Dagblaðið - 22.12.1977, Blaðsíða 40
Haukur Guðmundsson enn kærður til saksóknara:
LÖGMAÐUR SEGIR HANN
HAFA REYNT AÐ FÁ
SAKLAUSAN TIL AÐ JÁTA
Haukur Guðmundsson, rann-
sóknarlögreglumaðurinn kunni
úr Keflavík, hefur verið
kærður til ríkissaksóknara
fyrir brot á 40. grein laga um
meðferð opinberra mála, sbr.
131 gr. hegningarlaganna. Sú
grein fjallar um löggæzlumenn
og dómara, sem koma manni til
játningar eða sagna, fram-
kvæma ólöglega handtöku og
fleira slikt. Lagagreinin kveður
slikt varða sektum, varðhaldi
eða fangelsi allt að þrem árum.
örn Clausen hrl. er lögmaður
leigubílstjóra nokkurs 1 Kefla-
vik sem mál þetta spinnst út af.
Leigubilstjórinn var handtek-
inn, grunaður um sölu á áfengi
og færður fyrir rannsóknar-
lögreglu i Keflavík. I
lögregluskýrslu kemur fram að
fingraför hefðu fundizt á
áfengisflösku sem bilstjórinn
var grunaður um að hafa selt.
Nú taldi bílstjórinn að hann
hefði aldrei komið nálægt sölu
áfengra drykkja og áfengi það
sem hér var um að ræða kvaðst
hann aldrei hafa höndum
fjallað. Lögmaðurinn kvaðst
þar af leiðandi ekki skila vörn í
máli skjólstæðings síns fyrr en
fingrafararannsókn þessi lægi
fyrir. í nokkur skipti gekk lög-
maðurinn eftir rannsókn
þessari hjá fulltrúa bæjar-
fógeta I Keflavik, en án
árangurs.
í siðustu viku ræddi örn við
bæjarfógeta sjálfan og kvaðst
hann vera tilneyddur til að
kvarta við ráðuneyti og sak-
sóknaraembættið ef umbeðin
gögn bærust ekki.
I fyrradag barst svo skýrsla
Halldórs Á. Jenssonar, varð-
stjóra, sem annaðist fingrafara-
rannsókn þessa. í skýrslunni
má lesa að fingraför umrædds
leigubílstjóra var hvergi að
finna á flöskunni.
Telur lögmaðurinn þvi að
Haukur Guðmundsson hafi
þarna brotið af sér I starfi,
reynt að fá saklausan mann til
að taka á sig afbrot sem hann
hafði ekki framið. Hefði engin
sönnun verið fyrir hendi um
sölu á flösku þessari og engin
kæra þvi nokkru sinni komið
til, ef ekki hefði verið getið
fingrafararannsóknarinnar i
lögregluskýrslunni.
Þess skal getið hér að í 40.
grein laga um meðferð opin-
bérra mála segir að spurningar
lögreglumanna skuli vera
skýrar, stuttar og ótviræðar. Þá
megi ekki reyna með nokkrum,
hætti að rugla mann með
ósannindum eða á annan hátt,
„þannig að hann vissi miður en
ella hverju hann svaraði, eða til
þess að hann svaraði röngu,"
eins og segir i lögunum.
JBP
Síðustu I
jólatrén seld
í dag?
— Jólatrén okkar í ár eru
öll að seljast upp. Ætli við seljum
ekki síðustu trén í dag, sagði
Kristján Skæringsson hjá Land-
græðslusjóði í morgun.
Kristján sagði það áberandi að
fólk hefði byrjað að velja sér tré
mikla fyrr en venjulega. Margir
þyrftu því líklega að bíta í það
súra epli að fá ekki þá stærð af tré
sem hugurinn girnist.
Samkvæmt könnun DB í gær-
kvöldi er þó víða á útsölustöðum
jólatrjáa út um bæinn og
nágrenni enn jólatré að fá. EA
Ekki útlit fyrir hvít jól:
Ellefu hvítir
aðfangadagar
ítuttugu og
átta ár
DB-mynd S.Þorm
frýálst, nháð dagblað
FIMMTUDAGUR 22. DES 1977.
