Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. FEBRUAR 1978. Erlendar fréttir Skýrzla OECD: Verðbólgan minnst í Sviss, en næst- mest á Islandi Verö á neyzluvörum í iðnaðar- ríkjum vesturlanda hækkaði að meðaltali um 8.3% á síðasta ári samkvæmt upplýsingum frá OECD, efnahags og framfara- stofnun. Aðildarríki OECD eru 24 og var verðbólga minnst í Sviss eða 1.1% á síðasta ári. I kjölfarið sigldu V-Þýzkaland með 3.5% verðbólgu, Luxemburg 4.3%, Austurríki 4.6% og Japan 4.8%. Mest var verðbólgan í Tyrk- landi 36.6%, á tslandi 30.2% og á Spáni 26.4%. ORÐSENDING TIL VIÐSKIPTAVINA VEGNA FLUTNINGA Á FYRIRTÆKI VORU í NÝTT HÚSNÆDIAÐ Bfldshöfða 16 VERÐUR VARAHLUTAVERZLUN, BÍLASALA OG SKRIF- STOFUR LOKAÐAR DAGANA 13.—16. FEBRÚAR. OPNUM AFTUR 17. FEBRÚAR AÐ BÍLDSHÖFÐA 16. BDÖRNSSON BÍLDSHÖFÐA 16 Fasteignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 1 ■ 200 Kópavogur ■ Höfum til sölu: VIÐ HLÍÐARVEG Þokkaleg 2ja herbergja íbúð, 70 ferm. Verð 7,5-8 millj. VIÐ NJARÐARGÖTU 2ja herbergja einstaklingsíbúð, 35—40 ferm. Verð 5,5 millj. VIÐ MELGERÐI 3ja herbergja risíbúð. Verð 9 millj. VIÐ KÓPAVOGSBRAUT 4ra herbergja íbúð á efri hæð í timburhúsi. Nýklædd stofa með panel. Verð 10 millj. VIÐ KÓPAVOGSBRAUT 4ra herbergja íbúð á jarðhæð á góðum stað í vesturbæ Kópavogs. Góð íbúð. Verð 11-11,5 millj. VIÐ ASPARFELL Glæsileg íbúð 4ra herbergja með bílskúr. 16-16,5 millj. VIÐ ASPARFELL Glæsileg 4ra herbergja íbúö. Verð 15-15,5 millj. VID MELGERÐI 5 herbergja sérhæð með stórum bílskúr. VERZLUNARHÚSNÆDI TIL LEIGU 17 ferm. verzlunarhúsnæöi til leigu við Borgarholtsbraut i Kópavogi. Vilhjálmur Einarsson, sölustj. Pétur Einarsson, lögfr. SÍMAR 43466—43805 Sómalía: r Obreyttir borgarar kallaðir í herinn — undanhald undan Eþíópíumönnum Kúbanskt herlið er nú á leið á vígstöðvarnar í Ogaden eyði- mörkinni til aðstoðar Eþíópíu- mönnum í loft og iandhernaði gegn Sómulum. Almennt herútb’oð var látið út ganga í Sómalíu og eru óbreyttir borgarar nú þjálfaðir til átaka. Samkvæmt heimildum frá Addis Ababa hefur herlið Sómala orðið að hörfa um 10 km frá aðalvígstöðvunum. Þyrlur frá Eþíópíu vörpuðu niður dreifimiðum þar sem Sómalir eru hvattir til að gefast upp, þar sem Eþiópíuher hafi enn ekki beitt sér af fullum þunga. Ríkisstjórn Sómalfu hefur birt áætlanir um þátttöku óbreyttra borgara í stríðinu, en íbúar Sómaliu eru um 3.2 milljónir. Þá hefur hún einnig lýst því yfir að vænta megi hjálpar frá vestrænum ríkjum og Araba- þjóðum. Upplýsingaráðherra Sóma- iiustjórnar sagði að markmið iramrásar Eþíópíumanna væri neð að innlima norðurhéruð Sómalíu. Með því móti næðu peir hernaðarlega mikilvægu iandsvæði, sem liggur að ^denflóa og veitir aðgang að Rauðahafinu. Eþiópíustjórn hefur endur- tekið að það sé ekki ætlun þeirra að hertaka sómalískt 'andsvæði, heldur séu þeir aðeins að hrekja innrásarheri af höndum sér. Cyrus Vance, utanríkis ráðherra Bandaríkjanna, sagði að nú þegar berðust 2000 Kúbanir í Eþíópuíu og von væri á fleiri hermönnum þaðan. Þessi yfirlýsing kom í kjölfar frétta um að þúsundir kúbanskra hermanna væru að búa sig undir að stíga á land úr sovézkum skipum sem væru á Rauðahafi. I útvarpinu í Eþíópíu var þvi haldið fram í gær að Egyptar hefðu sent herlið og vopn til aðstoðar herliði Sómala, en aessum fullyrðingum hefur verið neitað í Kairó. Hér getur að líta það nýjasta í húsgagnatízkunni. Loksins er hægt að fá gerðarlega fætur undir stólana og menn ráða hvort þeir hafa skíðaskó, strigaskó eða dönsku hlankskóna á fótunum. Þessi nýjung kom fram í Kaliforniu og hönnuður stólanna, John Holmes, er þarna með hugarfóstrum sínum. BERKLASJÚKLINGURINN STAKK AF FRÁ SPÍTALANUM 0G FÉKK SÉR EINN GRÁAN — var sektaður fyrir vikiö Berklasjúklingur nokkur í Graz gær fyrir að stinga af frá spítalan- í Austurriki var dæmdur I um til þess að fá sér aðeins neðan rúmlega 100 þúsund króna sekt i í þvi. í dómnum sagði að berkla- sjúklingurinn Peter Genser, þri- tugur að aldri, hefði með þessu athæfi sinu í október sl. stofnað heilsu samborgara sinna í hættu. Hörö átök í Beirút Hörð átök hafa nú staðið í þrjá daga á milli sýrlenzkra og líbanskra herliða i austurhluta Beirút, aðsetri kristinna manna. Talið er að allt að 100 manns hafi fallið í gær er Sýrlendingar beittu skriðdrekum gegn Líbön- um. A þessum þremur dögum hafa þvf alls fallið um 150 manns. Bandaríkjastjórn hefur haft samband við bæði Sýrlendinga og Líbani og lýst yfir áhyggjum sín- um vegna hins alvarlega ástands.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.