Dagblaðið - 22.12.1977, Page 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
„Dýrmætt þegar æskan fæst
við göf ugt viðfangsefni”
—segir bréf ritari um tónleika í Garðabæ
KJÖRBÚÐ
HRA UNBÆJAR
Hraunbœ 102 —
Sími 73800
Ijólamatinn
Rjúpur kr. 1000,- stk.
Hamflettar
rjúpur kr. 1100,- stk.
Hangikjöt
frá SÍS og Akure.vri.
Læri úrbeinuð
kr. 2.200,- pr. kg.
Úrbeinaður frampartur
kr. 1.900,- pr. kg.
Svínakjöt, kótilettur.
Bógar og hamborgarhryggir
Folaldakjöt á góðu verði
Verið velkomin
KJÖRBÚÐ
HRAUNBÆJAR
Hraunbce 102 — Sími 75800
Það var ákaflega ánægjuleg
stund, sem viðstaddir áttu í
íþróttahúsinu Ásgarði, þessu
myndarlega mannvirki Garð-
bæinga, sunnudaginn 18. des-
ember siðastliðinn. Þar var á
ferðinni unga fólkið í Garðabæ
og hélt tónleika í tilefni af
komu jólahátíðarinnar. Þarna
léku tvær lúðrasveitir undir
stjórn hins kunna hljómiistar-
manns, Björns R. Einarssonar,
og er önnur skipuð börnum á
aldrinum 11—14 ára, en hin
9—11 , ára. Lúðrasveit Garða
starfar innan vébanda Tón-
listarskólans í Görðum, sem er
greinilega þróttmikil stofnun
og í mikilli framför.
Fyrst lék lúðrasveit eldri-
barnanna tiu lög. Þá lék lúðra-
sveitin með yngri börnunum
nokkur barnalög. Næst voru 7
lög leikin af eldri sveitinni og
loks lauk hljómleikunum með
„Heims um ból“, sem báðar
sveitirnar blésu — og allir við-
staddir tóku undir með söng og
risu á fætur.
Það leita á áheyrandann
ýmsar hugsanir, meðan hlustað
1977
OKKAR
1977
rjtcy JÓNSS0N
aJ
:.f
IÍÉmíl
1
KDNUB
0G
GÍSLIJÓNSSON:
KONUR OG KOSNINGAR
Sagan um baráttu íslenskra
kvenna fyrir kosningarétti.
LJÓÐ DAVÍÐS
STEFÁNSSONAR
FRÁ FAGRASKÓGI, úrval
Ólafur Briem menntaskólakennari
hefur búið til prentunar.
KvfiW®1
SMALAVÍSUR
Síðustu Ijóð ÞORSTEINS VALDI-
MARSSONAR sem lést í sumar.
Bókin eykur enn orðstír þessa
sérstæða og listræna skálds er
samræmdi ógleymanlega frum-
leik og hagleik í kvæðum sínum.
ÞÓRUNN
MAGNÚSDÓTTIR:
UN GVERJALAND
OG RÚMENÍA
Nýtt bindi í bókaflokknum Lönd og
lýði, en í honum eru nú komin út
21 rit.
POUL VAD:
HIN LÍTILÞÆGU
Úlfur Hjörvar þýddi.
Skáldsaga eftir einn af snjöllustu
nútímahöfundum Dana. Hún lýsir
ungu en rótslitnu fólki í Kaup-
mannahöfn, sálarlífi þess, ein-
semd og örlögum.
Dr. VALDIMAR J.
EYLANDS:
ÍSLENSK KRISTNI
IVESTURHEIMI
Bók um trúarlíf og trúardeilur
Vestur-íslendinga með formála
eftir Sigurbjörn Einarsson biskup.
Tóivmoimtir
l'ö
M
|
ALFRÆÐI
MENNINGAR-
SJÓÐS
Dr. HALLGRÍMUR
HELGASON:
TÓNMENNTIR A—K
Fyrra bindi Tónmennta.
EINAR LAXNESS:
ÍSLANDSSAGA L-Ö
Síðara bindi íslandssögunnar.
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 - Reykjavík - Sími: 13652
er á svona skemmtilega og
menningarlega hljómleika.
