Dagblaðið - 26.09.1977, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1977.
Reisn við Gullfoss
Kjallarinn
Undanfarið hefur töluvert
verið rætt um að bæta aðstöð-
una við Gullfoss. Það mætti
segja að kominn væri tími til en
lítil reisn hefur verið við foss-
inn síðan veitingasölu var
lokað, sem stðð á fossbrún.
Eflaust eiga margir góðar
minningar þaðan, enda
höfðinglegar veitingar ávallt
þar á boðstólum.
En nú undanfarin ár hefur
Gullfoss orðið að athlægi í aug-
um þjóðarinnar og eru salernin
sem þar eru orðin einkennis-
merki hans. Þessi salerni eru
öðru hverju í fréttunum, annað
hvort vantar pappír, þau eru
læst, vatnslaus eða eitthvað
álíka áhugavert. Semsagt
aðstaðan þar er til skammar og
mættum við gera betur. Gull-
foss er svo nátengdur sögu og
menningu landsins að full
nauðsyn er á að taka föstum
tökum að fegra umhverfi hans
og byggja verðugt hús á staðn-
um.
Mín hugmynd er að reisa
þriggja hæða hótel með veit-
ingastað og sundlaug. Nei, nei
ekki hótel segið þið. Jú, jú hótel
segi ég.
Þetta hótel verður ekki byggt
í hinum hefðbundna smekk-
leysisstíl, heldur gjörsamlega
falið inni í hamrinum, við inn-
keyrsluna til fossins. í kringum
gluggana verður raðað grjóti til
að skyggja á tilveru þeirra, gler
verður litað og siðan verður
hamrinum að nokkru leyti
raðað saman á ný utan á húsið,
þannig að það eina sýnilega
um þetta stórkostlega mann-
virki verður inngangurinn á
þriðju hæð. Sjá teikningar.
Getur svona hótel borgað sig?
Fríðrik Á. Brekkan
Já, það getur borgað sig. Allir
ferðamenn sem kæmu að foss-
inum yrðueinfaldlegaað ganga i
bæinn og kaupa veitingar, eða
að skipulagðar hópferðir eru
seldar með veitingar innifaldar
1 verðinu. Grimm sala yrði á
minjagripum inni. Ferðamenn
elska að kaupa glingur, það
þekkjum við sjálf úr Spánar-
ferðum okkar. Hver hefur ekki
komið heim með uppstoppað
taunaut eða plastpíanó með
mynd af Chopin frá Mallorca.
Reksturinn yrði fjárhagslega
nokkurn veginn tryggður, þvi
geysilegur fjöldi ferðamanna
myndi vilja gista við Gullfoss
og með bættum vegi myndu
sunnudagsbilstjórarnir af
höfuðborgarsvæðinu sækja
þangað og eyða peningum. Mín
hugmynd, gjörið svo vel.
Friðrik Ásmundsson-Brekkan.
Rissmynd af hamrinum eins og hann liti út eftir að hótelinu væri komið fyrir i honum: Góðir
útsýnisgluggar á „efstu hæð“ og minni á hótelherbergjum á neðri hæðum. Ailir sem að fossinum færu
yrðu að ganga niður í gegnum húsbygginguna í hamrinum en frá því og að fossinum yrðu góðir
gangstígar. Ofanjarðar er aðeins álkúla sem hýsir innganginn niður í bygginguna.
T/L/OERLt/kSAFJAUA
B/IASTÆÞ!
/
'NOffl-
s+/A/---5
TOZ.FUK £40t>AX.'A 40/tey/ZSW
OCy /iÍLGPlAH
s/ue/e/st fj/\kíæot oe*//or<u>
SBFt veKKF/eM&e*Fis/.4 urp/
4 F///M/Í/KHJM,
srEypr/e oö/s&os r/oae. /v/oue
AÞ OO MÖ-OF/í/\M FOSS//SOM
SV/)MFi/?//S/V SP&E/J6/ÞU/Z
/SO/ZT- - MÓ'£//J/MOC/AS œ*
/VOTU& SEM OPPPV/.L///C*
Ofy r/L i/E6/&s/o/z£vr//s&A.
INUOA/JC’UfZ n
V£/T/JJGfiZ N
SOWQUD
HSZOEKO,/
//eeoE/z&i
6>UFUOF}£> SU/JDIAUG (j
C/W06/1JZ
\
FOSi
6WPU/9 /SU4PE4///&
^ GO//&OST(6»U(£ AOPOSS/UOM
/MNúAHGtje 'A M/ZPHÆO j/fi. 2
pVEFSk'CJFÞ- UJZfiFHOTFl k/úPA f
GULLFCSS 1
LJ—I -1 t/
Rissmynd af núverandi aðstöðu við Gullfoss. Örin visar á hamarinn
sem höfundur hugsar sér að sprengdur verði til að koma hótelinu
fyrir.
'&C’/-/*/i<ICr
irr OLe/z.
MÆl * ST'íf-HOR.O
HPAUUAO VF/PQCXZb
Þverskurður af allri hugmyndinni sem ekki þarf frekari skýr-
ingar.
Læríð
að
fíjúga
Bóklegt námskeið fyrir einkaflugmenn hefst í Miðbæjar-
skólanum, st. 13, þriðjudaginn 4. okt. kl. 8.30.
Kennt verður:
Siglingafræði — Veðurfræði.
Flugeðlisfræði — Flugreglur.
Hjálp í viðlögum — Ágrip af fiugrétti.
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í þessu námskciði geta
fengið aliar uppl. i sima 28122.
gamla fiugturninum
Reykjavikiirllugvelli
Simi 28122.
//Í/GM//F
X
I
*
SOLUR
ZFSTrt H/Eí> M
hTTry
lib.
Rissmynd af grunnfleti efstu hæðar. Til vinstri inngangurinn, eldhús og bar. Salur á palli rúmar
ráðstefnuborð og minni veitingaborð. A lægri palli eru setsófar sem snúa að gluggum út að
fossinum.