Bjöm hætt-
ir DB for-
mennsku
— ef hann fer í prófkjör
„Ég mun ekki halda áfram for-
mennsku I stjórn Dagblaðsins ef
ég tek þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins til alþingiskosninga f
Reykjaneskjördæmi," sagði Björn
Þórhallsson i viðtali við Dag-
blaðið í morgun.
Björn er nýkominn til landsins
eftir mánaðardvöl erlendis.
„Þegar ég kom, frétti ég að vinir
mfnir hefðu skorað á mig að taka
þátt i prófkjörinu og gert nauð-
synlegar ráðstafanir til að koma
nafni minu á lista þátttakenda."
sagði Björn. „Mér hefur ekki unn-
izt timi til að taka afstöðu til þessa
hugsanlega framboðs mfns til
prófkjörs,” sagði Björn að lokum.
-HH
Mannskapur-
inn í jólaskapi
Greinilegt er að menn eru
komnir f jólaskap og nokkur værð
er komin yfir mannskapinn. Sam-
kvæmt upplýsingum Páls Eiriks-
sonar varðstjóra lögreglunnar I
Reykjavik hefur verið óvenjulitið
um kenderf og slagsmál úr sög-
unni og þykir það tiðindum sæta.
Umferð hefur verið mikil en að
mestu óhappalaus.
Helzt má vænta þess að eitt-
hvað lifni yfir mannskapnum er
líða tekur á messu heilags
Þorláks, sem ekki er langt undan,
en þá má oft vænta tfðinda.
JH
Mesta myrkrið búið
Þá er mesta skammdegið af-
staðið og von um betri tfð. I gær
var skemmstur sólargangur og
framundan eru jólin og strax i
janúar fer að muna um lengri
sólargang. - JH
RÁÐHERRA SAKAÐIALBERT
UM SÝNDARMENNSKU
Að öllum líkindum verður jörð
alauð í höfuðborginni á jólunum,
þannig að ekki verða hvit jól.
Samkvæmt veðurspánni verður
eins konar vorveður í höfuðborg-
inni og vfða um land. 1 morgun kl.
6 var 9 stiga hiti á Galtarvita og 6 f
Reykjavfk og 5 á Akureyri. Það er
eins og bezt gerist á sumardögum.
Hjá Veðurstofunni fengum við
þær upplýsingar í morgun að á
undanförnum tuttugu og átta
árum hefur aðeins verið hvitur
aðfangadagur í Reykjavíkur
ellefu sinnum, flekkóttur sjö
sinnum en auð jörð tiu sinnum.
Aftur á móti hefur niu sinnum á
sama tfma verið hvftur jóladagur,
nfu sinnum auður og tiu sinnum
flekkóttur. Til gamans má geta
þess að i London hafa sex sinnum
sfðan um aldamót verið hvit jól!
A.Bj.
Afgreiðsla
fjárlaga:
Matthías Bjarnason heil-
brigðisráðherra ásakaði Albert
Guðmundsson um „sýndar-
mennsku“ og gagnrýndi borg-
arstjórn fyrir slælega fram-
göngu f heilbrigðismálum. Al-
bert svaraði, að þetta tal ráð-
herrans um Reykjavfkurborg
væri „ábyrgðarlaust“. Þessar
deilur komu upp við nafnakall.
um tillögu Alberts og þing-
manna Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks fyrir Reykjavik um
hækkun framlaga til heilbrigð-
ismála i borginni.
Þessi tillaga var felld með 40
atkvæðum gegn 13, og fékk Al-
bert engan stjórnarliða til
stuðnings við sig. Aðrar breyt-
ingartillögur Alberts voru einn-
ig felldar. Svo fór um tillögu
hans um að verja meiru til
heiðurslauna listamanna og að
15 listamenn fengju þau laun f
stað 12. Sú tillaga fékk 7 at-
kvæði en 44 voru á móti.
