Dagblaðið - 26.07.1977, Síða 7

Dagblaðið - 26.07.1977, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. JULt 1977. 7 Átökin milli Egypta og Líbýumanna: Bardagar hafa stöðvazt —segir Arafat, leiðtogi PLO, sem hefur miðlað málum Bardagarnir milli Líbýu- manna og Egypta hafa nú stöðv- azt í vestanverðri eyðimörk- inni, eftir að Arabaleiðtogar hafa miðlað málum, sagði Yasser Arafat foringi Frelsis- samtaka Palestínu I gær. Hann varð fyrstur Arabaleiðtoga til að reyna að miðla málum milli hinna stríðandi þjóða Egypta og Líbýumanna. Hann sagði að bardagar hefðu stöðvazt vegna samstöðu milli arabísku þjóð- anna og vegna þess að þær hefðu sameiginlegt markmið og settu markið hátt. Það var vitnað í Arafat í út- varpsstöð byltingasinnaðra Araba þar sem hann sagði, að það væri aðalstefnumark Frelsissamtaka Palestínu PLO að bardagar hættu og hann hafi unnið að því síðustu daga. Með þ ví að vinna að þessum málstað óg stöðva bardaga vinnum við að þeirri stefnu sem við höfum markað okkur, sagði Arafat. Erlendar fréttir 1 REUTER 8 Ekki hefur ennþá komið út yfirlýsing frá Líbýumönnum um að bardögum sé hætt. Forseti Alsír Houari Boumedienne kom til Trípolí í gær til að reyna að miðla málum milli Egypta og Líbýu- manna. Hann átti viðræður við forseta Líbýu, Muammar Al- Gaddafi. Þeir munu hafa hitzt tvisvar og ræðzt við um stríðið. Tilkynning kom frá líbýsku stjórninni í gær um að tveir háttsettir menn hefðu verið handteknir úr liði Egypta. Að sögn talsmanna Líbýumanna fá þeir góða meðferð og eftir sömu heimildum, voru þeir sveltir og niðurlægðir í egypzka hernum. Fréttir frá Egyptalandi er ekki samhljóða þeim sem koma frá Líbýu, og fremur en verið hefur frá upphafi átaka land- anna. Fréttir frá Egyptalandi herma að þeir hafi eyðilagt sovézka radarstöð í Líbýu og hún hafi verið á herflugvelli nálægt Tobruk. Fréttin kom rétt eftir að Sadat forseti Egyptalands hafi lýst yfir vopnahléi milli þjóðanna og gaf skipun um að Egyptar legðu niður vopn. Þegar tilkynningin kom um eyðileggingu radar- stöðvarinnar sögðu Egyptar i leiðinni að þeim væri full- kunnugt um allar radarstöðvar Líbýumanna. Talsmaður Egyptalands sagði einnig að Líbýumenn gæfu Sovétmönn- um fullt leyfi Jil að hafa að- stöðu 1 landinu og vera þar með alls konar tæki. Fréttir frá Egyptalandi herma að Sadat 'forseti landsins ætli að ávarpa þjóð sína í dag og væntanlega færir hann henni einhver boð um stríðið. Boumedienne Alslrforseti talaði við Sadat í sex klukku- stundir í gær og reyndi að miðla málum milli þjóðanna. t hálfopinberu málgagni stjórnarinnar segir að Sadat forseti hafi sagt við Alsír- forseta að ástæðan fyrir stríðinu væri sú að þolinmæði Egypta væri þrotin og þeir gætu ekki liðið uppivöðslulsemi Libýumanna undanfarið. Kína: Milljónir hermanna fagna valdatöku Tengs —fara i göngur um allt land til að lýsa stuðningi við hann Kínverski herinn hefur lýst ánægju sinni með að fyrrver- andi valdamaður í miðstjórn- inni og líklegur eftirmaður Chou-En-lai á sinum tíma, Teng Hsiao-ping, hafi verið hafinn til valda á ný innan flokksins. Teng er nú varaforsætisráð- herra, en það embætti hafði hann áður en hann féll í ónáð. Herinn lýsti einnig yfir ánægju sinni með að fjórmenningarnir, þar á meðal ekkja Mao for- manns, skyldu svipt öllum emb- ættum. Það voru vinstrisinnar með fjórmenningana i broddi fylkingar sem áttu sínn þátt I því að Teng féll i ónáð. Milljónir hermanna slógust í hópinn með almennum borgur- um og fóru í göngur um borgir í Kína til þess að fagna því að Teng væri kominn aftur í valdastól. Stærsta gangan var i Norðaustur-KIna I héraði sem er nefnt Liaoning. Þar gengu um þrjár milljónir manna til að fagna valdatöku Tengs. Hátt- settir