Dagblaðið - 22.12.1977, Page 8
8.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
Grammófónninn 100 ára
Upphafið að stórkostlegum iðnaði
Jóhannes Guðmundsson hef ur lokið við
almanakið:
„Ég dunda við
þetta svona einn í
kotinu
með fuglunum”
— upprunalegur fónn og spólur á Byggðasaf ninu á Akranesi
Um þessar mundir eru 100 ár
liðin frá því að Thomas A. Edison
tókst að hljóðrita vísubrotið Mary
Had a Little Lamb inn á fyrsta
hljóðupptökutækið, svonefnt
fónograf. Tæki þetta var fyrst
sýnt 7. des. 1877 og einkaleyfi
fékkst 19. febrúar 1878.
Þessi merka uppfinning var
upphafið á stórkostlegum iðnaði,
sem sífellt hefur þróazt og eiga
hljóðupptökutæki nútímans lítið
skylt við síválning Edisons, bæði
hvað varðar útlit og gæði. Fyrsti
hljóðritinn á almennum markaði
var knúinn handsveif, vaxborinn
sívalningur. Hann var smíðaður í
Bandaríkjunum af Bell og
Tainter árið 1886, en þýzkur inn-
flytjandi til Bandarfkjanna, Emil
Berliner varð fyrstur til að
smfða kringlótta plötu, sem hann
notaði lfkt og grammófónplötu, en
slíkar plötur urðu samt ekki sí-
valningnum skæður keppinautur
fyrr en 1896.
Nú þykja hljómflutningstæki
nauðsynleg á hverju heimili og
hér á tslandi er plötuútgáfa ört
vaxandi iðnaður. A þessu ári
munu hafa komið u.þ.b. 40 ís-
lenzkar plötur á markaðinn og
meirihluti þeirra kemurá markað-
inn fyrir jól. Plötur eru því farnar
að keppa við bækur um söfu á
jólamarkaði hérlendis.
LP plötur komu á markað 1948
og segulbönd með hljóðupptöku
voru síðan fyrst sett á markað f
Bandarfkjunum árið 1950. Fjölda-
framleiðsla stereo og fjögurra
rása platna og segulbanda (kass-
ettur) hefur sfðan vaxið ár frá ári
og árið 1975 nam sala á hljómplöt-
um og segulhljómböndum f
Bandarfkjunum 444 milljörðum
króna, en seld voru 564 milljón
stykki. Þeir söngvarar, sem mest
hafa selt af plötum eru brezku
Bftlarnir, en frá þvf f febrúar
1963 fram í júnf 1972 var heildar-
sala þeirra sem svaraði 545
milljónum platna.
Hér á Islandi eru til gamlir
grammófónar og mun rfkisútvarp-
ið eiga f fórum sfnum gömul tæki,
en þau eru niðurpökkuð og f
geymslu vegna húsnæðisvand-
ræða stofnunarnnar og þvf erfitt
að nálgast þau. En á Byggðasafn-
inu á Akranesi er til gamall Edi-
son grammófónn. Framleiðslu-
númerið er ekki á honum, en
hann mun hafa verið framleiddur
á árabilinu frá 1888-1905. Fónin-
um fylgja 40 kefli eða sívalningar
og eru þau öll heil eins og fónn-
inn. Helga og Gyða Jónsdætur
(dætur sr. Jóns M. Guðjónssonar)
gáfu byggðasafninu fón þennan.
JH
Jóhannes B. Guðmundsson, grínari, með dagatalið fyrir árið 1978.
DB-mynd R.Th.Sig.
„Þú verður að skrifa, að ég óski
allri þjóðinni gleðilegra jóla, —
þá geta allir hugsað: ,,Nú! Hann
Jóhannes grfnari hefur verið að
senda mér kveðju." “
Þetta eru þriðju jólin sem Dag-
blaðið er við lýði og nú um þessi
jól sem og endranær hefur Jó-
hannes Guðmundsson, grínari,
ættaður frá Suðureyri, „en þar vil
ég ekki búa,“ litið til okkar.
Megintilgangurinn er að spjalla
og þiggja kaffi, en auk þess
verðum við þess aðnjótandi að fá
að skoða almanakið sem Jóhannes
gerir sjálfur.
„Það hafa farið í þetta einir
tveir mánuðir, en það er allt I lagi,
ég hef nógan tfma,“ sagði
Jóhannes og brosir sfnu sérstæða
brosi. „Ég dunda svona við þetta
einn f kotinu hjá fuglunum mfn-
um.“
Jóhannes er einn þeirra
manna, sem alltaf er f góðu skapi,
andstætt þvf sem gerist með
flesta aðra. Hans eina hlutverk,
hefur hann sagt, er að „skemmta
fólkinu og grinast og svoleiðis" og
þess vegna rekur hann JG-musik.
JG-musik sér um að koma f
samkvæmi til fólks og grlnast en
það hefur veriö lftið að gera
„enda eru allir svo uppteknir
núna fyrir jólin.“
A almanakinu er JG-musik aug-
lýst en slagorð fyrirtækisins eru:
„Nóg meiri musik fyrir alla“ og
„Umgengist æ fleiri fræga
skemmtikrafta".
Og svo er Jóhannes með spól-
urnar sfnar. Á einni hermir hann
eftir Hauki Morthens og þar segir
einnig frá því er Haraldi var rænt
á götu f Reykjavfk. Þá gerir
Jóhannes lftillega grfn að plöt-
unni þeirra Halla og Ladda, sem
eru einnig vinir hans. A annarri
spólu eru gamanvfsur frá árinu
1969, sem hann flutti er hann var
fyrir norðan og þriðja spólan
hefur að geyma fjórtán lög, bæði
eftir Jóhannes og einnig erlend.
Þar er m.a. að finna lagið „Þú
leynist mér“, „Kvennaárið" og
fleiri, „öll sungin af mér og ég sé
um allan hljóðfæraleik."
Svo fer Jóhannes og hann
klæðir sig vel þvi það er kalt úti.
Við óskum honum gleðilegra jóla.
- HP
Öneitanlega er fónninn á Byggðasafninu á Akranesi virðulegt tæki. Til
hliðar eru sívalningarnir og er allt í fullkomnu lagi. DB-mynd Guðni
Halldórsson.
seljastupp
Pantið því strax
Fæstí öllum beztu
leikfangabúðum landsins
Vonarlandi
v/Sogaveg
Símar 8-45-10 — 8-45-11
Heildsölubirgðir:
INGVAR HELGAS0N