Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR 1978
7
Watergatebók Haldemans:
„Deep Throat” í dagsljósið
— Fred Fielding aðstoðarmaður John Dean— Nixon eyðilagði sjálfur spólurnar
1 væntanlegri bók Bobs
Haldemans fv. starfsmanna-
stjóra Hvíta hússins kemur
fram að það hafi verið Nixon
sjálfur er evðilagði mikilvægan
kafla á segulbandspólu, alls 18
og hálfa mínútu. Þetta kemur
fram í New York Magazine nú
um helgina.
Þá er einnig haft eftir
heimildum úr fjölskyldu Halde-
mans að annað leyndarmál sé
upplýst í þessari bók, sem beðið
er með mikilli eftirvæntingu.
Það er hver hafi verið ,,DEEP
Throat", þ.e. sá sem gaf blaða-
mönnunum Woodward og
Bernstein upplýsingar. Sam-
kvæmt þessum heimildum var
,,Deep Throat", Fred Fielding,
aðstoðarmaður John Dean, fv.
lögfræðilegs ráðunautar
Nixons.
Deep Throat nafnið var
notað á heimildarmann blaða-
mannanna tveggja á Washing-
ton Post, sem leiddu í ljós þetta
mikla hneykslismál á sínum
tíma, en það varð til þess að
Nixon forseti varð að segja af
sér.
Þá segir ennfremur Jrá því
að Nixon hafi ætlað sér að fara
sjálfur í gegnum allar
upptökur. sem gerðar voru af
símtölum í Hvíta húsinu, í því
skyni að e.vðileggja þær sam-
ræður er hefðu getað leitt til
ákæru, en hann komst fljótt að
því að slíkt hefði tekið óendan-
lega langan tíma.
Haldeman var einn af
nánustu samstarfsmönnum
Nixons, en hann hefur setið i
fangelsi síðan í júní á sl. ári
vegna þátttöku sinnar í inn-
brotinu i Watergatebvgginguna
í Washington.
Erlendar
f réttir
JÓNAS
HARALDSSON
KÓKAÍNPOK-
ARSPRUNGU
ÍMAGA
SMYGL-
ARANS
Tvítugur Bandarikjamaður lézt
um borð í áætlunarflugvél á leið
frá Lima til Los Angeles. Að sögn
lögreglunnar í Perú var ástæða
þess að m'aðurinn lézt að plast-
pokar, sem innihéldu kókaín
sprungu í maga hans þegar hann
reyndi að smygla eiturefninu til
Bandaríkjanna.
Að sögn lækna gleypti
maðurinn 45 pakka af kókaíni
áður en hann steig um borð í
vélina í Lima, höfuðborg Perú.
Eftir hálftíma flug var maðurinn
orðinn mjög veikur og dó hann
um borð. Vélin lenti í Norður-
Perú, þar sem lík hins unga
manns var flutt frá borði.
REUTER
Stefna
Salyut6
leiðrétt
— birgðaflaug
leystfrá
geimstöðinni
Sovézku geimfararnir Yuri
Romanenko og Georgy Grechko
réttu í gær af stefnu geimfars síns
á braut umhverfis jörðu. Þeir
félagar eru í geimstöðinni Salyut
6, en einnig eru tengd við stöðina
Soyuz 27 geimfar og birgðaflaug,
Progress 1.
Að sögn sovézka sjónvarpsins
sagði að eftir að þeir félagar
leiðréttu stefnuna h hefðu þeir
sett aflflaugar birgðaflaugar-
innar af stað en fyrirhugað er að
hún verði tengd frá geimstöðinni
og látin fara inn í gufuhvolfið þar
sem hún mun brenna upp.
HUÓMBÆR
Hverfisgötu 108-Sími24610
Sýnishorn á staönum.
FRA Leggið inn pantanirsem fyrst
KKTIICILY Afgreiislufrestur
□RGAIMS ca. 4 vikur
HUOMBÆRSF.
IJ, KYNNIR
QIÍPMMTA PfAfAlf MÉ
• Einfaltt nothun
• Leikið með aðeins tveim fingrum
• 8soloraddir Hljómar
• SjálfstæðurAutobassi
• Trommutaktar
• Rythma-ásláttar-grip
ALLTFRÁ EINNINÓTU!
Sadat f Bandaríkjunum:
Vopnasala til Egypta
alvarlega í athugun
í viðræðum Sadats Egypta-
landsforseta við Carter Banda-
ríkjaforseta kom fram að reynt
yrði’af fremsta megni að ryðja
þeim hindrunum úr vegi, sem
komið hafa í veg fyrir frekari
friðarviðræður Araba og
Ísraelsmanna.
Varautanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Alfred Ather-
ton, mun fara innan tiðar til
Miðausturlanda til þess að
reyna að finna umræðugrund-
völl, þannig að friðarviðræður
þjóðanna geti hafizt á ný.
Forsetarnir hófu viðræður
sínar á föstudaginn og í gær-
kvöldi komu þeir til Hvíta
hússins, eftir að hafa dvalið á
sveitasetri Bandaríkjaforseta í
Camp David í Maryland.
Zbigniew Brzezinski, ráðgjafi
Carters forseta í öryggismálum,
sagði í viðtali við tímaritið U.S.
News and World Report, að
Bandaríkjastjórn yrði að taka
óskir Sadats um vopnakaup til
alvarlegrar athugunar. „Við
verðum að koma í veg fvrir að
hernaðaryfirvöld í Egyptalandi
geti sagt að Sadat hafi brennt
allar brýr að baki sér í Sovét-
ríkjunum og nú er egypzka
þjóðin varnarlaus". Sadat
hefur fari fram á að fá full-
komin bandarísk vopn, þar á
meðal F5e herþotur af nýjustu
gerð.
í New York kom til mótmæla
vegna heimsóknar Sadats til
Bandaríkjanna. Eldsprengju
var varpað að heimili egypzks
sendiráðsmanns. Samtök
Gyðinga stóðu að mótmælun-
um. Skemmdir urðu litlar
vegna eldsprengjunnar.
sfp,
sem vekja athygli!
komið og skoðið í Skeifunn 8
V