Dagblaðið - 22.12.1977, Page 18
gl*|ujo?
, ! f :■ v
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
Álit Svía á ástandinu hérlendis
VERÐBOLGAN ER HELSYKI
— Aumingja íslendingarnir—Volvo á 5 milljónir!
Hvað finnst þér um að borga
92 krónur fyrir einn litra
mjólkur? Eða 2856 kr. fyrir eitt
kg af fleski? Eða 2040 kr. fyrir
eitt kg af venjulegum osti? En
sjónvarp — jú með lit — fyrir
354 þúsund. Og hvað með Volvo
fyrir fimm milljónir. Miðað við
það er verð á 4ra herbergja
íbúð sanngjarnt eða 12
milljónir.
Þetta er ísland í auguin Svía.
Hvergi í okkar heimshluta
„grasserar" verðbólgai. eins og
á Islandi. Sænska dagblaðið
Göteborgs Tidninger sendi
fréttamann sinn hingað til
lands í síðasta mánuði og hann
þakkaði sínum sæla að vera
Svíi og geta farið inn í banka og
fengið 4300 íslenskar krónur
fyrir hundraðkallinn sinn. í
Sviþjóð kvarta menn og kveina
vegna verðbólgu, sem er á
bilinu 10-15%, en hér þykir
gott ef hún er 35% á ári.
Og samþykkja íslendingar
þetta? Já það er ekki nóg með
það. Þegar síldin og þorskurinn
bregðast, kemur verðbólgan
eins og pöntuð. Allir kaupa og
kaupa, eins mikið og þeir geta.
Þeir sem keyptu íbúð fyrir
fjórum árum selja hana I dag á
a.m.k. 12 milljónir. Þessi at-
vinnugrein er svo árangursrík
að nær allir Islendingar hafa
oft farið til Mallorka eða
Kanaríeyja.
Bankamaður sem hinn
sænski blaðamaður GT talaði
við sagði honum að enginn
legði inn á banka og menn
legðu það ekki í vana sinn að
spara. Þeir, sem leggja
peningana sína í banka eiga
það á hættu að upphæðin hafi
rýrnað um nokkur prósent
strax í næsta mánuði.
í GT er birt tafla þar sem
gerður er verðsamanburður á
sömu vörum í Svfþjóð og á
íslandi. Það sem Svíum virðist
blöskra mest er hin mikla
krónutala á Islandi. Þar fyrir
utan er töluverður verðmunur
á ýmsum vörutegundum, t.d.
kostar kg af fleski 23.50 í
Svfþjóð, en 2.856 á íslandi,
smjör 14.50 og 1341, eitt kg af
osti 17.30 og 2040, kg af kaffi
47.35 og 1590, flaska af léttöli
1.30 á móti 130 og svo má lengi
telja. Þá ber að geta þess að
tímakaup er mun hærra 1
Svfþjóð en hér á landi.
Svo er nú það. Það er því
engin furða þótt í fyrirsögn
blaðsins segi frá aumingja
íslendingunum. Þá er og mynd
af hinni frægu flotkrónu okkar,
sem verður bráðum, „verdens-
berömt".
JH
Þetta er fréttin í GT hinu sænska, — risafréttt um vesalings
íslendingana og gjaldmiðilinn þeirra.
Sftu iuu * imiiiHningttr - dvr<*H iníltttítni *{<u «•««rttparvlnn d
«■>*<**
"• G»i xsdjwv, Ik»», *« ♦-<«#
4* MM.rm'" !'■<»
K*liV« *'» **« <1 >
m fMiww«»«?*«»» **
im’ r<*>« » "• ♦«.
■,W w.-
JLé4 »■< >-* ***« «* »>w
V-íí1» yt>ww -
f (rtwí tti'ítfff
I *-»<*< P*
:istcsí ss ,s~
s: i»-
1» Ö* •
*<»««• «■» •
*t <. -■—:•» < >» >'
* t U <b*>» «.>x : «• *«*•: ••
« I »L< »x«<**»>« í » WS -
ft 1 • » 1 *>
wp'rfwwi
Annirhjá Flugleiðum:
Allir íslendingar sem
óska eiga að komast
heim fyrir jól
Arnarf lugsþotunnar var alls ekki þörf
Milljónatjón íeldsvoða:
ELDURIARNARIHU-1
í AKUREYRARHÖFN
Milljúnal iún varrt i inorgun
utn horú i skullogaranum
Arnari IIU-l frá Skagnstrnnd
er eldur kom upp I skipinu |»ar
sefn þaú liggur virt hryggju í
Akureyrarhöfn.
I»art var lausl f.vrir kl. 5.110 aú
vaktmaúur hjá Ulnerúarfélagi
Akureyrar varú var virt aú reyk
lagúi upp frá skipinu Cerúi
hann sliikkviliúinu á Akureyri
|iegar viúvarl og var alll liú
jiess kallaú úl
Kr slökkviliúsmenn komu á
vellvang. var eldur laus i ein-
angrun milli |iilja i eldhúsi og
horústofu logarans og var þegar
hafizt handa viú slökkvislarf
(íekk þaú erfiúlega. en þú varú
kontizl fyrir eldinn á Iveimur
limum.
Aú siign sliikkviliúsins á
Akureyri. hefur þarna orúiú
mikiú Ijún. en togarinn var lil
viúgerúar hjá Slippstöúinni.
