Dagblaðið - 22.12.1977, Page 24
24
r
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1977.
OSKASTEINAR OG GLERHALLAR
ÓAur atainaini
LJÓsmyndir: Agúst Jónsaon
LJ6A: Kristjén fré Djúpslwk
Eftirmáli: Stsindór Stsindórsson
Ensk þýAing: Hsllbsrg Hollmundsson
Útgsfsndl: Qsllsry Háhóll, Akursyri 1077.
ÓSKAGJÖFIUfein
VASAREIKNIVEL
\ 9100
Hverfisgötu 33 Sími 20560
Löngum hafa menn tínt
steina, sjálfum sér til yndis-
auka og kannski ekki síður til
þess að gefa vini litla gjöf,
stundum notað sem jarðteikn
með boðum hjarta’is.
Sumir steinar höfðu þá
náttúru að fæli maður þá í lófa
sér mátti sá óska sér þess sem
hugurinn girntist helst. I eftir-
mála hinnar undurfögru og
gagnvönduðu bókar, öður
steinsins segir Steindór Stein-
dórsson að þann stein megi
finna á Jónsmessunótt á Tinda-
stól þá hann flyti upp f litilli
tjörn.
Hann getur um fleiri töfra-
steina svo sem þann sem gerir
mann ósýnilegan þegar mikið
liggur við. Aðrir steinar voru
óheillaboðar og hyggilegast að
grípa þá ekki upp af götu sinni
eða á víðavangi. Allir sem hafa
lagt hug að þessu efni og safnað
steinum vita hvað steinar geta
verið ríkir af töfrum og átt
sterka útgeislun. Eftirmáli
bókarinnar er eiginlega ágætur
inngangur að hinni fögru lista-
bók sem flýtur upp likt og óska-
steinninn i jólabókastraumnum
og þegar ég fór að handleika
þessa bók fór mér eins og segir
í fyrsta ljóðinu eftir Kristján
frá Djúpalæk:
Undrandi geng ég
inn i veröld töfranna
sem gestur....
Agúst Jónsson trésmiða-
meistari á Akureyri er einn
hinna mörgu tslendinga sem
safnað hefur steinum úti i nátt-
úrunni og hefur ekki sparað
fyrirhöfn til að leita þeirra á
fjöllum og í dölum, i hellum og
á sjávarströnd. Honum nægði
ekki að skoða ytra borð stein-
anna, heldur lék honum for-
vitni á að vita hið innra og tók
Bók
menntir
Hrafnhildur
Schram
upp á að saga þá sundur, fága
og slipa og láta ljósið leika I
gegnum þunnar flögur og
mynda ljósbrigði, liti og form
sem þá birtust.
Árangurinn er þessi
einstæða bók sem maður getur
endalaust verið að fletta og
gleðjast við.
Kristján skáld frá Djúpalæk
hefur látið þessar 30 litmyndir
verða sér að innblæstri og eru
ljóð hans í senn einföld og
fögur og hæfa myndunum vel
vegna einlægni og hugmynda-
flugs. Þau sýna hvernig þessar
myndir orka á þetta skáld sem
er svo mannlegur og hrein-
lyndur svo sem ljóðin bera
rikulega vitni. Eins og jafnan í
útgáfusögu listabóka á tslandi
verður opinberum aðilum ekki
þakkað framtakið, heldur er
um að ræða atorku einstaklinga
og I þetta skipti ber að þakka
ungum hugsjónamönnum á
Akureyri sem hafa tekið að
sér það veigamikla hlutverk að
kynna norðlendingum góða og
gilda myndlist og reka i því
skyni Gallery Háhól á Akureyri
Fyrr var alltaf iitið til Ragnars
Jónssonar þegar rikisvaldið
brást og mun hans skerfur ekki
gleymast. Það er gleðiefni að
nú eru komnir til sögunnar
aðrir aðilar að axla slíka ábyrgð
og er vonandi að þetta framtak
hinna ungu manna á Akureyri
verði metið að verðleikum og
þeir fái byr í seglin. Horfandi
út um gluggann gegnum frost-
rósir gleðst ég við þessi orð
Kristjáns frá Djúpalæk i 9.
erindi bókarinnar:
Vetrarblóm glugga
bernsku minnar
hafa sprungið út
i iitbrigðaieik
frostrósirnar eru teknar að
anga.
Hraf nhildur Schram