Dagblaðið - 16.12.1977, Síða 30

Dagblaðið - 16.12.1977, Síða 30
30 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977. 1 AUSTURBÆJARBÍÓ I Sími 11384, BLÓÐUG HEFND (The Deadly Trackers) Hörkuspennandi og mjög viðburðarík, bandarísk kvikmynd í litum. Aðalhlutverk: Richard Harris Rod Taylor. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5, 7 og 9. I GAMLA BIO D Síml 11475. ODYSSEIFSFERÐ ARIÐ 2001 MGMmsiaii> STANLEY KUBRICK PR0DUCTI0M Hin heimsfræga kvikmynd Kubricks endursýnd að ósk f jölmargra. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5 og 9. 1 NYJA BIO D Síml 11544 JOHNNY ELDSKY Hörkuspennandi. ný kvikmvnd i liUim og með ísl. texta. um sam- skipti Indiána og hvítra manna i Nýju Mexikó nú á diigum. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. I HASKOIABÍO D Sfmi22>4e, BYSSUMAÐURINN (Th Shootist) Hin frábtera „Vestra“-mynd með John Wayne í aðalhlutverkinu. Aðrir leikarar m.a. Lauren Bacall, James Stewart. Islenzkur texti. Þetta er hressandi mynd í skamm- deginu. Endursýnd kl. ö, Tónleikar kl. 8.30. Sinji 31182. BLEIKI PARDUSINN (The Pink Panther) Leikstjóri: Blake Edwards. Aðalhlutverk: Peter Sellcrs. David Niven. Endursýnd kl. 6, 7.10 og 9.15. íslcnzkur texti. 1 BÆJARBIO D , Slmt 50184 í FAÐMILÖGREGLUNNAR Sprenghlægileg amerísk litmynd. Leikstjóri er Woody Allen sem einnig leikur aðalhlutverkið i myndinni. .Islenzkur texti. Sýnd kl. 9. 1 LAUGAR ASBÍO Slml 32075 ! BARÁTTAN MIKLA SA EKSPIOSIVSOM MORCENDACENS ___ NYHEDER —« SlAGCf DER SATTE VERDENIBRAND Ný, japönsk stórmynd með ensku tali og ísl. texta, — átakanleg kæra á vitfirring(i og grimmd styrjalda. Leikstjóri: Satsuo Yamamoto. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. SIÐASTA LESTARRÁNIÐ Hörkuspennandi bandarísk mynd um óaldarlýð á gullnámusvæðum Bandarikjanna . á síðustu öld. Aðalhlutverk: George Peppard o.fl. Endursýnd kl. 7.15 og 11. Bönnuð börnum. JARÐSKJALFTINN Endursýnum í nokkra daga þessa, miklu hamfaramynd. Aðalhlut-j verk: Charlton Heston, Ava- Gardner og George Kennedy. Sýnd kl. 5 Bönnuð börnum innan 14 ára. 1 STJÖRNUBÍÓ D SM1893$) HARRY 0G WALTER GERAST BANKARÆNINGJAR Frábær ný amerísk gamanmynd í litum með úrvalsleikurunum Elliot Gould, Michael Caine, James Caan. íslenzkur texti Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. SÍmf 164471 ARENA Afar spennandi og viðburðarík ný bandarísk Panavision litmynd með PAM GRIER — MARGARET MARKOW Bönnuð innan 16 ára. Sýndkí.3, 5, 7,9 og 11. Utvarp Sjónvarp Sjónvarp f kvöld kl. 21.20: Kastljós GJALDEYRISMÁLIN — brask, ferðamannagjaldeyrir, gjaldeyrisspörun ogfleira „Það er meiningin að taka fyrir gjaldeyrismálin frá ýmsum hliðum, allt frá gjaldeyris- sparnaði í bönkum og ferða- imannagjaldeyri til svarta- markaðsbrasks með gjaldeyri," sagði Guðjón Einarsson frétta- maður hjá sjónvarpinu er við hann var rætt um Kastjós kvöldsins. Ásamt Guðjóni kemur Svala Thorlacíus fyrrverandi fréttamaður hjá sjónvarpinu fram en hún hefur ekki sézt á . skjánum í háa herrans tíð. „Það verður rætt við Ólaf Jóhannesson viðskiptaráðherra- og einhvern frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans um framkvæmd þess eftirlits. Talað verður um ferðamannagjaldeyrinn og það brask sem leiðir af því hve miklar hömlur eru á honum," sagði Guðjón. Eflaust verður í þættinum einnig rætt um þau mál sem ofar- lega hafa verið á síðum dagblað- anna og snerta þessi. Þar má nefna gjaldeyriseign landsmanna í erlendum bönkum og hvort braskað