Dagblaðið - 22.12.1977, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
„ÁFENGIÐ ER EINN MESTI
ÓVINUR ÞJÓÐARINNAR”
— segirbréfritari
Nokkrir menn eru svo lániausir að þeir geta ekki notað áfengi í
hófi. Sem betur fer eru þó ekki allir landsmenn í þeim hópi. Hins
vegar er það staðreynd að óhófleg neyzla áfengis virðist vera ástæða
fyrir mörgum ólánsatburðum sem gerast hér á landi. En hvort
algert áfengisbann bætir eitthvað úr skák skal látið ósagt. Þeir sem
á annað borð vilja hafa áfengi um hönd finna sér alltaf einhverjar
leiðir til þess að verða sér úti um það.
1730-6804 hringdi:
Áfengisbann. Það hefur
mikið verið rætt um áfengis-
vandamálið í fjölmiðlum og er
það vel. Þar hafa mörg sjónar-
mið komið fram. Mín skoðun er
að eina rétta lausnin á þessum
málum sé að setja á algjört
áfengisbann. Flestir lands-
manna vita að við íslendingar
græðum ekkert á áfenginu,
langt frá því. Heidur töpum við
stórum upphæðum á ári hverju
vegna áfengisins. Það er stað-
reynd að áfengið er mjög mikill
slysavaldur og hversu mörg
skyldu dauðaslysin vera orðin
vegna neyzlu áfengis og ann-
arra eituriyfja hér á landi. Það
er komið upp stofnunum fyrir
drykkjusjúklinga hér á Islandi
og kostnaðurinn við þær skiptir
tugum milljóna á ári. Þá er
ónefndur sá stóri hópur að-
standenda þessa fólks, en
sorgir og erfiðleikar þess eru
mjög miklir. Ég tel fráleitt að
bæta eigi bjórnum ofan á allt
saman. Hann yrði bara viðbætir
og kveikjan að drykkju sterk-
ara áfengis. Það er dálítið at-
hyglisvert að margir af þeim,
sem sent hafa bréf til Radda
lesenda og sagzt vera með
bjórnum eru meira og minna
hlutdrægir, því mörgum finnst
bjórinn góður og þeir hugsa
bara um sjálfa sig en ekki um
velferð þjóðarinnar. Afengið
er einn mesti óvinur þjóðarinn-
ar. Gróðinn af áfengissölunni
er enginn þegar alit kemur til
alls en samt sem áður er þessi
óþarfa drykkur til sölu hér á
landi. Hvenær endar þessi
saga?
TAKK
Nú hefur verið tekin upp
hraðbraut fyrir þá sem kaupa
tíu hluti eða færri í Hagkaup.
Fyrir nokkru birtist bréf hér á
lesendasiðunni þar sem lesandi
fór fram á að fá slíka hraðaf-
greiðslu í stórmörkuðunum.
Hagkaup á þakkir skilið fyrir
þessa ágætu þjónustu sem við-
skiptavinirnir fá. DB-mynd
Bjarnleifur. ^
— Eg gcl ekki fundið hiifuðið á skjaldbiikuna
liérna i kassanum. Hefur þú séð það. .lúlli? spyr
jólasx eiusslrákurinn.
— Maður verður bara að nola hiiftiðið á s'jálfum
sér. segir Júlli.
— Kn af hverju skríður þú inn í skjaldbökuna.
Hiifuðið af lienni er ekki þar.
— Nei, réll er það, segir Júlli. en eflir atlgnablik
kippi ég þessu í lag.
— Ilvað segirðu um þella? Gelum við ekki notazl
við þella svona? spyr Júlli. Við hiifum engan tima
til að leila að liinu eiginlega hiifði skjaldbökunnar.
Það eru bara Iveir dagar IiI jóla.