menn í hernum og einnig í flokknum tóku þátt í þessum göngum og héldu á fánum og börðu bumbur Teng til heiðurs. Þessi mynd er af göngu þar semborln voru spjöld með f jórmenningunum. Þau áttu sinn þátt i þvi að Teng missti mynd af völd sín. Finnst úraníum á Irlandi? — Efnahagsbandalag Evröpu hef ur nýlega látiö um 500 þúsund sterlingspund til rannsókna Hver veit nema írar eigi eftir að fá mikið i aðra hönd fyrir úraníum, sem gæti leynzt í fjöll- unum þar í landi. Fjöll sem áhugasamir ferðamenn klífa venjulega gætu haft að geyma mikið af þessu dýrmæta efni. Efnahagsbandalag Evrópu hefur nýlega látið um 500 þúsund sterlingspund af hendi rakna til úraníumleitar I írska lýðveldinu. Það kæmi engum á óvart þó þar fyndist mikið af úraníum. Þeir sem þekkja vel til jarðsögu lands- ins eru mjög bjartsýnir á að eitt- hvað finnist. Meiri hluti allrar upphæðarinn- ar sem Efnahagsbandalagið veitir á þessu ári til úraníumleitar fer til Irlands. Það er kanadískt fyrir- tæki sem ætlar að leita að úraní- um þar. trland hefur löngum verið talið landbúnaðarland og er ekki frægt fyrir málma í jörðu. Þar hefur samt fundizt töluvert af málmum síðastliðin 15 ár. Töluvert virðist vera af blýi og sinki þar í jörðu. Nú er svo komið að írland er eitt af þeim löndum sem senda frá sér mikið af sinki. Uraníumleit á írlandi byrjaði fyrir nokkrum árum. Á síðasta ári töldu menn sig hafa fundið mikið af úraníum, þar sem mæld var mikil geislavirkni á ýmsum stöð- um. Jarðfræðingar segja að á Ir- landi svipi jarðlögum til þeirra staða sem úraníum hefur fundizt á. Sérstakle'ga er þess vænzt að úraníum finnist I suðvestur írlandi. Efnahagsbandalag Evrópu hef- ur mikinn áhuga á að vinna úraníumið er verið gæti að fynd- ist og hefur fjármagnað leit að þvi sem svarar til 30 til 67,5 prósent af kostnaði við hana. Finnist mikið af úranium á Ir- landi yki það mjög hernaðargildi landsins. Uraníum er notað í kjarnorkuvopn og það er mjög mikilvægt fyrir Efnahagsbanda- lagið að þurfa ekki að leita út fyrir þau lönd sem i því eru að þessu efni. írar hafa látið í ljósi þann ótta sinn að ekki verði tekið mikið tillit til umhverfisverndar, ef Margrét öfundsjúk út í drottninguna —segir í nýútkominni bók um hana Margrét prinsessa í Bretlandi er sögð vera uppreisnargjörn og hafa ekkert takmark í lifinu. Hún hefur orðið fyrir áhrifum frá óæskilegu fólki allt sitt líf. Þetta er að finna, ásamt öðrum upplýsingum um prinsessuna, í nýútkominni bók um hana, eftir Willi Frischauer, sem heitir „Prinsess without a cause“. Hin 46 ára gamla Margrét er sögð vera bezt gefin af meðlim- um konungsfjölskyldunnar. Margrét hélt alltaf að hún yrði drottning en ef hún hefði aðeins verið einhver frú Smith hefði hún orðið miklu álitlegri kona sem karlmenn hefðu hlaupið á eftir. Prinsessan er mjög þreyt- andi, að sögn stúlku sem starf- aði við hirðina. Hún hefur alltaf verið afbrýðisöm út í eldri systur sína, drottninguna. Haft er eftir drottningunni að Margrét hafi alltaf viljað fá það sama og hún. Margrét er sögð hafa misst mikið þegar faðir hennar dó, en þá leitaði hún til Peter Townsend. Hún fékk ekki að giftast honum, vegna þess að það var talið slæmt fyrir ríkið. Hann var fráskilinn og það var ástæðan. Arið 1960 giftist hún Ijós- myndaranum Anthony Arm- strong Jones, en það sást strax á Margréti hvernig henni likaði f hjónabandinu. Hún var mjög taugaspennt og óhamingjusöm, fitnaði og hugsaði ekkert um útlit sitt. vinnsla á úraníum hefst f landinu. að eyðileggja fallegt umhverfi til Það verði heldur ekki hikað við að nálgast þetta dýrmæta efni. Margrét prinsessa i Bretlandi er öfundsjúk út f systur sfna, drottninguna.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.