hafi verið með gjaldeyri í sambandi við skipakaup og fleiri tegundir af viðskiptum við útlönd. Margir eru mjög gramir yfir þvf hversu takmarkaðan gjaldeyri menn hafa fengið til utanlands- ferða og hversu mikið mál það virðist vera í hvert sinn að útvega gjaldeyrinn. Á meðan fá ýmis fyrirtæki leyfi til eyðslu á gjald- eyri sem er margföld á við það' sem einstaklingum er veitt. En það er víst í þessu sem öðru að’ ekki er sama Jón og séra Jón. Umræðurnar í Kastljósi ættu því að geta orðið verulega fjörugar, eins og svo oft áður. DS Óiafur Jóhannesson viðskiptaráð- herra verður spurður spjörunum úr um gjaldeyrismáiin í Kastljósi í kvöld. Úfvarpíkvöld kl. 21.05: Gestagluggi Gestagluggi ,Huldu Valtýs- dóttur verður fjölbreytilegur að vanda í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21.05 og stendur í fimm- tíu mínútur. Hulda kvaöst aó- spurð meðal annars ætla aö ræóa við doktor Jónas Kristjánsson for- stjóra Handritastofnunar um Fóstbræðrasögu, sem hann hefur verið að lesa í útvarpið undanfarið. Síðan verður rætt um Torfu-, samtökin og hina umdeildu Bern- höftstorfu. Þau Guðrún Jóns- dóttir formaður samtakanna og Hörður Ágústsson listmálari sem einnig er í stjórn samtakanna sitja fyrir svörum. Samtökin berj- ast eins og allir vita fyrir því að Torfan fái að standa en skipulags- yfirvöld hafa nú ekki verið á því. Torfusamtökin halda því fram að Torfunni megi hreinlega ekki ,farga, þar sem um menningarleg og söguleg verðmæti sé að ræða, og Reykjavíkurbær verði aldrei samur og jafn verði hún eyðilögð. - DS Bernhöftstorfan og Fóstbræðrasaga í~ Bernhöftstorfanseturóneitanlega svip á miðbæinn. En húsunum hefur litið verið haidið viðogþau fengið að grotna niður að mestu í friði. Þó tóku Torfusamtökin sig til og máluðu húsin f.vrir nokkuð iöngu. En síðan hefur ekkert verið gei^t. Þessi mynd er tekin áður en húsin voru máluð. Útvarp FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 14.30 Mifldegissagan: „Á skönsunum" efftir Pól Hallbjörnsson. Höfundur les (3). 15.00 Miðdegistónleikar: Fró útvarps- stöðvunum í Frankfurt og Genf. Flytjendur: Sinfóníuhljómsveitin í Frankfurt oj* Suisse Romande hljóm sveitin. Stjórnendur: Eliahu Inbal og Wolfgang Savvallisch. Einleikari: Annie Fiseher. a. Adagio og fúga í C-dúr (K546) cftir Mozart. b. Píanókonsert nr. 3 i c-moll op. 37 eftir Beethoven. 15.45 Lesin dagskró næstu viku. ,16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veóurfregnir). 16.20 Popp. 17.30 Utvarpssaga barnanna .„Hotta- bych" eftir Lagín Lazar Jósifovitsj. Oddný Thorsteinsson les þýóingu sina (6): 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veóurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.50 Viðfangsefni þjóðfólagsfræða. f>Ór- björn Broddason lektor flytur erindi um þróun fjölskyldunnar og framtíó hennar. 20.15 Messa í B-dúr fyrir einsöngvara, kór, hljómsveit og orgel eftir Joseph Haydn. Flytjendur: Eva Csapo sópran. Axelle Gall alt. David Kíibler tenór, Artur Korn bassi. Marek Kudlicky orgel- leikaii. sinfóniuhljómsveit og kór austurríska útvarpsins. Stjórnandi: Ernst Márzendorfer. (Frá austurriska útvarpinu). 21.05 Gestagluggi. Hulda Valtýsdóttir stjórnar þaMtinum. 21.55 Þjóðlög fró Kanada. 22.05 Kvöldsagan: Minningar Ara Arnalds. Einai' Laxness les (3). Orð kvöldsins ó jólaföstu. 22.30 Veóurfregnir. Fréttir. 22.45 Áfangar. l’msjónarmenn: Ásmundur Jónsson o« Gurtni Rúnar Agnarsson. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.