Dagblaðið - 26.09.1977, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1977.
Ánægjulegir endurfundir:
Dóttirin hélt að faðirinn
væri dáinn — faðirinn vissi
ekki um tilvist dótturinnar
Undanfarið hafa sænsku
blöðin skrifað heilmikið um
Önnu-Fridu, sem er önnur af
stúlkunum í hinum fræga söng-
flokki ABBA og nýfundinn
föður hennar. Anna-Frida er
búin að „leita“ að pabba sínum
í þrjátíu og tvö ár eða frá fæð-
ingu árið 1945. Hann reyndist
vera vestur-þýzkur bakari.
Alfred Haase frá Karlsruhe, og
varð mikill fagnaðarfundur er
þau hittust í Stokkhólmi I fyrri
viku.
Þjóðverjastúlkur
litnar hornauga
Forsaga þessa máls er á þann
veg að móðir Önnu-Fridu bjó í
Balangen skammt fyrir utan
Narvik í Norður-Noregi í júní
1944. Dag einn hitti hún Alfred
Haase sem var liðsforingi í
þýzka hernámsliðinu. Móðirin,
sem hét Synni Lyngstad, lét það
ekki á sig fá þótt landar hennar
litu niður á þær stúlkur sem
eyddu meiri tíma en nauðsyn-
legt þótti með Þjóðverjunum.
Stúlkur þessar voru kallaðar
Þjóðverja-stúlkur og áttu þær
erfitt uppdráttar.
í hvert skipti sem Alfred átti
frídag tók hann hjólið sitt og
fór í heimsókn til Synni. Þau
hittust allt sumarið og fram til
15. febrúar að Alfred var flutt-
ur með hernámsliðinu til Dan-
merkur. Hann varð að segja
skilið við Synni — og hann fékk
aldrei að vita að 15. nóvember
fæddist þeim dóttir.
Skrifaði henni
Albert sagði i viðtali við
sænskt blað, eftir komuna til
Sviþjóðar, að hann hefði
fluttist búferlum til móður'
sinnar i Sviþjóð strax eftir að
hún skildi við Alfred í siðasta
sinn þennan kalda febrúardag.
Anna-Frida bjó með mömmu
sinni og ömmu i Svíþjóð og
hafði ekki hugmynd um tilvist
þessa þýzka föður síns.
Vissi aldrei mikið
Þegar Anna-Frida var
tveggja ára gömul dó móðir
hennar og var hún síðan alin
upp hjá ömmu sinni. Amma
hennar sagði henni allt sem
hún vissi, en það var ekki mjög
mikið.
Þær fluttu oft búferlum.
Amman var saumakona og þær
ferðuðust á milli staða þar sem
hún gat fengið einhverja vinnu.
Þegar Anna-Frida var á
hljómleikaferðalagi í Póllandi í
fyrra sagði hún í viðtali við blað
eitt að faðir hennar hefði verið
þýzkur og hefði hann ætlað að
koma aftur og kvænast móður
sinni að stríðinu loknu. Hann
hefði aldrei komið til baka.
„Skyldi hann enn vera á lífi?“
sagði hún.
Það var þýzka vikublaðið
Bravó sem tók sér fyrir hendur
að hafa uppi á föður önnu-
Fridu. I blaðinu var greint frá
ABBA-flokknum og því að
Anna-Frida ætti þýzkan föður
sem héti Alfred Haase. Sjálfur
sá hann ekki greinina í Bravo
en ættingjar hans bentu honum
á hana. Alfred hafði ekki hug-
mynd um að hann hefði eignazt
barn með hinni norsku vinkonu
sinni, — og því síður að dóttir
hans væri í einum frægasta
söngflokki heims. Hann gaf sig
fram við ritstjórn Bravo, sem
umsvifalaust gekkst fyrir
Feðginin gengu saman i haustrigningunni og höfðu um margt að spjalla.
féllust í faðma en seinna
sagðist hún muna frekar litið af
þvi sem hann hefði sagt. Henni
var svo mikið niðri fyrir. En
hann hefði haft orð á því hve
stórkostlegt það væri að þau
hittust eftir allan þennan tima.
Alfred bjó heima hjá önnu
og Benny I nokkra daga og þau
fengu tækifæri til þess að kynn-
ast. Anna komst að raun um að
hún átti tvö uppkomin hálfsyst-
kini, þrjátíu ára gamlan bróður,
Pétur, og þrjátíu og fjögurra
ára gamla systur, Karen. Faðir
hennar kvæntist árið 1940.
Hann trúði henni fyrir því að
hann hefði verið mjög tauga-
óstyrkur áður en af endurfund-
unum varð, allt frá þvi hann
frétti um tilvist dóttur sinnar.
Aður en Alfred hélt aftur til
Þýzkalands ákváðu þau feðgin-
in að i framtiðinni skyldu þau
skrifast á til þess að reyna að
kynnast hvort öðru. Einnig
hafa þau ákveðið að i framtið-
inni skuli þau hittast og að f jöl-
skyldur þeirra fái tækifæri til
þess að kynnast.
Svona geta ævintýrin gerzt
— Anna-Frida er mjög ham-
ingjusöm yfir því að hafa nú
hitt föður sinn, sem hún hélt að
hefði dáið i striðinu. Hann er
einnig mjög hamingjusamur
yfir að hafa fundið þessa dóttur
sina, sem hann hafði ekki einu
sinni hugmynd um að væri til.
Þýtt og endursagt A.Bj.
Sjáið þið hvað við erum lík, sagði Anna-Frida við blaðamennina.
skrifað Synni mörg bréf frá
Kaupmannahöfn, en hanh
hefði aldrei fengið neitt svar.
Einnig segist hann hafa skrifað
henni eftir að striðinu lauk og
hann var aftur kominn til
Þýzkalands, en bréf hans hefðu
aldrei komizt til skila.
En Haase hafði ekki hug-
mynd um að Synni Lyngstad
endurfundum heima i Sviþjóð.
Anna-Frida treysti sér ekki
til þess að taka á móti föður
sfnum á flugvellinum. Það
gerði aftur á móti eiginmaður
hennar, Benny Anderson, og
móðursystir hennar, Olive
Lunde.
Anna-Frida tók á móti
honum heima fyrir og þau
Alfred Haase varð furöu
lostinn þegar hann frétti af þvi
að hann ætti dóttur í Svfþjóð —
og hvílika dóttur! Eina af
stjörnunum í heimsfrægum
söngflokki, ABBA!