Dagblaðið - 09.12.1977, Síða 28
r
Kostnaður
vegna próf kjöra
Arni Vilmundur
Vilmundur og Ámi
lögðu fram rúm 100
þúsund af eigin fé
Vilmundur (iyK'ason lagði
fram 110.570 krónur af eigin fé
í kosningabaráttu sína í próf-
kjöri Alþýðuflokksins í Reykja-
vik. Útgjöld hans voru um 158
þúsund en alls 10 aðilar
greiddu 48 þúsund í kosninga-
sjóð hans.
40 þúsund voru greiddar í
húsalcigu að (Sarðastræti 2.
Uppsetning þriggja sima
kostaði um 32 þúsund og
kostnaður við þá síma varð um
12 þúsund. Fimm þúsund fóru í
leigu á Átthagasal vegna
fundar, 27 þúsund í auglýsingu
í Dagblaðinu. Prentun á
dreifibréfi í Brciðholt kostaði
um 23 þúsund. Fundaraug-
lýsingar í útvarpi kostuðu um 9
þúsund og aðrar auglýsingar í
útvarpi urðu tæp fjögur
þúsund. Tvær sendibílaferðir
með húsgögn kostuðu um 4.500
og rafmagn og hiti urðu um
þúsund krónur.
Kostnaður við kosninga-
baráttu Árna (iunnarsson í
prófkjöri .Alþýðuflokksins á
Norðurlandi vestra varð um
300 þúsund. Hann lagði út af
eigin fé um 107 þúsund. Þar af
fóru rúmar 40 þúsund í
gistingu, rúmar 11 þúsund i
mat. Bensín kostaði hann
tæplega 24 þúsund og 31.500
krónur fóru í prentun.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
reikningar frambjóðenda í
prófkjöri stjórnmálaflokks hér-
lendis eru birtir opinberlega.
-HH.
Skáldið á
heimavelli
„Kveð ég um konu og mann og
konan hún eldaði og spann....“
Skáldinu, lagasmiðnum og
söngvaranum Megasi tekst
sjaldan eins vel upp og þegar
hann skemmtir Háskólastúdent-
um. Hann var því svo sannarlega í
fínu formi er hann tróð upp í
Félagsstofnun stúdenta fyrir nær
fullu.húsi í gærkvöld.
Skáldið hóf hljómleikana á
tveimur alþekktum húsgöngum,
„Presturinn í stólinn sté, stóð upp
og pissaðe" og „Piss piss og
pelamál". Síðan rak hvert lagið
annað í nærfellt tvær klukku-
stundir. Megas söng nokkur lög af
plötum sínum, önnur, sem verða
væntanlega á einhverri af næstu
plötum og að sjálfsögðu gat hann
ekki neitað sjálfum sér um að
syngja nokkur ættjarðarlög og
sálma svona í bland.
Slíkur var fögnuðurinn í
Félagsstofnun stúdenta að hljóm-
leikunum loknum að skáldið var
klappað þrisvar sinnum upp.
Söng hann þá Guttavísur og hafa
stúdentar sennilega aldrei skilið
þann kveðskap betur.
AT/DB: Hörður Vilhjálmsson.
BR0TINN 0G SÁR
EFTIR BÍLSLYS
Sex ara gamall drengur liggur brotinn og með höfuðsár í
Akureyrarspítala eftir umferðarslys í gær. Varð slysið á Hörgár-
braut rétt fyrir klukkan sex. Ætlaði drengurinn þar yfir götuna
en bíll sem kom aðvífandi náði ekki að hemla í tæka tíð. Líðan
drengsins var eftir atvikum í morgun en slysið telst til hinna
alvarlegri vegna höfuðhöggsins.
í nótt snjóaði verulega á Akureyri. Er þar nú alhvítt og
þæfingur í umferðinni. Eitthvað var að létta til í morgun.
ASt.
Mikið meiddur í gjörgæzlu
Ellefu ára gamall drengur liggur mikið meiadur á höfði i
Borgarspítalanum eftir umferðarslys á Ægissíðu í gær. Var
drengurinn á leið yfir götu er fólksbifreið bar að og lenti á
honum. Hlaut drengurinn mikið og alvarlegt höfuðhögg og var
aðgerð gerð á honum eftir komu hans á spítalann. í morgun var
drengurinn meðvitundarlaus á gjörgæzludeildinni.
Annað slys varð á mótum Laugavegs og Höfðatúns í gær. Þar
ók bíll inn á Laugaveginn og lenti piltur á vélhjóli fyrir honum á
aðaibrautinni. Var talið að þar væri um fótbrot að ræða en
alvarleg meiðsli hlaut hann ekki.
ASt.
EINUNGIS TOPPLISTAMENN
Á LISTAHÁTÍÐINNI1978
Finnlandi, Noregi og Sviþjóð að
sameinast um popplistafólk
sem síðan kæmi fram á öllum
hátíðum. Islenzkir listamenn
munu einnig koma frarn í
tónlistardagskrá hátíðat'innar
og má þar nefna Manuelu
Wieslcr og Halldór Haraldsson.
Kammersveitina. og haldnir
verða tónleikar með verkum
Jöns Þórarinssonar og Jöns
Nordals.
