Dagblaðið - 09.12.1977, Page 16
(20
DAGBLAÐIÍ). FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1977.
2 l>eillapdi
jólaplötur
Lag: Flytjandi:
Ó helga barn í Betlehem G. Rúnar Júliusson
Jólanótt María Baldursdótlir
Heima Jólunum á Geimsteinn
Föngum G. Rúnar Júlíusson
Ég kem heim um jólin Engilbert Jensen
Lag: Flytjandi:
Ein er hátið Geimsteinn
Litla jólabarn Maria Baldursd.
Þorláksmessukvöld Þórir Baldursson
Jólasnjór Geimsteinn
Vetrarnótt Þórir Baldursson
Lag:
Snæfinnurínjókarl
Hin helga nótt
Hátið í bæ
Undrastjarna
Klukkn'ahljóm
Heims um ból
Flytjandi:
Björgvin Halldórsson
María Baldursdóttir
G. Rúnar Júlíusson
Hljómar
Þórir Baldursson
Engilbert Jensen
Lag: Flytjandi:
Jólasveinninn minn Hljómar
Hvítjói Björgvin Halldórss.
Gefðu mér gott í sk. María Baldursd.
Friðurájörð G. Rúnar Júliusson
Hvers barn er það Hljóntar
Jóiasnjór Gunnar Þórðarson
Fiörug og Vél
f lull plata
Ný stórkostleg plata með Hljómsv. Geimsteinn þar sem Þórir
Baldursson, G. Rúnar Júlíusson o.fl. hljómlistarmenn innlend-
ir og erlendir sýna á sér sína bestu hlið.
Dreifingaraðilar:
FÁLKINN HF. Suðurlandsbraut8 Sími 84670 Reykjavík
GEIMSTEINN Skólavegi 12 Sími 92-2717 Keflavík
Rita Hayworth
TIL LÍFSINS A NÝ
/
Rita Hayworth sem fyrr á árum
baðaði sig í ljóma þess að vera
þekktasta kyntákn Bandaríkj-
anna er nú sögð staurblönk og
lifir algerlega á eignum dðttur
sinnar, Yasmin Khan.
Ekki aðeins borgar Yasmin
reikninga móður sinnar heldur
segir hún henni algerlega fyrir
verkum. Hverja hún megi hitta,
hvað hún megi kaupa og hvert
hún megi fara. Yasmin sem er 27
ára stjórnar þannig goðinu fyrr-
verandi.
„Peningarnir sem Rita átti sjálf
eru uppurnir og hún segist vera
blönk," segir mágkona Ritu,
Susab Casino. „Yasmin hefur
stöðugt samband við lögfræðing
móður sinnar og þau í sameiningu
drottna yfir Ritu. Hún segist ekk-
ert geta gert án leyfis þeirra.“
Rita er ekki einu sinni sögð
geta opnað bankareikning án
leyfis lögfræðingsins. Yasmin
hefur þrjá til fjóra menn í þjón-
ustu sinni til þess eins að líta eftir
móður sinni. Þeir fylgjast með
hverri hennar hreyfingu og gæta
þess að hún fari ekkert ein. Henni
er ekki leyft að tala við neinn’
ókunnugan. Það eina sem hún má
fara er í boð með völdu fólki og
svo má hún leika golf. Þetta segir
að minnsta kosti nýjasti vinur
Enn í dag er Rita þrátt fyrir hrukkótt andlit og augljósan aldur kona
sem karlmenn hljóta aiitaf að iíta tvisvar á. Setningin „það er eitthvað
við hana“ á hvergi betur við.
Ritu grunaði ekki þegar þessi mynd var tekin fyrir 19 árum að dóttir
hennar sem hjá henni stendur ætti eftir að stjórna lífihennar.
