Dagblaðið - 22.12.1977, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
„Undir sama þaki alveg stórgóður”
— segirbréfritari
Karl Axelsson (5480-2994)
skrifar:
Athugasemd við grein S.F.
Alveg varð ég forviða þegar
ég rak augun f grein hér f blað-
inu1 þann 7.12. eftir manneskju
sem titlaði sig S.F.
I þessari grein sinni á bréf-
ritari ekki nðgu sterk orð til
að lýsa vanþóknun sinni á þátt-
unum Undir sama þaki. Finnur
hann þeim flest til foráttu og
telur að þeir eigi bezt heima f
barnatíma sjónvarpsins.
Langar mig nú til að svara þvf
sem þar kemur fram f örfáum
orðum.
Bréfritari furðar sig á þvf
fyrst f grein sinni, hversu fáir
hafi opinberlega látið f ljós
skoðun sína á þáttunum. Svarið
við þeirri spurningu er aug-
ljóst, fólk var yfirleitt svo
ánægt með þættina að það hafði
ekki yfir neinu að kvarta.
Fullyrðing bréfritara um að
hann hafi hvergi fundið neinn,
sem gaman hafði af þáttunum,
stingur dálitið mikið f stúf við
mína reynslu. Hvar sem ég hef
komið hefur fólk verið mjög
ánægt með þættina, og ég leyfi
mér að fullyrða að þættirnir
séu þeir vinsælustu sem birzt
hafa í sjónvarpinu lengi. Enda
voru þættirnir ljómandi vel
gerðir, og hjálpaðist þar að gott
handrit og góður leikur.
Svo lftur út fyrir að greinin
hafi verið samin í miklum flýti.
Kastar þó fyrst tólfunum þegar
bréfritari byrjar skftkast að
Hrafni Gunnlaugssyni og
virðist hann þá oft gleyma því
að höfundarnir voru fleiri. Þó
þykir mér furðulegast þegar
bréfritari gerir barnalegan
samanburð á skopskyni Hrafns
og nokkurra annarra höfunda.
Bréfritari virðist vera einn
úr þeim þröngsýna hópi raanna,
sem stimplar allt fslenzkt efni
Leikararnir i þættinum Undir sama þakl voru aideilis stórskemmtiiegir Þarna er ríki frændinn frá
Ameríku að kyssa eiginkonu umboðsmannsins — auðvitað var alit tómur misskilningur. Frænkan
horfir á.
lélegt fyrirfram. Væri óskandi
að þetta fólk héldi sér á mott-
unni og leyfði okkur hinum að
njóta þessa efnis án sifellds
nöldurs og fordóma.
Sjónvarpsmenn, haldið áfram
á þessari braut, Undir sama
þaki lofar góðu um framhaldið.
Þið hafið sýnt að þið eruð vel
hæfir til að búa til gott sjón-
varpsefni.
Við þig, bréfritari, vil ég segj a
eitt að lokum. Næst þegar þú
sendir grein f blöðin, láttu þá
fylgja nafn þitt. Það bætir sfzt
Raddir
lesenda
upp þá endaleysu sem grein
þfn vissulega er, að vilja ekki
gangast við nafni þfnu.
Við erum í hjarta borgarinnar
.ifSL. TtZKlTVEKZLUN UNGA FÓLKSWS
Wkarnabær
Siáa
Ljfk^trgotu 2 Simi *r» Unjfrfjofó. 28155
4«sf«rstræfi 22 S*mi?ÍI55
Spurning
dagsins
ÆTLARÐU AD FARA í KIRKJU
Á AÐFANGADAG?
Atli Steinarr Atlason, nemandi f
Grunnskóla Mosfeilssveitar, 14
ára: Nei, ég ætla ekki að gera það.
Mig langar bara ekkert til þess.
jú, ég er kristinn, var meira að
segja fermdur f vor.
Kristfn Þorleifsdóttir húsmóðir,
Þverá f Eyjahreppi Snæfellsnesi:
Það er nú aldrei messað á
aðfangadagskvöld I minni sveit.
Við förum auðvitað til jólamess-
unnar sem verður annað hvort á
jóladag eða annan f jólum, eftir
þvf sem presturinn messar hjá
okkur. Hann þjónar nefnilega
fleiri kirkjum.
Sigurþór Sigurðsson afgreiðslu-
stjóri, 51 árs: örugglega ekki. Ég
kem ekki til með að hafa tfma til
þess, þvf að ég þarf að vinna að
minnsta kosti til hádegis á
aðfangadaginn.
Guðný Guðnadóttir af-
greiðslumær, 19 ára: Nei, ég hef
aldrei gert það. Fer yfirleitt ekki f
kirkju. Jú, jú, ég er kristin.
Gunnar Hannesson, birgðastjóri
hjá SS, 44 ára: Nei, það geri ég
líklega ekki. Hef þó gert það
stundum áður. En ég stefni að þvf
að fara í kirkju á jóladag.
lón Björnsson skrúðgarða-
irkitekt: Ekki hafði ég hugsað
mér það. Það er raunar óhugsað
mál ennþá. En að sjálfsögðu væri
lásamlegt að gera það.