Dagblaðið - 22.12.1977, Page 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
Tjónið við
suðurströndina
Lendir aðeins að
litíu leytí á Viðlagatryggingu
—Bátarnir á Stokkseyri tryggðir fyrir 150 mill jónir
—kostnaður við sjóvarnargarðana 120-160 milljónir
Enn liggja ekki fyrir tölur
um tjón, sem varð vegna flóða
við suðurströndina. Þó er ljóst
að tjónið, sem varð lendir að
litlu leyti á Viðlagatryggingu,
þar sem aðrar tryggingar bæta
það tjón, sem flóðið orsakaði.
Mest varð tjónið á bátunum,
sem köstuðust upp á land á
Stokkseyri, en það lendir á
Samábyrgð tslands á fiski-
skipum.
Samkvæmt upplýsingum
Páls Sigurðssonar hjá
Samábyrgðinni er matsverð
bátanna allra 150 milljónir.
Bakkavik ÁR hefur verið
dregin af bryggjunni og upp á
plan og verið er að rétta Vigfós
Þórðarson ÁR við. Síðan munu
matsmenn meta það hvort við-
gerð bátanna borgi sig, en ljóst
er að skrokkar þeirra eru tölu-
vert íiðaðir og brotnir. En sjór
Komst ekki i vélar og tæki bát-
anna og í því liggja mikil verð-
mæti, sem mætti selja, ef við-
gerð er ekki talin borga sig. Mat
á tjóninu ætti að liggja fyrir
fljótlega eftir áramót. Tveir
bátanna eru nýlegir og Jósef
Geir ÁR er metinn á 58.8
milljónir þannig að töluverðu
má kosta til viðgerðar hinna
nýrri.
Að sögn Páls er þetta mikið
Vigfús Þórðarson ÁR 34 í f jörunni og f jær sést Bakkavík AR 100, þar sem báturinn stendur mjög tæpt
á bryggjunni. — DB-mynd Hörður.
áfall fyrir Samábyrgð íslenzkra
fiskiskipa, en félagið er þó
ágætlega endurtryggt f Þýzka-
landi. En þetta kemur niður á
iðgjöldunum á næstu árum“
sagði Páll, „en þetta er gangur
trygginga", Verði bátarnir
borgaðir út gengur það nokkuð
fljótt fyrir sig, þótt félagið hafi
kannski ekki 150 milljónir 1
reiðufé strax.
Þá varð mikið tjón á sjó-
varnargörðum og að sögn
Jóhannesar Reynissonar
sveitarstjóra á Stokkseyri er
álitið að kostnaður við upp-
bygginguna nemi 120-160
milljónum króna, en það er
Hafnarmálastofnun sem sér
um þá framkvæmd og verður
að afla lánveitingar til þess
verks. Á sveitarfélaginu sjálfu
lendir hreinsun bæjarins, auk
þess sem niðurföll og klóök
stífluðust og grófst undan oliu-
möl og gangstéttum, auk þess
sem töluvert þarf að græða upp
næsta sumar. Astandið á
Stokkseyri er nú mjög alvar-
legt, en þar eru 50-80 manns
atvinnulausir.
Ásgeir Olafsson formaður
stjórnar Viðlagatryggingar
sagði í viðtali við DB að
greiðslur Viðlagatryggingar-
innar yrðu tiltölulega litlar
vegna þessa tjóns.Viðlagatrygg-
ingin er fjármögnuð í gegnum
iðgjald af fasteignum og er
0.25% af brunabótamati fast-
eigna. Gjald þetta kom til 1975
og á fyrstu 16 mánuðunum
komu 220 milljónir til skipta
Viðlagatryggingar.
JH
SELUR 50 LITSJÓN-
VÖRP Á 48 KLST.
„Við höfum alltaf staðið i þeirri
trú að myndlampinn væri það við-
kvæmasta í sjónvarpstækjunum.
Nú hefur þessi japanski vinur
okkur sýnt okkur og sannað að
svo er ekki", sagði Vilberg
Sigurjónsson hjá Vilberg og Þor-
steini. Fyrirtækið hefur umboð
fyrir og selur japönsku Hitachi
tækin og er kominn hingað
japanskur verkfræðingur Y.
Tajimi að nafni, til þess að kenna
þeim meðferð tækjanna.
„Tajimi kom hingað til þess að
kenna okkur að meðhöndla tækin,
og stilla þau sem við höfum
reyndar flutt inn og selt í tvö
ár,“ sagði Vilberg.
Nú tók Tajimi upp eitt tæki og
lét það detta niður á borðið og
hafði meira að segja tækið I gangi
á meðan. Viðstaddir voru með
öndina i hálsinum en sá japanski
brosti bara sinu blíðasta austur-
lenzka brosi.
1% hækkun sjúkra-
tryggingargjaldsins:
Dýrt
prósent
það!
Hækkaður hlutur neytenda i
greiðslum fyrir lyf og sérfræði-
þjónustu aflar ríkissjóði unt 500
milljóna krón'a 1978. Er þetta oin
af tekiuöflunarleiðum sem farnar
eru til þess að afgreiða fjárlögin
tekjuhallalaus.
