Dagblaðið - 26.09.1977, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 26.09.1977, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1977. «503? 4Í-.04 Glæsileg matarsett frá Glit með fjölbreyttum fylgihlutum - taQQO Búsáhöld & gjafavörur Glæsibæ Glæsileg bygging, sem liggur undir skemmdum Deilt um hlutverk skólans og staðsetningu Lofl og vosKÍr oru alþaklir rakablettum. DB-myndir Sv.Þ. Glœsileg bygging — en liggur undir skemmdum — Dagblaðið heimsótti Krísuvík fyrir skemmstu og fékk leið- sögn Hallgríms Jónssonar um skólahúsið en hann er réðs- maður á staðnum og hefur um- sjón með skólanum. Öhætt er að segja að skólabyggingin sé mjög glæsileg að utan en þegar inn kemur sést að raki og kuldi hefur farið mjög illa með húsið. Húsið er án hita því hitaveitan fór úr sambandi fyrir þremur vikum og hefur enn ekki verið gert við hana. Hallgrímur sagði að undanfarin haust hefði það sama gerzt. Þé er bleyta mikil á gólfum, sérstaklega á efri hæð hússins, og rakablettir á lofti og veggjum. A öllum svölum er 10-20 cm djúpt vatn og virðast niðurföll stífluð eða alls ekki fyrir hendi. Taldi Hallgrímur að það tæki marga mánuði að ná rakanum úr húsinu þegar hitaveitan kæmist aftur í sam- band en hún er fengin úr hver- um fyrir ofan skólabygginguna. „Ég verð að segja það að mér finnst það dálítið ævintýri að fara að byggja úti í þessari eyði- mörk,“ sagði Hallgrímur. „Þetta lokast allt á veturna. Það væri fínt að fá þetta undir svinabú,“ sagði hann og glotti. „En þetta hefur greinilega ver- ið vel byggt því það er mesta furða hvað húsið er lítið sprungið miðað við hvað það hefur staðið lengi svona. Endurskoðun ú hlutverki skólans Helgi Jónasson er formaður skólanefndar Krísuvíkurskól- ans og sagði hann að hlutverk skólans hefði verið endurskoð- að og væri hugmyndin sú að hann yrði starfræktur sem heimavistarskóli fyrir heimilis- laus börn. Skólanefnd hefur Hátt á annað ár hefur staðið ófullgerð skólabygging í Krísu- vík, skólabygging sem greini- lega hefur verið mjög vandað til í byggingu, en liggur nú und- ir skemmdum af raka og kulda. Upphaflega, þ.e. á árinu 1965, var ákveðið að stofnaður skyldi skóli fyrir börn með hegðunar- vandkvæði i Reykjaneskjör- dæmi og var honum ætlaður staður í Krísuvík og skyldu not- uð hús Hafnarfjarðarkaupstað- ar í Krísuvík í tilraunaskyni. Síðar var ákveðið að byggður yrðí skóli í samvinnu við sum- arbúðanefnd Þjóðkirkjunnar í Kjalarnesprófastdæmi og Jón Haraldsson arkitekt var feng- inn til að teikna húsið. Skólinn er byggður af Samtökum sveit- arfélaga í Reykjaneskjördæmi og Vestmannaeyjum að auki og greiða þau syeitarfélög 25% af kostnaðinum og ríkið greiðir 75%. Bygging skólans tafðist mjög en á henni var byrjað 1973 og henni skilað snemma árs 1976. Var skólahúsið þá frá- gengið að utan og tilbúið undir tréverk og málningu að innan. Kostnaður var þá orðinn um 90 milljónir króna og ljóst var að framlag á fjárlögum 1976 dygði ekki til að ljúka húsinu. Rakinn er viða mikill enda er enginn hiti á húsinu. beitt sér gegn því að hann yrði notaður fyrir börn með hegðun-, arvandamál. Þetta ætti að vera skóli þar sem ekki væri þörf á sérkennurum heldur heima- vistarskóli i háum gæðaflokki þar sem yrði mikið starfslið. I .umræðu manna á meðal hefði skólanum oft verið ætluð ýmis önnur hlutverk, svo sem kennsla treggáfaðra barna en það væri misskilningur. Skól- inn er byggður fyrir 30-40 börn og þar ætti að vera mjög góð aðstaða. Hinu væri þó ekki að leyna að menn greindi á um hvaða hlutverk skóiinn skyldi hafa og ljóst væri að hann yrði dýr í rekstri. Þá eru menn ekki á eitt sáttir um staðsetningu hans. Þá er einnig hugsanlegt að nota þessa byggingu undir eitthvað allt annað og haf a ýms- ir ágirnd á byggingunni. M.a. hefur komið til tals að hafa þar unglinga I sérfræðimeðferð svipað og gerist á unglinga- heimili ríkisins í Kópavogi. I þvi sambandi er bent á að unnt sé að skapa unglingunum vinnu við ylrækt og stutt er til Grinda- víkur í sambandi við sjósókn. „Að mínum dómi,“ sagði Helgi, „er ekkert annað að gera en að klára húsið sem fyrst og koma því í þá notkun sem æskilegust er og menn verða sammála um. A fjárlögum '77 var engin fjár- veiting til skólans en það stend- ur til að koma þeirri upphæð sem þarf inn í fjárlög ’78 til að Ijúka honum.“ Líklegt er að sá áfangi sem eftir er við skólann kosti um 50-70 milljónir. -JH. 40Ö10 « 10220 JÓNAS HARALDSSON

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.