Dagblaðið - 06.06.1977, Page 28

Dagblaðið - 06.06.1977, Page 28
„Enginn hefur efni á verkfalli,” segir sveitarsf jörinn Samið um 100 þús. kröna lágmarkslaun á Þörshöfn án vitundar ASI, VSI og Vinnumálasambandsins — Við gerðum samkomulag við Hraðfrystistöð Þórshafnar og Þórshafnarhrepp þann 24. maí þar sem okkar umbjóðend- um eru tryggð um eitt hundrað þúsund króna lágmarkslaun frá og með 1. júní. Yfirvinnubanni var aflétt þegar i stað, sagði Guðjón Kristjánsson starfs- maður Verkalýðsfélagsins á Þórshöfn í viðtali við DB um það samkomulag sem nú er í gildi. „Þessir samningar okkar eru að sjálfsögðu upp í væntanlega samninga er gerðir verða suður í Reykjavík milli ASl og Vinnu- málasambandsins og Vinnu- veitendasambandsins. Við telj- um okkur alls ekki vera að spilla samkomulagi — vildum aðeins bjarga verðmætum," sagði Guðjón ennfremur. Þeir samningar er gerðir voru á Þórshöfn tryggja verka- mönnum tæplega 100 þúsund króna lágmarkslaun. Dagvinnu- kaup lægsta taxta verkalýðs- félagsins er nú 576.90. í eftir- vinnu 807.70 og 1038.40 kr. i næturvinnu. Þessir samningar eru gerðir án vitundar ASl og Vinnumálasambandsins svo og Vinnuveitendasambands íslands. „Forsendur okkar f.vrir sam- komulagi við Verkalýðsfélagið hér eru þríþættar." sagði Bjarni Aðalgeirsson, sveitar- stjóri á Þórshöfn og stjórnar- maður í Hraðfrystistöðinni. „Við höfum hér togara og nýtt frystihús og fjárhagsstaða fyrirtækisins ekki nógu góð. Togarinn var með góðan afla og því vildum við tryggja vinnslu hans svo og að togarinn kæmist i aðra veiðiferð. Loks hefur at- vinnuástand hér á Þórshöfn verið mjög ótrvggt í vetur. Að þessu samanlögðu þótti okkur rétt að semja. Hér hefur enginn efni á verkfalli." Þá var gert samkomulag við Kaupfélagið fyrir helgi og var yfirvinnubanni aflétt af Kaup- félaginu í einn dag. Starfsfólk Kaupfélagsins felldi hins vegar samninginn og því hefur yfir- vinnubann aftur tekið gildi á Kaupfélagið. Samningur Kaup- félagsins og Verkalýðsfélagsins var talsvert frábrugðinn samn- ingi við Hraðfrystistöðina. Þá voru fyrir helgi samninga- viðræður við Vegagerðina á Þórshöfn en þær sigldu í strand. h.halls. ALLIR ÞORPSBÚAR MEÐ í HÁTÍÐINNI Sjómannadagurinn var hátíð- legur haldinn um land allt í gær. Á Stokkseyri var mikil hátíð og það. svo að vel flestir þorpsbúar voru komnir á vettvang. Björgunarsveitin Dröfn sá um hátíðina þar, sýndi björgun, skot úr línubyssum og fleira. Hér er björgunarsveitarmaður dreginn langa leið á linu i Stokkseyrar- höfn. Sjá einnig bls. 4. DB-myndir Geir Valgeirsson. Valkyrja f jarlægð úr baðlæknum Margt manna tók sér bað í læknum i Nauthólsvík um helgina en samkvæmt upp- lýsingum Páls Eiríkssonar varðstjóra gekk það frekar friðsamlega fyrir sig og eng- in teljandi vandræði hlutust af. Nokkuð eru menn lengi í læknum og vill dragast að næturgestirnir komi sér heim. Sagði Páll að baðgestirnir hefðu verið i læknum framundir hádegi á sunnudag og væri svo oft. Snemma í morgun, um sjöleytið, þurfti lögreglan þó að fjarlægja valkyrju eina sem verið hafði í lækjarbaði. Stúlkan, sem er um tvítugt, var búin að bíta og klóra stráka sem einnig voru að baða sig. Þótti þeim nóg um hvað stúlkan var aðgangs- hörð. -A.Bj. Veltu stolinni bifreið Um tíu leytið í gærkvöldi var lögreglunni tilkynnt um bílveltu á Vatnsveituvegi. Kom i ljós að umræddri bifreið, sem var stór- skemmd eftir veltuna, hafði verið stolið af Fálkagötu. Lék grunur á að þrír piltar, sem