Lislahátiðin 1978 verður
dagan 3.-16. júní.
-A.Bj.
„Þetta verður tvímælalaúst
glæsilegasta listahátið sem
haldin hefur verið hér á landi.
Fram koma eingöngu lista-
menn, sem eru á hátindi
frægðar sinnttr. Jafnframt hafa
erlcndu listtimennirnir aldrei
verið fleiri," sagði Hrafn
Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóri Listahátiðar 1978. á fundi
rheð frétþamiinnum í g:er. A
fundinttm var einnig Kristinn
Ilallsson, varaforntaður fram-
kvæmdanefndarinnar. Erik
Siinderholm, forstjóri Norrtena
hússins, og Vigdís Finnboga-
dóttir lcikhússtjóri. Aðrir í
framkvæmdanefndinni eru
Atli Heimir Sveinsson og Thor
Vilhjálmsson.
Meðal erlendu lista-
mannanna sem hingað koma
eru tenórinn Pavarotti, list-
dansarinn Barisnikoff. norska
söngkonan Elisabeth Söder-
striint, jazzpíanistinn Osear Pet-
erson og félagar hans, Grieg
Dttoið, Strokkkvartett Kaup-
mannahafnar, rússneski sellö-
leikarinn Rosloprovieh. Perl-
man og Harrel sem leika tríó
með Askenas.v, en þáttur hans í
hátíðinni er að vanda stór. Þá
má nefna Grikkjann Theó-
dórakis og írska þjóðlaga-
flokkinn The Dubliners, cn
ekki hefur enn fengizt
staðfesting á hingaðkomu
þeirra.
A listahátið kemur frant
popphljömsveit, en ekki hefttr
enn verið ákveðið liver hún
verður. Komizt hefur verið að
samkomulagi við popphátiðir í
frfáíst, áháð dagblað
FÖSTUDAGUR 9. DES 1977.
Prófkjör
Framsóknar
íReykjavík
Framboðs-
fresturrennur
út í dag
Framboðsfrestur í prófkjör;
Framsóknarflokksins í Reykja-
vík rennur út kl. 5 í dag. Próf-
kjör verður bæði vegna alþing-
is- og borgarstjórnarkosninga
og verður kosið um fjögur efstu
sætin á báðum listum. Prófkjör-
ið fer fram 21. og 22. janúar nk.
Dagblaðið hafði samband við
Jón Aðalstein Jónasson, for-
mann fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, í morgun
og innti hann eftir framboðum.
Hann sagði að aðeins hefðu
borizt fá þeirra framboða sem
þeir vissu að von væri og kæmu
eftir hádegið í dag. Það væri
því ekki hægt að gefa upp
hvaða framboð hefðu borizt en
það yrði gert kl. 5 í dag er
fresturinn rynni út.
Dagblaðið hefur fregnað að
vænta megi framboða Eiríks
Tómasonar aðstoðarmanns
dómsmálaráðherra og Guð-
mundar G. Þórarinssonar, auk
Kristjáns Benediktssonar og
Alfreðs Þorsteinssonar borgar-
fulltrúa f prófkjör fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar.
I prófkjöri til alþingis-
kosninga er að vænta framboðs
Þórarins Þórarinssonar, Einars
Agústssonar, Sverris Berg-
manns, Kristjáns Friðrikssonar
og fleiri
-JH.
Vestmannaeyjar
Prófkjör
Sjálfstæðis-
flokksins
um helgina
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum fer fram um
næstu helgi, 10. og 11. desember.
Þrjú framboð bárust til kjör-
stjórnar, þeirra Arna Johnsen
blaðamanns, Björns Guðmunds-
sonar útgerðarmanns og
Guðmundar Karlssonar fram-
kvæmdastjóra.
Að sögn Páls Scheving for-
manns kjörstjórnar, hefur lítið
verið um fundarhöld, nema hvað
Árni hélt fund í gærkvöldi. Fram-
bjóðendur hafa enn ekki sett upp
skrifstofur og kosningabaráttan
er mjög friðsamleg. Vestmanna-
eyingar velja sér nú mann á lista í
stað Guðlaugs Gíslasonar. sem
lýst hcfur því yfir að hann gefi
ckki kost á sér oftar. Sá háttur er
hafður á að sýslurnar á Suður-
landskjörda>mi og Vestmanna-
eyjabær velja hver sinn mann á
listann og síðan er mönnum raðað
eftir atkvæðastvrk eða rcynslu
cins og þegar Ingólfur Jónsson
var í fyrsta sæti 1959, þótt
Guðlaugur Gíslason hefði fleiri
atkvæði á bak við sig. Guðlaugur
var þá að byrja sína þingsetu.
Eins kemur nú til greina að
Steinþór frá Hæli verði í fyrsta
sæti þótt Vestmannaevjafram-
boðið hafi e. t.v. fle.iri atkvæði.
Atkva'ðagreiðsla utan kjör-
fundar verður i Reykjavik í dag
frá kl. 14 —19 og lýkitr þá. en
verður einnig.á rnorgun i Vest-
ntannaeyjum. Þegar hafa 7 greitt
atkvæði i Reykjavík og u.þ.b. 30 í
Vestmannaeyjum.
JH