Enginn stjórnarliði studdi Al-
bert 1 því efni. Tillaga Alberts
og stjórnarandstæðinga um
aukin framlög til fjölbrauta-
skóla I Breiðholti var felld með
39. atkvæðum gegn 12 og fékk
Albert heldur ekki þar
stuðning neins stjórnarliða.
Tillögur stjórnarandstæð-
inga og tillögur einstakra þing-
manna voru nær allar felldar.
Samþykkt var tillaga frá Ingv-
ari Gfslasyni (F) og fulltrúum í
menntamálanefndum um að
Marfa Markan söngkona skyldi
bætast f hóp listamanna sem fá
heiðurslaun frá Alþingi.
Síðan voru fjárlög afgreidd
og þingmenn fóru f jólafri.
• HH
Eru þetta
BSRB-jól?
ALLIR VIUA EIGNAST LITASJÓNVARP
Griðarlega mikil ös er í öllum
verzlunum og þröngin svo mikil í
bænum að varla er hægt að
komast áfram. Kaupmennirnir
eru ánægðir og segja að greinilegt
sé að fólk hafi nóg af peningum.
Það spyr yfirleitt ekki hvað hlut-
irnir kosta, heldur bara kaupir og
kaupir.
Gárungarnir kalla þetta BSRB-
jólin. Er það kannske vegna þess
að opinberir starfsmenn fengu
uppbót á launum sinum síðan I
sumar fyrst i mánuðinum og
fundu þvf ekki fyrir kaupleysinu
I verkfallinu.
Oftastnær er það svo fyrir jólin
að einhver sérstakur vöruflokkur
verður vinsælastur meðal al-
mennings. Stundum eru það
frystikistur, stundum stereogræj-
ur eða eitthvað annað álíka. Að
þessu sinni eru það litasjónvarps-
tæki.
„Það er allt útlit fyrir að lita-
tækin seljist upp hjá okkur,“
sagði Birgir Helgason, sölustjóri
hjá Nesco. „80% kaupendanna
eru aðilar sem búnir eru að eiga
sjónvarpstæki i 8—10 ár og þurfa
þvi að endurnýja. Meirihluti
kaupendanna notfærir sér hina
hagstæðu greiðsluskilmála okkar
en þó eru nokkrir sem greiða út i
hönd. Salan f hljómtækjunum
hefur einnig farið fram úr öllum
áætlunum okkar,“ sagði Birgir.
„Jólasalan hefur gengið prýði-
lega hjá okkur og mest verið selt
af litatækjum," sagði Þorsteinn
Danfelsson verzlunarstjóri . f
Karnabæ.
„Jú, það eru fjölmargir sem eru
að skipta yfir í litasjónvarp, en ég
hef ekki orðið var við þessa miklu
kaupgetu sem alltaf er verið að
tala um,“ sagði Halldór Laxdal,
kaupmaður í Radíóbúðinni. „I
það minnsta finnst mér kaupgeta
fólks f borginni áberandi minni
en hjá fólki úti á landi. En sjón-
varpstæki og hljómflutningstæki
eru tæki sem enginn getur eigin-
lega verið án. Þetta eru tæki sem
eru f gangi á heimilunum allan
daginn. Þó fólk þykist ekki horfa
á sjónvarpið ætlar allt að ganga af
göflunum ef þau bila,“ sagði Hall-
dór.
„Mér finnst ekki að það hafi
verið neinn hasar í jólasölunni en
vissulega hefur verið ágæt og jöfn
jólatraffik, svona um það bil
helmingi meiri en vanalega,"
sagði Gunnar Ásgeirsson. „Við
höfum selt griðarlega mikið af
litasjónvarpstækjum en mestur
hasarinn hefur þó verið í sauma-
vélunum og við erum búnir að
'selja fleiri hundruð saumavélar.
Enda tókst okkur að gera hag-
stæða samninga þvi við pöntuðum
mjög mikið magn og getum boðið
saumavélar á um 60 þúsund en
þær hefðu með réttu átt að kosta
milli 80 og 90 þúsund,“ sagði
Gunnar Ásgeirsson.
- A.Bj.