verið hafa á Upptökuheimili rikisins í Kópavogi hefðu verið hér að verki. Náðust piltarnir skömmu síðar í Blesugóf- inni. Næga mjólk að fá — í dag og næstu daga Verkfallið í Reykjavik á föstudag og á Suðurlandi i dag ætti ekki að hafa nein veruleg áhrif á mjólkurdreifingu og sölu. Hjá Mjólkursámsölunni i Reykjavík fengum við þær upplýsingar að þar sem fólk væri b.vr.jað í sumarlc.vfum og farjð að fara út úr bænum væri eftirspurn eftir mjólk í lág- marki og hcfði verið hægt að sjá fyrir nægri mjólk fram að þessu og væri búi/.t við að svo yrði áfram. Þó má reikna með mjólkurþurrð í. einstaka ver/lunum í dag en á morgun búast menn við að það verði komiö í lag. Á Selfossi liggur öll vinnsla mjólkur niðri i dag en þar sem bilstjórar eru ekki t verkfalli er mjólkin sótt til bænda og mjólkurbúið á nóg af ilátum lil að geytna hana til morguns. Mjólk var keyrð í bteinn á laug- ardag. sem venjulega er fri- dagur bilstjóra. þannig að næg mjólk ætti uð verða í búðum i dag og næstu daga. -I)S. Hættuleg veiði- tík gengur laus Veiðitik, sem getur verið hættuleg umhverfi sínu. hvarf frá ríkisbúinu að Þormóðsdal ofan Hafravatns aðfaranótt sl. föstudags. Tíkin er svört á baki en. gulbrún á haus og löppum. Sem fyrr segir getur hún verið htettuleg við viss skilyrði. Tikin gegnir nafninu Snælda. Þeir sem k.vnnu að hafa orðiö hennar varir eða hafa minnsta grun um hvar hún er nú. eru beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Hafn- arfirði eða i sínta 37842. -ASt. MÁNUDAGUR 6. JUNl 1977. Laxinn kulvís iNorðurá —veiðinfórvel afstaðen hrapaði niður þegarkólnaði Heldur er laxinn kulvls í Norðurá og hefur veiði þar snarminnkað í kuldanum undanfarna daga. Að sögn Ingibjargar Ingimundar- dóttur, ráðskonu í veiðihús- inu, í gær veiddust 20 laxar fyrsta daginn eftir opnun nú, 1. júní. Norðurá var opnuð fyrst laxveiðiáa ásamt Laxá 1 Ásum. Annan daginn komu 25 laxar úr Norðurá, en um leið og tók að kólna féll veiðin niður í sjö til átta fiska á dag og eru samtals komnir 62 fiskar frá opnun. Eru þeir aðallega af stærðinni átta til tíu pund, en sá stærsti hing- að til vó 14 pund. í gær var nær engan fisk að sjá í ánni nema uppi við foss, að sögn Ingibjargar. -G.S. Juku drykkjuna þegar kólnaði Geysilega mikil ölvun var á Akureyri aðfaranótt laugardags, en þá nótt kólnaði allverulega i veðri þar. Samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar þurfti hún að hýsa átján manns um nóttina. Þó urðu ekki teljandi óhöpp af völdum þessa drykkjuskapar. Um fimmleytið á sunnudagsmorguninn var lögreglunni tilkynnt að maður hefði fallið fram af togarabryggjunni. Brugðu tögreglumennirnir skjótt við og tókst að bjarga mannin- um. Var hér um að ræða tvítugan heimamann, sem var eitthvað undir áhrifum áfengis. Þegar lögreglan kom á staðinn hafði verið kastað bjarghring til hans, en hátt er fram af togara- bryggjunni og ekki gott að komast þar upp. Lögreglan hnýtti reipi um einn af sínum mönnum, sem síðan var látinn síga niður og bjargaði hann manninum á þann hátt úr þessu kalda baði. Ekki varð piltinum meint af volkinu, en kalt var i veðri á Akureyri, ekki nema um 4 stiga hiti. -A.Bj. Skemmdar- vargurgripinn á hlaupum Brotizt var ínn að Skál- holtsstíg 2 aðfaranótt föstudags. Unnin voru nokkur skemmdarverk, en - lögreglan greip skemmdar- varginn skammt frá þar sem hann var á harðahlaupum á Bjargarstígnum. Mál þetta er i rannsókn. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.