Hversu dýrmætt er það ekki
æsku þessa lands að fást við svo
göfugt viðfangsefni sem tónlist-
in er, með allri þeirri ögun og
lyftingu hugans sem fylgir
þessari drottningu listanna.
Það er stundum rætt um ung-
lingavandamái. En er hægt að
hugsa sér fegurra og hollara
viðfangsefni fyrir okkar þrótt-
miklu og efnilegu æsku en ein-
mitt þetta, að sameina kraftana
f hornablæstri? Það var lika
greinilegt, að börnin höfðu
mikla ánægju af iðju sinni, og
ekki voru undirtektir áheyr-
enda lakari. Mér fannst við
eignast þarna dýrmæta og eftir-
minnilega stund, enda greini-
legt, að mikil og óeigingjörn
vinna hefur verið lögð í það að
æfa börnin, og þar eiga kenn-
arar Tónlistarskólans í Görðum
skiida mikla þökk, ekki sízt
stjórnandi lúðrasveitarinnar,
Björn R. Einarsson.
Við, sem nutum þessarar
ánægjulegu stundar, þökkum
hana hrærðu hjarta. Og við
eigum áreiðanlega enga ósk
heitari en þá. að börnin okkar
mættu eflast af sérhverju góðu
viðfangsefni eins og því, sem
tónlistin er. Þessir hljómleikar
vekja glæstar vonir um menn-
ingarlff Garðbæinga, því að
þeir voru öllum, sem hlut eiga
að máli, til mikils sóma.
Tónleikagestur
Úr undir-
heimum
Hilmar Jónsson: Undirheim-
arnir rísa — Bókmenntakiúbb-
ur Suðurnesja 1977.
Hilmar Jónsson rithöfundur
lætur ekki deigan síga. Hann
stjórnar stóru bókasafni og
bókaútgáfu, sendir frá sér bók
ár hvert í seinni tfð. Auk þess
er hann f forystu fyrir sókn á
hendur Bakkusi konungi, og er
þar við stóran að deila.
í ár er bók Hilmars ritgerða-
safnið Undirheimarnir risa.
Fer nú fjölgandi bókum um
þau mál sem efst eru á baugi;
auk bókar Hilmars má nefna
greinasöfn Jóhannesar Helga,
Sig. Guðjónssonar og Þorgeirs
Þorgeirssonar. Þetta eru hressi-
legustu samantektir og
skoðanir lesenda skiptar eins
og vera ber. —
Hiln\ar kemur vfða við; hann
skrifar um heimiliserjur rithöf-
unda, úthlutun skáldalauna og
fleira í þeim dúr. „...Bróðernið
er flátt mjög og gamanið er
grátt / í góðsemi vegur þar
hver annan“, svo vitnað sé f
Grfm gamla.
Þá vfkur Hilmar að her-
mangi á Keflavíkurflugvelli, en
þar skipta íhaldsflokkarnir
gróðanum bróðurlega.
Loks eru í bókinni þættir úr
erindum um dag og veg flutt f
útvarp. Er Hilmar þar skorin-
orður að vanda. Vinsældir eða
óvinsældir lætur hann lönd og
leið. Pólitískri spillingu segir
hann strfð á hendur. Þar eru
raunar hæg heimatökin, þar
sem lagaverðir f nábýli við höf.
hafa verið ofsóttir fyrir skyldu-
rækni í starfi. —
Eins og fram hefur komið f
þessum fáu lfnum má ljóst
vera, að Hilmar Jónsson er
ómyrkur f máli og hvergi
hræddur við pólitíska póker-
spilara og annan ljósfælinn lýð.
Bókinni lýkur með Þjóð-
hátíðarsálmi 1974. I þeim sálmi
segir m.a.;
„Hvenær rfs sá dagur.
Þegar stjórnmál snúast ekki
um fyrirgreiðslu, ætt eða
mútu heldur menn, sem
standa og falla með sfnum
málsstað.
Hvenær rfs sá dagur
Þegar taglhnýtingar og bak-
tjaldamenn verða opinber-
aðir.“
Haraldur Guðnason.