Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. FEBRtJAR 1978. Kvikmyndahátídiii: Komið út úr fordóma- þokunni og úrskurðið um hvað er klám Birgir Sveinsson skrifar: Eg get ekki oröa bundizt vegna þeirrar svívirðilegu að- farar sem siðferðispostular dómsvaldsins gera að kvik-- myndaunnendum hérlendis. Þeir leyfa sér að banna ákveðna kvikmynd með því að vitna í einhverja hæpna reglu- gerð, sem fjallar um klám en gerir þó alls enga tilraun til þess að skilgreina hvað það sé. Hvar fengu þessir herrar það vald, sem ákvarðar hvað sé klám og hvað sé list? Er það ekki einstaklingsins að meta það allt út frá því gildismati sem hann býr við? Það hefði ég haldiö. Kvikmyndahátíðarnefnd hlýtur að mótmæla þessari freklegu afskiptasemi. Hún hlýtur að hafa verið ómæld sú fyrirhöfn sem nefndarmeðlimir lögðu á sig til þess að geta aflað kvikmynda sem heyra undir list og er einmitt verið að sýna í Háskólabíói þessa dagana. Og síðan koma þessar fornaldar- verur út úr fordómaþokunni og gera að engu alla þessa fyrir- höfn, veifandi einhverjum hug- tökum sem þeir vita sjálfir ekkert hvað merkja. Samein- umst í því að veita einstaklingnum sjálfum það vald að meta hvað sé honum til sálutjöns og hvað ekki. Raddir lesenda Stutt bréf og undir naf ni Lesendur sem hafa samband við lesendaþáttinn eru vinsam- lega beðnir um að athuga, að engin bréf eru birt nema þeim fylgi nafn og heimilisfang send- anda. Einnig að mikill kostur er að bréf séu stutt og skorinorð. Þá gefst okkur kostur á að birta fleiri bréf en ella og einnig að birta þau fyrr í blaðinu. STURLUNGAOLD ÁRÓDURS OG ÓÞJÓÐ- HOLLUSTU Siggi f lug skrifar um ástandið á Islandi Við Islendingar erum smáþjóð í þess orðs fyllstu merkingu og ekkert er okkur hættulegra heldur en að vera sífellt að rífast innbyrðis. Að vísu höfum við engan her eins og jafnvel aðrar smáþjóðir en væri hér her væri fyrir löngu búið að efna til byltingar í landinu. Það er að sjálfsögðu ágætt að við höfum engin vopn í landinu því þá væri yfir okkur skollin önnur Sturlungaöld með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum. Hér á landi ríkir að vissu marki Sturlungaöld, þótt ekki sé barizt með vopnum, Sturlungaöld rifrildis, ósam- komulags, áróðurs og óþjóð- hollustu, sém lamað hefur allt stjórnarfar í landinu nú um skeið. Eg hefi ekki orðið þess var að stórþjóði.r heims hafi verið að seilast eftir okkar litla landi nérna þá ein stór þjóð sem öll- um stendur stuggur af en það eru Rússar með útþenslu- stefnu sína. Sjálfstæði okkar hefur nú um stund verið stefnt í voða af okkur sjálfum með ósamkomu- lagi um stjórn landsins innávið og sumpart með gegndarlaus-’ um lántökum erlendis sem fyrr eða siðar hljóta að leiða til þess að okkur verður sagt fyrir verk- um og sjálfsákvörðunarréttur í fjármálum tekinn af okkur. íslendingar hafa einu sinni glatað sjálfstæði sinu vegna ósamkomulags og sundrungar þjóðarinnar, látum það ekki ske aftur. Mér datt þetta i hug. SIGGIflug 7877-8083. Húsakynnin hrörleg og lítið hugguleg Asa hringdi: ,,í hvert skipti sem ég þarf að fara út á Reykjavíkurflugvöll í Ertþú um tvítugtí Ijósgræn- um btt og keyptir sjónvarp o Stólum.l Vneð tveimur s 1 jssKápuv. '•>' ltvö sjonvarps'*F - Bendix.l Halldór Guðmundsson hringdi og tjáði okkur vandræði sín. Þannig er mál méð vexti að hann auglýsti ýmis húsgögn og heimilistæki í smáauglýsingum 4€ Við birtum mynd af smáaug- lýsingunni til upprifjunar því Halldór hefur mikinn hug á að uppfylla öll lög og reglur varð- andi tilkynningu um eiganda- skipti á sjónvarpstækinu. farþegaafgreiðslu Flugfélags Islands kemst ég í hálf vont skap. Mér finnast svo einstak- lega leiðinleg húsakynnin á vellinum. Ég skil ekkert í félaginu að laga ekki svolitið i kringum sig. Starfsfólkið er svo sem ekk- ert athugavert við, það erósköp elskulegt, það vantar ekki. en húsakynnin. Þau eru alveg fyrir neðar. allar hellur. DB á mánudaginn var. Gekk salan með ágætum eins og lög gera ráð fyrir. Reyndar var svo mikið að gera við söluna að þegar svarthvítt sjónvarpstæki skipti um eigendur láðist að fá nafn og nafnnúmer kaupand- ans og því er Halldór í vandræðum. Samkvæmt reglum á að gefa upp bæði nafnnúmer og nafn kaupanda sjónvarpstækis. Er það á ábyrgð seljanda ef svo er ekki gert. Kaupandinn mun hafa verið um tvítugt, að öllum líkindum á Ijósblágrænni Cortinu, og greiddi uppsettar 20.000 krónur. Viðskiptin gerði hann unga konu hér í borg. við

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.