Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 1
h
r#
/
/
rf frýálst,
'nháð
dagblað
3. ARG. — FIMMTUDAGUR 22. DES 1977 — 286. TBL. RITSTJÖRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11. AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2. — AÐALSÍMI 27022.
STYRKIR Tl POLmSKU
BLADANNA HÆKKAÐIR
UM YFIR 50 PRÓSENT
fffi
• j r •
DJÓDVIIJINN
Lögðu blessun
)fir kaupin
á Víöishúsinu
Þingið stórhækkaði i gær
styrkina til pólitisku blaðanna.
Meðan allar aðrar tillögur frá
einstökum þingmönnum voru
felldar, var samþykkt með 38
atkvæðum gegn 12 tillaga frá
Þórarni Þórarinssyni (F),
Benedikt Gröndal (A) og Ragn-
ari Arnalds (AB) um að gera
kleifa yfir 50 prósent hækkun á
blaðastyrkjum.
Tillagan var orðuð sem
heimild til rikisstjórnarinnar
um „að kaupa dagblöð fyrir
stofnanir rikisins, allt að 250
eintök af hverju blaði, umfram
það sem veitt er til blaðanna 1 4.
grein fjárlaga." í 4. grein fjár-
laga var svo kveðið á að 40
milljónir skyldu fara „til
blaðanna samkvæmt nánari
ákvörðun rikisstjórnarinnar að
fengnum tillögum stjórnskip-
aðrar nefndar."
Eins og kunnugt er hefur
Dagblaðið hafnað rikisstyrk en
hin blöðin þiggja hann. Kaup á
250 eintökum af pólitisku
blöðunum fimm þýða 22,2
milljónir á ári. Með þessu heim-
ildarákvæði voru blaðastyrkir
þvi hækkaðir um yfir 50%.
Sjá nánar um slaginn um
fjárlögin á baksiðu og bls. 16.
• HH
YFIRVINNUBANNINU
AFLÉTT Á MIÐNÆTTI
— „reynum að fljúga til allra staða í dag,”
segir Sveinn Sæmundsson
„Það er þungu fargi af manni
létt,“ sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flugleiða, í
viðtali við Dagblaðið í morgun
en á miðnætti í nótt aflýstu
flugumferðarstjórar yfirvinnu-
banni því sem nú hefur staðið í
tæpa viku. „Það var orðin mikil
pressa á okkur og ef ekkert
hefði verið hægt að gera í dag
fyrir utan venjulegt flug, er ég
hræddur um að allt að 200
manns hefðu orðið að bíða enn
le.ngur eftir flugi.“
Sveinn sagði að reynt yrði að
fljúga á alla staði innanlands i
dag en snemma i morgun var
enn ófært til Vestmannaeyja.
Þar voru tólf vindstig, en talið
var að þar myndi Iægja er liði
á daginn.
„Við fljúgum því til Horna-
fjarðar, Akureyrar, Norð-
fjarðar, Isafjarðar, Þingeyrar,
Patreksfjarðar, Egilsstaða,
Húsavikur og Sauðárkróks i
dag,“ sagði Sveinn ennfremur.
„Það verður flogið eins lengi og
hægt verður en i yfirvinnu-
banninu gátum við ekki flogið
eftir kl. átta á kvöldin."
Sveinn sagðist ekki vita
hvort einhver þota flugfélags-
ins yrði tekin til innanlands-
flugs, „það hafa orðið tafir
vegna veðursins að undanförnu
á utanlandsfluginu, en ef það
dregst úr hófi að koma fólki út
á land þá er líklegt að þota
verði fengin til aðstoðar á að-
fangadag.“
Miklar birgðir af vörum
liggja fyrir til flutnings en tölu-
vert magn var sent af stað með
bifreiðum og skipum til áfanga-
staða.
„I dag munum við hins vegar
fljúga sérstaklega með vörur til
Þingeyrar, þar vantar allar
vörur, mjólk hvað þá annað,“
sagði Sveinn. „En að endingu
vil ég lýsa yfir mikilli ánægju
okkar Flugleiðamanna með að
þessu yfirvinnubanni er af-
létt.“
- HP
Flugumferðarstjórar:
„BANNIÐ VAR FARIÐ AÐ
K0MA NIÐUR Á
SAKLAUSU FÓLKI...”
„Við viðurkennum að yfir-
vinnubann okkar var farið að
koma niður á röngum aðila og i
gærkvöldi, eftir að okkur hafði
borizt beiðni frá flugfélögun-
um, tókum við þá ákvörðun að
Fyrstu flugvélarnar voru að
leggja af stað norður i land
snemma i morgun. Þessir far-
þegar voru að fara til Akureyr-
ar. DB-mynd Sv. Þorm.
aflýsa banninu," sagði Guðni
Olafsson flugumferðarstjóri,
einn stjórnarmanna félags
Flugumferðarstjóra i viðtali við
Dagblaðið I morgun. „Okkur
fannst ekki hægt að þetta
bitnaði á skólafólki utan af
landi og teljum að með þessum
aðgerðum höfum við vakið
athygli á þeim rangindum sem
við teljum okkur beitta."
Sagði Guðni að launakröfur
þeirra yrðu sennilega einfald-
lega sendar lögfræðingi til inn-
heimtu og kæmi málið þá senni-
lega til kasta dómstólanna.
„Jólin eru að nálgast og fólk
bíður eftir þvi að komast til
sinna heima,“ sagði Guðni enn-
fremur. „Við vorum i raun
búnir að aflétta yfirvinnubann-
inu i gærdag, þá var flogið eins
og hægt var, það var ekki okkur
að kenna að tafir urðu, eins og
flugfélögin hafa látið i skina.“
- HP
Hlýr og góður loftbelgur
Jólasýning Þjóðleikhússins er nú sem næst fullbúin enda ekki
margir dagar til stefnu þar til frumsýnt verður. 1 þetta sinn verður
jólasýningin ballettinn Hnotubrjóturinn eftir tónlist Tsjaikovskis.
Þjóðleikhúsið fær marga góða gesti í heimsókn sem taka þátt í
sýningunni. Hnotubrjóturinn er ein viðamesta sýning sem sett
hefur verið upp í Þjóðleikhúsinu. — DB-mynd Bjarnleifur.
Víðishúsið íþinginu:
HVAÐ
MUNAR
UM EINN
SLÁTUR-
KEPP?
— Sjá bls. 16
Grammófónninn
— aldarafmæli
merkilegs
heimilistækis
— Sjá bls. 8
íslenzki bóndinn
sýnirrann-
sóknarstarfi
lítinnáhuga
— Sja bls.9
Boðið uppá
dollaragrín
- Sjá bls. 16
Jóla-BOGGI
ífeluleik
— ogeinhver
lesenda DB fær
úrvals Grundig-
litsjónvarpstæki
fyrirað finna
fimm Bogga i
felum. Hvarer
Boggiídag?