Dagblaðið - 09.12.1977, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1977.
ÚRVAL
Skrifborðsstólar
í m jög
fjölbreyf f u úrvali.
Framleiðandi:
Stáliðjan Kópavogi
KRÓMHÚSGÖGN
Smiðjuvegi 9,
Kópavogi - Sími43211
Fióamarkaður
verður haldinn laugardaginn 10.
desember íleikskóh A nanda Marga,
Einarsnesi 76 Skerjafirði.
Mikið úrvalafbókum, grammófón -
plötum, barnqfötum, eldhúsahöldum,
batík, kökum, heimatilbúnum
úrvalshlutum ogfeira
SÍMTÖL KISSINGERS
í OPINBERRIEIGU
Afrit af cinkasimtölum
Henry Kissingers fyrrum utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
eru opinber eign samkvæmt
dómi undirréttar í Washington
í gær.
Símtölin, sem voru rituð upp
af einkariturum hans og síðan
vélrituð, höfðu verið gefin
bandaríska ríkinu með því skil-
yrði að efni þeirra yrði ekki
birt innan tuttugu og fimm ára
eða fimm árum eftir dauða
Kissingers. Atti seinni dag-
setningin að gilda. Afritin ná
yfir tímabilið frá því Kissinger
varð öryggismálaráðgjafi
Nixons þáverandi forseta í
janúar árið 1969 og þar til hann
hætti störfum sem utanríkis-
ráðherra eftir ósigur Fords
forseta seint á árinu 1976.
Dómarinn sem kvað upp
úrskurðinn sagði að símtölin
hefðu farið fram í vinnutima
Kissingers sem opinbers starfs-
manns og afritin auk þess
unnin af opinberum starfs-
mönnum.
Málið vegna skjalanna var
höfðað að tilhlutan nefndar
blaðamanna, sem vilja auka
upplýsingafrelsi um opinber
gögn. Talsmaður nefndarinnar
sagði að hann byggist við að
málinu yrði áfrýjað til æðri
dómstóla en nefndin væri
ákveðin í að fá úr þessu máli
skorið.
Nefndin hefur einnig krafizt
ýmissa gagna frá tíð Nixons í
Hvíta húsinu en forsetinn fyrr-
verandi tapaði þvi máli fyrir
Hæstarétti.
Meðfero Bikos
fordæmd
Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna samþykkti harðorða
ályktun í gær þar sem málsmeð-
ferð í sambandi við hið svo-
nefnda Bikomál i Suður-Afríku
var fordæmd.
Biko var svertingjaleiðtogi,
sem lézt í fangelsi. Niðurstaða
dómstóla þar í landi var að lát
hans væri ekki sök fangavarða.
Þykir það meira lagi vafasöm
niðurstaða af þeim sem kynnt
hafa sér málavexti.
■ t ályktun Allsherjarþingsins
er þess krafizt að pólitískir
fangar verði allir látnir lausir í
Suður-Afríku og öllum funda-
bönnum og heimildum til hús-
leita og fangelsunar verði
aflétt.
1 samþykktinni segir éinnig
að dauði Steve Bikos muni
ávallt verða minnisvarði um
baráttu fyrir frelsi allra manna
og jafnrétti allra kynþátta.
Matar- og kaffistell í sérflokki
MATARSTELL:
12grunnirdiskar
12djúpirdiskar
1 fat, 36 cm
1 fat,33cm
1 sósukanna
2 salatskálar
1 kartöfluskál
Verökr. 29.750.-
SENDUM í PÓSTKRÖFU
KAFFISTELL:
12bollapör
12meðdiskar
1 sykurkar
1 rjómakanna
1 kökudiskur
Verðkr. 19.750.-
LITIR: Mosagrænt með svörtum röndum
Koníaksbrúni með brúnum röndum
Kamgult með brúnum röndum
BUSAHOLD OG GJAFAVORUR
MIÐBÆ OG GLÆSIBÆ
SÍMAR 35997 OG 86440
Sovétríkin:
Kaffitáríð
sjaldséð
ogdýrt
Kaffiunnendur í Sovét-
ríkjunum fengu nýlega
skýringu á því að kaffi hefur
nánast algjörlega horfið úr
almennum matvöruverzlun-
um í landinu á síðustu
mánuðum.
í lesendabréfi í vikublaði
einu þar í landi svarar fuli-
trúi stjórnvalda því. að
vegna mikillar hækkunar á
verði kaffis á heimsmarkaði
hafi orðið að draga mjög
saman kaffiinnflutning.
Sagt er að árið 1975 hafi
innflutningurinn numið
60.000 tonnum en sé kominn
niður í rúm 44.000 tonn í ár.
Fulltrúinn sagði einnig að
ríkisstjórnin hefði niður-
greitt kaffi mjög mikið á síð-
asta ári. Hefði það verið gert
til að standa við það heit að
verðhækkanir yrðu ekki í
Sovétríkjunum.
Kaffi er mjög vinsæll
drykkur í Sovétríkjunum en
svar stjórnvalda í vikuritinu
mun vera það fvrsta sem frá
þeim berst varðandi kaffi-
skortinn sem verið hefur
síðan í sumar.
Franskir
sjómenn
íverkfallá
Franskir sjómenn á
frönskum ferjum sem sigla
milli Frakklands og
Englands hafa ákveðið að
fara í tveggja daga verkfall
á mánudaginn.
Tilefni verkfallsins er að
félagið sem gerir ferjurnar
út og er í eigu brezkra og
franskra aðila hefur t i 1-
kynnt að það ;et!i að fækkú
fcrjum undir frönskum fána
vegna þess að h'agkvæmara
sé að hafa á þeim brezka
áhöfn.
Krtt laun Bretanna siigð
hegri en franskra sjómanna.