggð um eitt hundrað
þúsund króna lágmarkslaun frá
og með 1. júní. Yfirvinnubanni
var aflétt þegar i stað, sagði
Guðjón Kristjánsson starfs-
maður Verkalýðsfélagsins á
Þórshöfn í viðtali við DB um
það samkomulag sem nú er í
gildi.
„Þessir samningar okkar eru
að sjálfsögðu upp í væntanlega
samninga er gerðir verða suður
í Reykjavík milli ASl og Vinnu-
málasambandsins og Vinnu-
veitendasambandsins. Við telj-
um okkur alls ekki vera að
spilla samkomulagi — vildum
aðeins bjarga verðmætum,"
sagði Guðjón ennfremur.
Þeir samningar er gerðir
voru á Þórshöfn tryggja verka-
mönnum tæplega 100 þúsund
króna lágmarkslaun. Dagvinnu-
kaup lægsta taxta verkalýðs-
félagsins er nú 576.90. í eftir-
vinnu 807.70 og 1038.40 kr. i
næturvinnu. Þessir samningar
eru gerðir án vitundar ASl og
Vinnumálasambandsins svo og
Vinnuveitendasambands
íslands.
„Forsendur okkar f.vrir sam-
komulagi við Verkalýðsfélagið
hér eru þríþættar." sagði
Bjarni Aðalgeirsson, sveitar-
stjóri á Þórshöfn og stjórnar-
maður í Hraðfrystistöðinni.
„Við höfum hér togara og nýtt
frystihús og fjárhagsstaða
fyrirtækisins ekki nógu góð.
Togarinn var með góðan afla og
því vildum við tryggja vinnslu
hans svo og að togarinn kæmist
i aðra veiðiferð. Loks hefur at-
vinnuástand hér á Þórshöfn
verið mjög ótrvggt í vetur. Að
þessu samanlögðu þótti okkur
rétt að semja. Hér hefur enginn
efni á verkfalli."
Þá var gert samkomulag við
Kaupfélagið fyrir helgi og var
yfirvinnubanni aflétt af Kaup-
félaginu í einn dag. Starfsfólk
Kaupfélagsins felldi hins vegar
samninginn og því hefur yfir-
vinnubann aftur tekið gildi á
Kaupfélagið. Samningur Kaup-
félagsins og Verkalýðsfélagsins
var talsvert frábrugðinn samn-
ingi við Hraðfrystistöðina.
Þá voru fyrir helgi samninga-
viðræður við Vegagerðina á
Þórshöfn en þær sigldu í
strand.
h.halls.
ALLIR ÞORPSBÚAR MEÐ í HÁTÍÐINNI
Sjómannadagurinn var hátíð-
legur haldinn um land allt í gær.
Á Stokkseyri var mikil hátíð og
það. svo að vel flestir þorpsbúar
voru komnir á vettvang.
Björgunarsveitin Dröfn sá um
hátíðina þar, sýndi björgun, skot
úr línubyssum og fleira. Hér er
björgunarsveitarmaður dreginn
langa leið á linu i Stokkseyrar-
höfn. Sjá einnig bls. 4.
DB-myndir Geir Valgeirsson.
Valkyrja
f jarlægð úr
baðlæknum
Margt manna tók sér bað í
læknum i Nauthólsvík um
helgina en samkvæmt upp-
lýsingum Páls Eiríkssonar
varðstjóra gekk það frekar
friðsamlega fyrir sig og eng-
in teljandi vandræði hlutust
af.
Nokkuð eru menn lengi í
læknum og vill dragast að
næturgestirnir komi sér
heim. Sagði Páll að
baðgestirnir hefðu verið i
læknum framundir hádegi á
sunnudag og væri svo oft.
Snemma í morgun, um
sjöleytið, þurfti lögreglan þó
að fjarlægja valkyrju eina
sem verið hafði í lækjarbaði.
Stúlkan, sem er um tvítugt,
var búin að bíta og klóra
stráka sem einnig voru að
baða sig. Þótti þeim nóg um
hvað stúlkan var aðgangs-
hörð.
-A.Bj.
Veltu stolinni bifreið
Um tíu leytið í gærkvöldi var lögreglunni tilkynnt um bílveltu á
Vatnsveituvegi. Kom i ljós að umræddri bifreið, sem var stór-
skemmd eftir veltuna, hafði verið stolið af Fálkagötu. Lék grunur á
að þrír piltar, sem verið hafa á Upptökuheimili rikisins í Kópavogi
hefðu verið hér að verki. Náðust piltarnir skömmu síðar í Blesugóf-
inni.
