Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977. Blaðburðarböm óskast strax í INNRI-NJARÐVÍK eftiráramót. Uppl. hjá umboðsmanni DBA ísíma2249 Bandaríkin: VARUÐARMIÐAR k SAKKARÍNID Verzlanir I Bandaríkjunum sem selja vörur sem innihalda gerfisykurinn sakkarin eiga að setja viðvörunarspjöld þess efnis nærri dyrum sínum. Það er Matvælaeftirlit Bandaríkj- anna sem ákveður þessar aðgerðir en þær eru framhald á aðgerðum og rannsóknum á sakkarfni sem hófust fyrr á þessu ári. Matvælaeftirlitið vildi banna algjörlega sölu sakkaríns á meðan athugun færi fram á sannleiksgildi þeirrar tillgátu vísindamanna að efnið gæti valdið krabbameini. Virðast athuganir þeirra benda til að neyzla tilraunadýra á miklu magni efnisins valdi veikinni. Carter forseti ákvað hins vegar að leyfa notkun sakka- rfns næstu 18 mánuði en nákvæmar rannsóknir færu fram á þvf á sama tfma. Hinar nýju reglur eiga að ganga f gildi 21. febrúar næstkomandi. Astralía: Nýr formaður Verka- mannaflokksins í stað Whitlams Bill Hayden fyrrum fjár- málaráðherra í stjórn ástralska Verkamannaflokksins var f gær kjörinn leiðtogi flokksins f stað Gough Whitlam fyrrum for- sætisráðherra sem sagði af sér formannsstöðunni eftir kosn- ingaósigur flokksins f þing- kosningum 10. desember sfðast- liðinn. Hayden var kjörinn af þingmönnum flokksins og barðist um sætið við fyrrum iðnaðarráðherra Lionel Bowen. Báðir voru þessir menn ráð- herrar í stjórn Verkamanna- flokksins ástralska undir for- sæti Whitlams, en hún var rek- in frá völdum árið 1975 af full- trúa Elisabetar drottningar. Hún er þjóðhöfðingi Ástralíu og taldi fulltrúi hennar að vegna tæps þingmeirihluta, auk nokkurra óreiðu í meðferð rfkisfjármuna, gæti Whitlam ekki stjórnað. Verkamannaflokkurinn gerði sér miklar vonir um að sigra f þingkosningunum fyrr í þessum mánuði en þær vonir brugðust hrapallega. Argentína: Blaðamaður tekinn af öryggislögreglu Argentfnskur blaðamaður, sem undanfarið hefur starfað sem fréttaritari spænskra og brezkra blaða var handtekinn á heimili sfnu í gær, að sögn föður hans. Hann sagði einnig, að tveir menn sem að eigin sögn voru starfs- menn öryggislögreglu Argentfnu hefðu komið með börn Luis Guagnini en svo heitir blaða- maðurinn, heim til hans. Hefðu þeir sagt sér að sonur hans hefði veriö handtekinn grunaður um að tilheyra spillingar- og eyðingaröfl um. Að sögn sömu manna hefði starfsfélagi blaðamannsins einnig verið handtekinn. Luis Guagnini var áður fastráð- inn blaðamaður en hætti þeim störfum skömmu eftir valdatöku Argentfnuhers f marz árið 1976. Eftir það var hann fréttaritari ýmissa erlendra blaða. Faðir blaðamannsins sagði að hann hefði horfið sjónum ætt- ingja sinna og vina f gærdag og hefði þeim ekki tekizt að afla neinna upplýsinga um afdrif hans né hvar hann væri að finna. Argentfnsk stjórnvöld hafa mjög tíðkað það á sfðustu mánuð- um að handtaka fólk skyndilega. Oft á tfðum fréttist ekkert meira af hinum handteknu. BARSETT Nýkomin vönduð barsett, glæsileg jólagjöf VERZLUNIN ÞÖLL Veltusundi 3 Sími 10775 Ódýrar jólastjörnur Hyacintur, Hyacintuskreytingar, kerti og skreytingaefni. Okkar sérgreineru leiðisskreytingar. Útikerti. Garðshorn er við Fossvogskirkjugarð Garðshorn, Fossvogi Sími40500 Hermenn hafa verið nokkuð algeng sjón i Argentínu þó ekki séu þeir þar daglegir gestir. Öryggislögregla landsins er aftur á móti alræmd og handtekur fólk án fyrirvara hvort sem það er statt á heimilum sínum eða á götum úti.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.