Dagblaðið - 09.12.1977, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1977.
Spumingar nokkuð einhæfar
þegar sama fólkið spyr alltaf
SpurnifVj
dagsír.-
Hvers
Finnur Sigurðssan hringdi:
Það er vegna spurningaþátt-
arins í sjónvarpinu á laugar-
dagskvöldum sem ég hringi.
Mér finnst þátturinn anzi
skemmtilegur en aldeilis ófært
að alltaf skuli vera sama fólkið
sem spyr út úr. Spurningarnar
vilja með því móti verða nokk-
uð einhæfar.
Eins finnst mér að vel mætti
skjóta einhverju skemmtiatriði,
t.d. hljómsveit, inn á milli atrið-
anna.
Þá langar mig til þess að láta
í ljósi ánáegju mína yfir leikriti
Davíðs Oddssonar, Róbert
Hvernig væri að hafa bleika
pardusinn sem fastan lið strax
á eftir fréttunum eða áður en
fréttirnar hefjast?
Vantar meira
sjónvarps-
efni fyrir
börn og
texta fyrir
heyrnar-
daufa
Sólrún Guðjónsdóttir húsmóðir
skrifar:
Ég vil taka undir skrif A.J. í
DB 17. nóv. sl. um að sjónvarps-
dagskráin sé til háborinnar
skammar hvað börnin snertir.
Það vekur furðu mína að ekki
skuli vera ætluð dagleg stund í
sjónvarpinu fyrir börnin. Það
þyrfti þó að sjálfsögðu að vera
fyrir þeirra háttatíma og fyrir
börn á öllum aldri. Timinn
fyrir kvöldfréttir er mjög hent-
ugur, 20—30 mín. daglega. Sá
tími kæmi þá fyrir utan Stund-
ina okkar á sunnudögum.
Aldrað fólk hefur líka yfir-
leitt mjög gaman af barnaefni.
Einnig finnst mér að vera
ætti texti á skerminum fyrir
heyrnardaufa. Þeir geta ekki
fylgzt með því sem fram fer í
sjónvarpinu. Mér finnst það
fólk sem heyrir illa eða alls
ekki vera skilið útundan. Því
skyldi þetta fólk ekki fá
að,,heyra“ hvað er í fréttunum
eins og við hin, sem höfum öll
skilningarvit í lagi.
Eg vil leyfa mér að skora á
forráðamenn sjónvarpsins að
taka þessi tilmæli mín og ann-
arra til greina. Heyrnardaufir
geta ekki hlustað á útvarp og
þvf ætti að gera þeim kleift að
njóta sjónvarpsins að fullu. En
þeir missa af öllu sem fylgir
islenzkt tal.
Ég vona svo sannarlega að
þetta verði betrumbætt hið
fyrsta. Ég vil í leiðinni nota
tækifærið og beina þeim óskum
til þeirra sem velja lög í útvarp
ið. Leikið þið meira af léttum
og skemmtilegum jólalögum í
útvarpi allan desembermánuð.
Það kemur öllum í jólaskap.
Elíasson kemur heim frá út-
löndum. Það var nú nokkuð
betra en það sem Hrafn Gunn-
laugsson hefur látið frá sér fara
eins og Blóðrautt sólarlag og
Undir sama þaki.
M
Kóbert Eliasson kemur heim
frá útlöndum var mjög
skemmtilegt, segir bréfritari.
Fleiri hafa látið í Ijósi ánægjv
sína með leikritið. Ekki var þaí
bara sagan sem var sniðug
heldur allur leikur, uppsetning
og framkvæmdin öli. Aiveg tii
sóma og prýði. Þarna eru Þor-
steinn Gunnarsson og Anna
Kristín Arngrímsdóttir i hiut-
verkum sínum.
Björk Guðniundsdóttir er aðeins 11 ára Reykvíkingur.
Hiín syngur, hún spilar og hún setnur lög.
Nú hefur hún sungið
á plötu tneð aðstoð nokkurra af þekktustu
popptónlistarmönnutn landsins.
Þetta er einstök plata setti á án efa eftir að veita
ceskufólki á hvaða aldri setn er tnikla áncegju.
GÓÐA SKEMMTUN!
FÁLKIN N*
óskarðu
þér
í jólagjöf?
Spurt á dagheimilinu
Laugaborg
Sigrfður Kristfn 5 ára: Eg ðska
mér Paddington til að hreyfa og
tvær brúðubækur, Andrés stór-
bónda og Mikka mús.
Sólbjörg Harðardóttlr, 5 ára:
Barbí-dúkku og föt handa henni
og líka eldhús handa henni.
Ingibjörg Þórðardóttir,
Brúðuhús með brúðu i.
5 ára.
Sigga Lára Sigurðardóttir 5 ára:
Barbí-bil, sundlaug, sleða og
Barbi-hús.
Linda Ragnarsdóttir Hansen 5
ára: Barbi-hús og Barbí-dúkku
Sófa handa henni og líka tröppu.