Næga mjólk að fá
— í dag og næstu daga
Verkfallið í Reykjavik á
föstudag og á Suðurlandi i dag
ætti ekki að hafa nein veruleg
áhrif á mjólkurdreifingu og
sölu. Hjá Mjólkursámsölunni i
Reykjavík fengum við þær
upplýsingar að þar sem fólk
væri b.vr.jað í sumarlc.vfum og
farjð að fara út úr bænum væri
eftirspurn eftir mjólk í lág-
marki og hcfði verið hægt að
sjá fyrir nægri mjólk fram að
þessu og væri búi/.t við að svo
yrði áfram. Þó má reikna með
mjólkurþurrð í. einstaka
ver/lunum í dag en á morgun
búast menn við að það verði
komiö í lag.
Á Selfossi liggur öll vinnsla
mjólkur niðri i dag en þar sem
bilstjórar eru ekki t verkfalli er
mjólkin sótt til bænda og
mjólkurbúið á nóg af ilátum lil
að geytna hana til morguns.
Mjólk var keyrð í bteinn á laug-
ardag. sem venjulega er fri-
dagur bilstjóra. þannig að næg
mjólk ætti uð verða í búðum i
dag og næstu daga.
-I)S.
Hættuleg veiði-
tík gengur
laus
Veiðitik, sem getur verið
hættuleg umhverfi sínu. hvarf
frá ríkisbúinu að Þormóðsdal
ofan Hafravatns aðfaranótt sl.
föstudags. Tíkin er svört á baki
en. gulbrún á haus og löppum.
Sem fyrr segir getur hún verið
htettuleg við viss skilyrði. Tikin
gegnir nafninu Snælda.
Þeir sem k.vnnu að hafa orðiö
hennar varir eða hafa minnsta
grun um hvar hún er nú. eru
beðnir að hafa samband við
rannsóknarlögregluna í Hafn-
arfirði eða i sínta 37842.
-ASt.
MÁNUDAGUR 6. JUNl 1977.
Laxinn
kulvís
iNorðurá
—veiðinfórvel
afstaðen
hrapaði niður
þegarkólnaði
Heldur er laxinn kulvls í
Norðurá og hefur veiði þar
snarminnkað í kuldanum
undanfarna daga. Að sögn
Ingibjargar Ingimundar-
dóttur, ráðskonu í veiðihús-
inu, í gær veiddust 20 laxar
fyrsta daginn eftir opnun
nú, 1. júní. Norðurá var
opnuð fyrst laxveiðiáa ásamt
Laxá 1 Ásum.
Annan daginn komu 25
laxar úr Norðurá, en um leið
og tók að kólna féll veiðin
niður í sjö til átta fiska á dag
og eru samtals komnir 62
fiskar frá opnun. Eru þeir
aðallega af stærðinni átta til
tíu pund, en sá stærsti hing-
að til vó 14 pund.
í gær var nær engan fisk
að sjá í ánni nema uppi við
foss, að sögn Ingibjargar.
-G.S.
Juku
drykkjuna
þegar
kólnaði
Geysilega mikil ölvun var
á Akureyri aðfaranótt
laugardags, en þá nótt
kólnaði allverulega i veðri
þar. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar þurfti hún
að hýsa átján manns um
nóttina. Þó urðu ekki
teljandi óhöpp af völdum
þessa drykkjuskapar.
Um fimmleytið á
sunnudagsmorguninn var
lögreglunni tilkynnt að
maður hefði fallið fram af
togarabryggjunni. Brugðu
tögreglumennirnir skjótt við
og tókst að bjarga mannin-
um. Var hér um að ræða
tvítugan heimamann, sem
var eitthvað undir áhrifum
áfengis. Þegar lögreglan
kom á staðinn hafði verið
kastað bjarghring til hans,
en hátt er fram af togara-
bryggjunni og ekki gott að
komast þar upp.
Lögreglan hnýtti reipi um
einn af sínum mönnum, sem
síðan var látinn síga niður
og bjargaði hann manninum
á þann hátt úr þessu kalda
baði. Ekki varð piltinum
meint af volkinu, en kalt var
i veðri á Akureyri, ekki
nema um 4 stiga hiti. -A.Bj.
Skemmdar-
vargurgripinn
á hlaupum
Brotizt var ínn að Skál-
holtsstíg 2 aðfaranótt
föstudags. Unnin voru
nokkur skemmdarverk, en
- lögreglan greip skemmdar-
varginn skammt frá þar sem
hann var á harðahlaupum á
Bjargarstígnum. Mál þetta
er i rannsókn.
-A.Bj.