Togarinn Arnar IIU-I er ei«n
úlgerúarfélagsins Skagslrend-
ings hf. oj> 4fi2 lonn aú stterú.
Ilann var smiúaúur i Japan áriú
197.1 or hefur veriú gerúur úl
til togveiúa frá Skajtaströnd.
Kkki er vitart hver eldsupptök
Japanslogari. nákvæmlega elns
or Arnar. sem nú liggur slúr-
skemmdur eflir eldsvoúann í
morgun i Akureyrarhöfn.
voru. en unniú hafúi veriú viú
viúgerúir i siefni skutlogarans i
gær. Kldhús og horúslofa voru
la*sl. er slokkviliúsmenn har aú
or lafúi þaú einnig fvrir
Mikinn reyk lagúi um alll
skipiú. en til marks um hitann
er aú kviknaúi i iréhekk. sem lá
ulan á skipinu -IIP.
Skagaströnd:
VIÐGERÐ A ARNARILYKUR
í BYRJUN FEBRÚAR - ENGIN
VINNA í FRYSTIHÚSISÍÐAN
UM MIÐJAN 0KTÓBER
„Ég tel enga hættu á að
tslendingar sem erlendis eru og
vilja komast heim fyrir jól,
komist það ekki, ef þeir á annað
borð koma til endastöðva Flug-
leiða erlendis," sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi Flug-
leiða I gær. „Það hefur allt verið
gert til að svo megi verða.
Vörupallar hafa ekki verið í
vélunum að undanförnu, þannig
að þær bera 126 farþega í senn í
stað 79 vanalega.“
Flugleiðafólki fannst illa að sér
vegið í DB á þriðjudaginn þar
sem skýrt var frá komu tómar
vélar Arnarflugs til landsins
meðan margir biðu eftir fari heim
og fengju ekki.
tslaug Aðalsteinsdóttir, yfir-
maður farskrárdeildar og Sveinn
blaðafulltrúi sögðu að sú
staðreynd lægi fyrir eftir könnun
að alla daga desember allt til 17.
des. hefðu verið 4-16 sæti laus í
hverri ferð. Arnarflugsþotan kom
16. des. og hennar var því ekki
þörf.
Bent er á að biðlistar þýði í
fæstum tilfellum að fólk komist
ekki heim. Þeir verða oft til
vegna þess að fólk pantar tvívegis
og gleymir að afpanta fyrri
pöntun sína. Eins eru margir sem
nota sér afslátt samkvæmt „8-
daga fargjöldum” og njóta afslátt-
ar þeirra búnir að ljúka erindum
sínum eftir 4-5 daga óg vilja þá
komast heim sem fyrst, en mega
það ekki samkvæmt reglunum.
Þeir verða að bíða.
DB hefur fregnað eftir
staðfestum og óstaðfestum
heimildum að Islenzkt námsfólk
fjarri endastöðvum Flugleiða
óttist að komast ekki heim. Þess-
um ótta vísaði Sveinn á bug og
taldi ekki hættu að að íslendingar
erlendis kæmust ekki heim fyrir
jól vegna yfirfullra véla.
-ASt.
„Þetta gengur hægt, enda mikil
vinna við viðgerðirnar," sagði
Sveinn Ingólfsson framkvæmda-
stjóri Utgerðarfélags Skag-
strendinga í viðtali við Dagblaðið
um það hvað liði viðgerðum á
togara útgerðarfélagsins, Arnari
HU-1, sem brann við bryggju á
Akureyri fyrir rúmum fimm
vikum. „Okkur hefur verið lofað
að viðgerð ljúki fyrir 1. febrúar
nk. og búið er að setja það inn á
vinnuáætlun."
Miklar skemmdir urðu- á togar-.
anum f eldsvoðanum, en hann er
eini togari Skagstrendinga.
Ibúðir, matsalur ogeldhús áneðra
dekki eyðilögðust og skemmdir
urðu af vatni og í íbúðum á efra
dekki. Auk þess urðu skemmdir á
tækjum í brú togarans, en eins og
Sveinn sagði er ekki vitað hve
miklar þær skemmdir verða að
endingu.
„Það er erfitt að segja, hversu
miklar upphæðir er um að ræða
þarna,“ sagði Sveinn ennfremur.
„Við erum að búa okkur undir
reikninga á bilinu 20 til 40
milljónir króna.“
„Það gefur auga leið, að at-
vinnuástandið er slæmt á Skaga-
strönd vegna þessa," sagði
Sveinn. „Það hefur ekkert verið
að gera fyrir stúlkurnar í frysti-
húsinu frá þvf um miðjan
október, en karlarnir fengu at-
vinnu við breytingar, sem verið er
að gera á frystihúsinu og
bræðslunni."
Annars sagði Sveinn ástandið
hafa verið gott á meðan togarinn
aflaði fyrir frystihúsið, „það féll
varla niður dagur f húsinu."
Einn lfnubátur aflar nú fyrir
frystihúsið en afli hans er að
mestu unninn um borð.
-HP.
Ódýr tízkufatnaður
Stuttir og siðir kjólar. Verð kr. 9.900.-
Plíseruð pils kr. 5.500,-
Mussur og toppar kr. 3.960,-
Mikið úrval af peysum frá kr. 3.500.-
Vandaðar vatteraóar úlpur. Verð frá
kr. 3.500.
LILJA, Glœsibœ
. -‘2 Smurbrauðstofon
BJORNINN
Njáisgötu 49 — Sími 15105