Ritu, Robert Bardey, sem er,
franskur rithöfundur. Og hann
hefur eftir henni að hún hafi
enga valkosti. „Ég hef ekki
lengur útlit mitt, ég á ekki lengur
peninga, ég er ekki lengur
stjarna. En ég má vera í húsinu
mínu ef ég geri það sem mér er
sagt,“ segir hún.
En húsið er ekki lengur hennar
samkvæmt lögum. Hún tapaði því
í fyrra vegna skulda við Yasmin.
Þar fær Rita að vera í náð dóttur
sinnar og með ýmsum skilyrðum.
Til dæmis því að hún færi í með-
ferð við alkóhólisma, sem hún
gerði.
En Yasmin er sögð hafa gert
þetta með heill móður sinnar
fyrst og fremst í huga. Rita er
hætt að drekka og er í mjög góðu
ástandi líkamlega jafnt sem and-
lega og því vill Yasmin halda. Og
það virðist ganga furðu vel.
Þar til í sumar hefur stjarnan
fyrrverandi verið sliguð af vín-
drykkju og fjárhagsörðugleikum.
Skatturinn hefur tekið sitt, lúxus-
lífið annað og fyrrverandi eigin-
mennirnir fimm það þriðja. Hún
er sögð vera afskiptalaus með öllu
af þessum körlum sínum hvað fé
snertir og ekkert fær hún lengur
frá kvikmyndaverunum.
Þetta er sérlega slæmt því Rita
er sögð brenna í skinninu að gera
ýmislegt en getur það ekki fjár-
skorts vegna.
Þegar Rita kom af sjúkrahús-
inu nú í sumar var Yasmin búin
að taka við stjórp fjármálanna. Og
eftir það hefur hún haldið móður
sinni algerlega niðri. Bardey,
vinur Ritu, segir að mjög
dapurlegt sé að koma heim til
þeirra mæðgna, í rauninni mun
dapurlegra en nokkur kvikmynd
geti verið. Ekki sé lengur kampa-
vín og kavíar á borðum heldur
þurfi gestirnir yfirleitt að koma
með það með sér sem þeir vilji
snæða. Hann hafi sjálfur orðið að
fæða Ritu af og til í allt sumar.
Rita'gengur að hans sögn í 10 til
20 ára gömlum flíkum. Og hún
var svo blönk í júlí f sumar að
sögn Bardeys að hún varð að fá
hjá honum lán til þess að láta
gera við sjónvarpstæki sitt.
En hann komst þó hjá því að
lána henni féð því að Tiffany leik-
húsið í Hollywood bauð henni
laun fyrir að koma fram á sér-
stakri sýningu á myndum hennar.
Hún þekktist boðið og bað um að
fá litsjónvarpstæki í laun, sem
hún auðvitað fékk.
En nú er Yasmin víst heldur
farin að slaka á taumnum því þau
stórtíðindi bárust nýlega að Rita
hefði keypt sér ný föt.
Hvort Rita kemur aftur fram í
kvikmyndum veltur algerlega á
Yasmin. Hún segir að við sig verði
menn að tala ef þeir hafi eitthvað
Yasmin Khan prinsessa hefur
strangt taumhald á móður sinni
og segir það vera með heill
hennar í huga.
að bjóða móður sinni því það sé
hún sem valdið hafi í ljósi þeirra
atburða sem gerðust í sumar.
Nýlega óskaði blaðamaðurinn
frægi Barbara Walters eftir við-
tali við Ritu en hefur ekki fengið
ákveðið svar ennþá.
Bardey hefur sagt: „Lífið hefur
ekki tekið silkihönzkunum á þess-
ari konu. Frægð hennar i kvik-
myndunum færði henni hvorki
auð né gleði. Ekki gerðu þeir það
heldur hinir frægu eiginmenn
hennar og elskhugar. Núna er
hún að borga fyrir það sem hún
áður naut.“
DS þýddi og endursagði.
Vinur Ritu, Robert Bardey, sem
segir Ritu svo bianka að hún getl
ekki látið gera við sjónvarpið sitt.