Dagblaðið - 09.12.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 09.12.1977, Blaðsíða 1
f í 3. ARG. — FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1977 — 275. TBL. RfiPSTJÓRM SlÐyMULA 12. AUGLÝSINGAR ÞyERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2. — AÐALSÍMI 27022 [ Albert í útvarpinu: | GEIRISERTRUAR- FLOKKI í „FLOKKS- EIGENDAFÉLAGINU" Géir . Halterimsson forsætis- ráöherra og menn hans eru í ,iSértrúaríÍQkki“ innan Sjálf- stæöisflók'ksíns, ságði Albert Gúðmundsson alþingismaður í útvarpsþætti í gærkvöldi. Albert sat fyrir svörum í þættinum spurt í þaula, sem Einar Karl Haraldsson, frétta- stjóri Þjóðviljans, stjórnaði. Albert nefndi oft þennan ,,sér- trúarflokk" og einu sinni talaði hann um „sértrúarflokkinn í flokkseigendafélaginu" í Sjálf- stæðisflokknum. Hann kvaðst vera stjórnar- andstæðingur. Framsókn hefði ráðið meiru en Sjálfstæðis- flokkurinn og stefnu Sjálf- stæðisflokksins hefði ekki verið fylgt fram eins og hún var ákvoðin á landsfundi. Hann kvaðst fylgjandi niðurskurði ríkisbáknsins, sem hefði vaxið alltof mikið. Albert sagði að margan ríkisrekstur mætti beinlínis leggja niður. Geir: „i sértrúarflokki Hann væri á öndverðum meiði við forsætisráðherra og sértrúarflokkinn um sam- skiptin vjð varnarliðið. Banda- ríkjamenn ættu ekki að vera herraþjóð okkar. í reynd væru þeir með eins konar fririki hér á landi. Albert kvaðst sammála Gunnari Thoroddsen iðnaðar- ráðherra um það, að Banda- ríkjamenn ættu að greiða okkur miklu meira en þeir gera. Þeir gættu að taka þátt í vegagerð og almannavörnum, greiða tolla og söluskatt og svo framvegis. Hins vegar væri hann andvígur leigugjaldi og teldi sig því ekki fylgja aronsku. Niðurstöður skoðana- könnunar S.jálfstæðismanna í Reykjavík um, hyort Banda- ríkjamenn ættu að taka þátt í kostnaði við vegagerð hér, sýndu hvernig landið lægi meðal Sjálfstæðismanna, hvað scm forsætisráðherra og Morgunblaðið segðu. En nú hefði það merkilega gerzt, að sértrúarmennirnir í Sjálf- stæðisflokknum væru innilega sammála Alþýðubandalags- mönnum i afstöðu til þessa máls. Þar flyttu þeir mál Alþýðubandalagsins og Alþýðu- bandalagið þeirra mál. HH „Jólatré með öllu" kostar 20 þúsund — sjá bls. 5 Jélaösin óvenju snemma á ferðinni: FÓLK VIRÐIST HAFANÆGA PENINGA — segja kaupmenn bls. 8 íhaldssömustu kjósendur norðan Alpafjalla? — sjá föstudagskjallara Vilmundar Gylfasonar bls. 10-11 „Það mætti flytja inn eggin eins og fóðurbætinn” — sjá bls. 9 „Jólin eru afmæli Jesú- barnsins" — lítil böm um jólin bls. 4 DB-mynd: Höröur Vilhjálmsson. Jólahreingerning Ólafur Jóhannesson: „GJALDEYRISYFIR- VÖLD EIGA AÐ KREFJ- AST UPPLÝSINGA” ,,Það er skoðun min, að gjald- cyrisyfirvöld eigi að gera kröfu til þess að fá i hendur fvrr- greindar upplýsingar urn eign Islendinga á dönskum banka- reikningum," segir Olafur Jóhannesson dóms- og við- skiplaráðherra i bréfi til Þjöð- viljans. þar sem hann gerir athugasemdir við leiðara i blaðinu. ..Komi í kjós. að eigcndur reikninganna hafi gerzt brot-~ legir við lög eiga þeir að sjálf- sögðu að taka afleiðingum þess en eiga ekki von á neinu „aflátsbréfi" _frá mér," segir Olafur. HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.