Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 10.02.1978, Blaðsíða 16
Mt'nn eru tilbúnir aö greiöa f.iárfúlgur fvrir að líkjast sem mest hinum upprunalega Elvis Preslev. En sk.vldu sannir aödáendur samt ekki alltaf kunna að þekkja ósvikna varninginn frá gervidót- inu? MEIRA AF HINUM NÝJA PRESLEY Ekki alls fyrir löngu birtist í Dagblaöinu greinarstúfur um Dennis nokkurn Wise. Fjallaói greinin um þá ákvörðun hans að láta breyta andliti sínu þannig að hann líktist sem mest hinum alkunna Elvis Presley. Dennis Wise hefur nú gengizt undir sex klukkustunda and- litsaðgerð. Umboðsmaður hans, Danny O’Day, sagðist ekkert geta sagt um árangur skurðað- gerðarinnar fyrr en eftir um það bil viku. ,,En ég býst frekar við að hún beri stórkostlegan árangur,” sagði O’Day. Wise lá á einkasjúkrahúsi og var sér- stakur læknir fenginn til þess að breyta höku hans, nefi, vörum og kinnum. Wise eyddi síðustu helgi hjá tannréttinga- manni sem lagaði tennur hans þannig til að nú eru þær nákvæmlega eins og í Presley. Fanginn f rjáls innan veggja fangelsisins Vegna góðrar hegðunar eftir flóttatilraun sína 1 júní, hefur James Earl Ray verið veitt leyfi til þess að blanda aftur geði við aðra fanga fangelsisins sem hann dvelur 11 Petros. Ray er frjáls að fara úr klefa sínum út í sama fangelsisgarðinn og hann reyndi að flýja úr. Einnig má hann fara í leikfimisalinn, þvottahúsið, bóka- safnið og tómstundaherbergið. Ray hafði verið undir sérstöku eftirliti, en nú er talið nokkurn veginn áhættulaust að veita honum þetta mikið frelsi, jafnvel þótt hægt- sé að búast við hverju sem er af manni, sem á 99 ára fangelsi yfir höfði sér. ◄C James Earl Ray afplánar 99 ára fangelsi fyrir að hafa myrt blökkumannaleiðtogann Martin Luther King. DAGBLAÐIÐ'FÖSTUDAGUR 10. FEBRUAR 1978. ' „Féll sérstaklega fyrír rómantískum klæðnaðF9 — segir danska leikkonan Gitte Hænning, sem eyðir of f jár í fatakaup Hin vel kunna leikkona Gitte Hænning hefur aldrei reynt að dylja það að hún,á.mjög stóran fataskáp, troðfullan af fötum sem hún notar bæði í sínu einkalífi og til þess að koma fram í opinber- lega. Þessi fatabunki er m.a. or- sök missættis milli hennar og eiginmanns hennar, Jo Geistler, sem ásakaði hana fyrir að eyða öllum sínum peningum í tóma vit- leysu og hafa ekki hundsvit á fjármálum. „Það er rétt að ég elska föt,“ segir Gitte. ,,Ég hef yndi af að kaupa mér falleg föt, sérstaklega fell ég fýrir þeim rómantísku. Eg klæði mig alltaf eftir því í hvernig skapi ég er og hversu annríkt ég á. Eftir skilnaðinn við Jo gekk ég oftast nær í gallabux- um því ég hafði misst löngunina til þess að halda mér til. Þannig er ég alltaf þegar ég er döpur en þegar ég er í góðu skapi eru engin takmörk fyrir því hverju ég get klæðzt. Ég hef mikla ánægju af að fara á tízkusýningar og fá hug- myndir. Einstöku sinnum kaupi ég mér kjóla á þessum sýningum en ef ég sé einhvern, sem mig langar í en sem er of dýr, kaupi ég eitthvert fallegt efni og fer með það til saumakonunnar minnar og bið hana að sauma á mig eins kjól. Eg kaupi föt í hverju landi sem ég kem til, einnig i Danmörku, en eftirlætisverzlunin mín er jap- anska verzlunin Yuca í Hamborg. Þar hef ég fundið marga dásam- lega fallega kjóla. * Hvort ég fylgi alltaf alveg tízkunni veit ég ekki en ég ve! mér fyrst og fremst föt sem klæða mig og ég hef orðið fyrir miklum, áhrifum frá austurlenzkum fatnaði. - RK Þrátt fyrir hrakspár bandaifskrar völvu: Caroline og Philippe eru hin lukkulegustu Hér sjáum viö Carolinu prinsessu meö unnusta sínum, Phillippe Junot, í samkvæmi í París ekki alls f.vrir löngu. Völvan Jean Dixon spáöi nokkuð dapurlegri framtíð þeirra saman. eins og sagt var frá í Dagblaðinu ekki alls fvrir löngu. Viö skulum nú samt vona að völvunni hafi brugðizt bogalistin aö þessu sinni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.