Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977. 9 N Sár reynsla vísindamanna landbúnaðarins: Islenzki bóndinn sýnir rann- sóknarstarfínu Iftinn áhuga — 250 milljónum varið til rannsókna í ár en sjaldan minnst á að auka slíkt starf „Niöurgreiðslur og styrkir, svo gagnleg sem þessi ráð geta verið, skapa ekki langvarandi bót á vandamálum íslenzks landbúnaðar“ segir í til- kynningu er blaðamönnum var afhent á fundi er þeir áttu með dr. Birni Sigurbjörnssyni for- stjóra Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins og nokkrum vísindamönnum stofnunar- innar fyrir skömmu. „Vegna vandamála land- búnaðarins hafa bændur haldið marga fundi nýlega og rætt um leiðir til að leysa eða létta vand- ann. Þá er sjaldan minnst á að eflarannsóknarstarfseminasem leið til að finna úrlausnir. Þótt allar framfarir í landbúnaði eigi rót sina að rekja til rannsóknar- og þróunarstarf- semi á ýmsum sviðum sýnir islenzki bóndinn rannsóknar- starfinu yfirleitt litinn áhuga. Þessu þarf að breyta". Þannig segir I hinni skriflegu yfir- lýsingu Rannsóknarstofnunar- innar og ennfremur: „Ef tsland á ekki að dragast aftur úr í framleiðslu á land- búnaðarvörum verðum við að efla rannsóknir til að endur- bæta efni og aðferðir við bústörfin og finna nýjar búgreinar og nýjar leiðir við að nýta fslenzka náttúru". Á fundinum kom fram að rannsóknir á vegum Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins á líðandi ári kost- uðu um 250 milljónir króna auk nokkurra erlendra styrkja. Við stofnunina starfa á sumrin nær 80 manns, en nokkru færra á vetrum. Af þessu er um 40 háskólamenntað fólk. Rannsóknarverkefnin eru framkvæmd um land allt, bæði í aðalstöðvunum að Keldnaholti og Hvanneyri, á tilraunastöðv- unum Korpu í landi Korpúlfs- staða, Þormóðsdal I Mosfells- sveit, Hesti I Borgarfirði, Reyk- hólum á Barðaströnd, Möðru- völlum f Hörgárdal, Skriðuklaustri í Fljótsdal og á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Þá eru og unnin verkefni I sam- vinnu við ýmsa aðra s.s. Land- græðsluna, Garðyrkjuskóla og bændaskóla. Markmið rannsóknanna er að lækka framleiðslukostnað, finna nýjar leiðir, bæta nýtingu framleiðslunnar, vernda nátt- úruna, létta störf bóndans og auka öryggi búrekstursins og gera hann óháðari veðráttu. -ASt. BÍÓGESTIR Á ÍSLANDI 2,4 MILUÓNIR — sætanýting þó aðeins 30,8% — áhrif sjónvarpsins fara minnkandi Bíógestir á Islandi sl. ár voru 2 milljónir þrjú hundruð og níu þúsund, en þar af voru bíógestir á höfuðborgarsvæðinu 1702 þúsund. Gestum kvikmynda- húsanna fækkaði um rúmlega 100 þúsund frá árinu áður, en þá voru gestir 2410 þúsund. Mjög greinileg aukning hefur verið á aðsókn kvikmynda- húsanna eftir þá lægð, sem varð með tilkomu sjónvarps árið 1966. Borgarbíó Akureyri 128 og svo má lengi telja. I kaupstöðum landsins, að Selfossi meðtöldum, eru 38 kvik- myndahús og eru flest sætin í Háskólabíói eða 976 og Austur- bæjarbió kemur næst með 787 sæti og Gamla Bíó er hið þriðja með 488 sæti. Minnsta bfóið í Reykjavík er Hafnarbió með 393 sæti, en minnsta bíóið i kaupstöðum landsins er Tjarnar- borgarbfó á Ölafsfirði með 78 sæti og Bolungarvíkurbfó tekur 88 f sæti. -JH. Þótt sætanýting kvikmynda- húsanna sé að meðaltali aðeins rúmlega 30% eru þó sumar myndir sem fylla húsin viku eftir viku. Myndin sýnir biðröð við Stjörnubíó, er Morðsaga var sýnd. Arið áður en sjónvarpið hóf göngu sfna voru gestir kvik- myndahúsanna tæplega 2.3 milljónir, en árið 1970 voru gestirnir aðeins rúmlega ein og hálf milljón talsins. Sfðan hefur gestum fjölgað ört fram til ársins 1975, en örlitill samdráttur varð eins og fyrr segir á sfðasta ári. Þrátt fyrir það að aðsókn hafi aukizt þetta mikið er sætanýting að jafnaði aðeins 30.8% á höfuð- borgarsvæðinu, en 3.8% i öðrum kaupstöðum og á Selfossi. Börn sem fóru f bfó á sl. ári voru 295 þúsund, þar af 170 þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Sæti, sem kvikmyndahúsin bjóða upp á eru 9707, þar af 5265 á höfuðborgarsvæðinu en þeim mun fjölga nokkuð nú um jóla- leytið með tilkomu kvikmynda- hússins Regnbogans, en þar verður sýnt í fjórum misstórum sýningarsölum. A sfðasta ári voru sýndar alls 2962 langar kvik- myndir á landinu og munar þar mestu að utan höfuðborgar- svæðisins eru sýndar fjöldamarg- ar myndir, þar sem hver mynd er aðeins sýnd einu sinni eða tvisvar. Reykjavfkurbióin sýndu t.d. frá 23 myndum og upp f 40 myndir, en Vestmannaeyjabfó 220, Selfossbíó 199, Bfóhöllin Akranesi 171, Dalvíkurbíó 193, ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR' OG ÞJÓnU/Tfl /iVallteitthvaó gott í matinn NYJA ABBA PLATANER K0MIN!!!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.