Hækkun sjúkratryggingar-
gjalds, sem er persónuskattur á-
lagður eftir sömu reglum og út-
svar, aflar ríkinu 1,9 milliarða
króna í tekiur á næsta ári.
Hækkar sjúkratryggingargjaldið
úr 1% f 2%.
Tajimi sagði að Hitachi fyrir-
tækið framleiddi um 20 þúsund
tæki á mánuði. Þar með geta þeir
engan veginn annað þeirri eftir-
kpurn sem er eftir tækjunum.
Vilberg sagði að griðarlega
mikil sala hefði verið i litsjón-
varpstækjum. Verzlun hans var
litsjónvarpstækjalaus i heila tiu
daga. Siðan kom sending með
fimmtiu tækjum og runnu þau út
eins og heitar lummur. Var útlit
fyrir að þau seldust öll á 48
klukkutimum.
„Kaupendurnir eru yfirleitt á
aldrinum svona 45-60 og lang-
flestir greiða út i hönd og notfæra
sér staðgreiðsluafsláttinn.
„Annars finnst mér þessi gamla
jólasala sem var sé eiginlega úr
sögunni. Fólk byrjar að „jóla-
verzla" eiginlega strax á haustin
og jólasalan stendur allan
veturinn."
Tækin hjá Vilbergi sem eru
vinsælust eru með 20 tommu
skermi og kosta 291 þúsund.
Annars sagði Vilberg að i hvert
sinn sem ný tæki kærnu hækkuðu
þau eitthvað i verði vegna hins
sifellda gengissigs krónunnar.
Hann hefur selt upp undir 800
litsjónvarpstæki á árinu.
A.BJ.
Japanski verkfræðingurinn var öldungis óhræddur við að taka harka-
lega á litatækinu með kveiktri stillimyndinni sem haggaðist ekki.
Hann sleppti tækinu úr þeirri stöðu sem hann er i á myndinni og
ekkert gerðist. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Dregið íhappdrættisláninu:
Fékkst þú jólaglaðning?
Vera má að einhver lesanda
hafi fengið jólaglaðning og
hverjum veitir af svona rétt fyrir
mestu hátfð ársins? Seðlabankinn
sendi frá sér í gær dráttinn í
happdrættisláni rikissjóðs,
Skuldábréf C, vegna vega- og
brúagerða á Skeiðarársandi, til
að opna hringveginn um landið.
Hér koma svo vinningsnúmerin:
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS
SKULDABRÉF C
5. DRÁTTUR 20. DESEMÐER 1977
SKRÁ UM VINNINGA
VINNINGSUPPHÁD KR. 1.000.000
35520 94460
VINNINGSUPPHÁG KR. 500.000
49388
VINNINGSUPPHÁD KR. 100. 000
8490 9085 14713 16713 24078 17553 2970C 23928 33842 41872 46229 51642 5 3905 56293 56860 57138 61473 7768R 77928 94033
VINNÍÚGSUPPHÍD KR• 10. 000
201 9260 22713 35489 47218 58961 71324 86321
498 9818 22982 35993 47584 59081 71757 86602
1021 10058 23395 36009 47986 59617 72223 86685
1210 10346 23636 36976 48118 59619 72588 86726
1280 10513 23723 37385 48664 59920 73071 86966
1551 10533 23762 37459 49111 60530 73127 37325
1964 10814 24080 37907 49311 61206 73347 874 17
2136 10908 24164 38178 50121 61433 73596 88045
2694 11110 24310 38316 50133 61675 73606 88664
2764 12915 24561 30828 50390 61991 73629 89660
2770 . 14624 25733 38925 50902 62754 74180 90891
2788 14766 26561 38984 51764 63575 74888 92083
2831 15069 27279 39443 51982 63758 75397 92089
3017 15116 2 7480 39542 52263 63810 76996 93264
3107 15163 27620 39623 52323 63830 77163 93446
3811 15190 28426 39921 52893 63873 77505 94077
4161 15450 28467 40563 53385 64977 79285 95909
4510 15738 2860? 41182 55812 65281 79471 96205
5422 16035 20740 41431 55927 65391 79898 96526
5561 16781 29407 42251 56270 65757 81534 97515
5595 17349 30130 42309 56301 66508 82294 97566
5757 17414 30733 42483 57055 67165 82944 97793
6372 17419 30861 42737 57125 67364 83430 97813
6674 17737 31465 42741 57133 67568 33452 98861
6752 18079 32255 42783 57163 68644 8363 ö 99265
7054 18080 32435 43019 57171 68896 84722 99788
7097 19069 32455 44606 57913 69074 85294
7332 19343 33564 44850 58153 69214 85310
8339 20749 33613 45464 58515 69568 85410
8929 20910 34987 46464 58624 69840 85469
9073 21906 35050 46734 58685 70421 85565
9115 22057 35165 47202 58747 70570 85597
FJARMALARADUNEYTID
REYKJAVIK 20. DESEMBER 1977