Dagblaðið - 16.12.1977, Page 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977.
Bandaríkin:
CARTER SETUR MET
í SKATTHEIMTUNNll
ekkjur, aldraðir og f atlaðir njóta góðs af
Öldungadeild Bandaríkja-
þings lauk störfum sínum fyrir
jólaleyfi meö því að samþykkja
skattalagabreytingar, sem eru
þær mestu í sögu Banda-
rikjanna. Félagslegur kostnað-
ur er þar efstur á blaði.
Carter forseti lofaði því i
kosningabaráttunni að auka
framlög til aldraðra, heilsu-
lausra, ekkná og munaðar-
lausra að miklum mun.
Hefur honum tekizt að koma
frumvarpi þess efnis í gegnum
báðar deildir þingsins í
Washington á fyrstu mánuðum
kjörtímabils síns.
Þykir það vel að verið hjá
forsetanum en aftur á jnóti
hefur hann átt í verulegum
erfiðleikum með annað stór
stefnumál sitt þegar til kasta
kjörinna þingfulltrúa hefur
komið.
Orkusparnaðarfrumvarp
hans er í mestu ógöngum,bæði 1
öldungadeild og fulltrúadeild.
Þingmenn hafa allt á hornum
sér þegar til kastanna kemur og
virðist forsetinn ekki njóta
nægilegs stuðnings í þessum
efnum nema þá hjá hagsmuna-
aðilum erlendis.
Samþykkt frumvarpsins um
almannabætur, er þó verulegur
sigur fyrir Carter forseta og
mun einnig hafa bein áhrif á
afkomu um það bil 33 milljóna
íbúa Bandaríkjanna.
Þrátt fyrir ýmislegt and-
streymi og gagnrýni, sagði for-
setinn í gær að hann teldi sam-
starfið við þingið i Washington
hafa verið gott á þeim tíma sem
hann hefði verið við völd.
Forustumenn demókrata
segja nú að miklar lfkur séu til
þess að méginatriðin í orku-
málafrumvarpi Carters fái af-
greiðslu í öldungadeildinni
eftir áramót.
Frumvarpið, sem gerir ráð
fyrir miklum olíu og berisín-
sparnaði Bandaríkjamanna,
hefur mætt mikilli andstöðu
hagsmunaaðila í olíuiðnaði.
Kaffisopinn hækkar
Kaffisopinn virðist ætla að
hækka á næstu mánuðum
Guatemala, sem er eitt af stærn
kaffiframleiðendum í heimin
um, hefur tilkynnt að kaffi-
baunauppskeran á næsta ári
verði að líkindum þriðjungi
minni en gert var ráð fyrir.
Forsvarsmenn kaffiframleið-
enda þar í landi segja það stafa
af miklum þurrkum sem verið
hafa í Mið-Ameríku á síðustu
mánuðum.
Fyrr í þessum mánuði hafc
talsmenn samtaka kaffifram-
leiðenda í tveihi öðrum ríkjum
Mið-Ameríku tilkynnt svipaða
niðurstöðu. Er þar átt við E1
Salvador og Costa Rica.
í Brasilíu, sem er stærsti •
ræktandi kaffis í heimi, mun
uppskeran verða mun minni á
næsta ári en undir venjulegum
kringumstæðum, ef marka má
yfirlýsingar samtaka kaffifram-
leiðenda.
m
Allt %
í hátíðarmatinn
frá
Vörðufelli
Svínakjöt imiklu úrvali,
nýttogreykt.
Hangikjöt, nýreykt
Lamba-hamborgarahryggir
LondonLamb
Nautakjöt
Kjúklingar
Rjúpur
Vörðufell, ,Si
Op/ð Þverbrekku 8, Kópavogi, Opiö
föstudag ^sími42040 -44140^ /auganlag
tilkl. 19.30 tilkl. 22.001
Bandaríkin
Fórnardýr Mansons
fundið
Lögreglan í Los Angeles sagði í
nótt, að hún héldi sig hafa fundið
leifar beinagrindar staðgengils-
leikara sem hippaleiðtoginn
Charles Manson var sekur fund-
inn um að hafa myrt fyrir átta
árum.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að líkamsleifar sem taldar eru
vera af Donald Shea, sem var 36
ára er hann hvarf, hefðu fundizt I
gröf á bóndabæ þeim er Manson
og fylgismenn hans bjuggu á, er
leikkonan Sharon Tate og sex
aðrir voru myrtir árið 1969.
Manson, sem nú er 43 ára, og
tveir fylgismanna hans, Steve
Grogan 27 ára, og Bruce Davis, 24
ára, voru sekir fundnir um
morðið á Shea við tvenn réttar-
höld á árunum 1971 og 72 án þess
að lík hans kæmi í leitirnar.
Charles Manson afplánar nú
lífstíðarfangelsi, fyrir aðild að.
morðunum á heimili Sharon Tate,
morðið á Shea og auk þess var
hann sekur fundinn um að hafa
myrt óþekktan listamann.
Er talið að beinafundur þessi
kunni að hafa veruleg áhrif á
möguleika Mansons á þvf að
hljóta nokkurn tíma náðun en það
vakti mikla athygli er ljóst varð,
eftir að dauðadómar voru numdir
úr gildi í Kaliforníu, að sá mögu-
léiki var fyrir hendi innan nokk-
urra ára.
TÖSKUHÚSIÐ
Úrvalaf
leðurtöskum
fráEnglandi,
Þýzkalandi.
Ítalíu
ogvíöar
Verö frá
kr. 5.370.-
Póstsendum
Tóskuhúsiö Laugavegi 73, sími 15755