Dagblaðið - 10.04.1978, Blaðsíða 3
DAGBLÁÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. APRlL 1978.
N
SIMINN GERIR
EKKISKYLDU
SÍNA
Mynd sem Páll kom meö af garði sínum. Eins og sést er fegurðin lttil.
Páll Símonarson, Heimahaga 18 Sel-
fossi, hafði samband við blaðið og'
sagði sinar farir ekki sléttar. 1 fyrra-
sumar grófu menn frá Pósti og síma
upp grasblettinn við hús hans og hafa
síðan aldrei lokið við að koma öllu i
samt lag aftur.
Þegar blettur Páls var grafinn i
sundur í fyrra var yfirvinnubann og
var honum tjáð hjá Pósti og síma að
ekki væru neinir menn til þess að lag-
færa þær skemmdir sem bletturinn
varð fyrir. En síðan er nærri ár og yfir-
vinnubanninu löngu lokið. Páll sagði
að í hvert sinn (og þáu eru mörg sinn-
in) sem hann hefði ítrekað að gengið
yrði frá bletti hans hefði öllu fögru
verið lofað en aldrei gerðist þó neitt til
úrbóta.
Páll sagði þetta ástand mjög slæmt
þvi for og drulla berst inn um allt hús
til hans á meðan svona er. Hann
sagðist vera viss um að símanum bæri
skylda til að laga blettinn hans svo að
hann yrði ekki verri en hann var fyrir
gröftinn.
Malarbílamir aka með ofsa-
hraða á Vesturlandsveginum
Anna skrifar:
„Rosalega leyfa malarflutningabíl-
amir á Vesturlandsveginum, nánar til-
tekið ofan úr Mosfellssveit, sér að aka
ógeðslega hratt. Ég er í rauninni alveg
gáttuð á að ekki skuli hafa orðið mörg
banaslys af þeirra völdum.
í morgun ók ég ofan úr Mosfells-
sveit og var komin í tæplega 80 km
hraða. Þá kom fullhlaðinn malarflutn-
ingabíll og ók fram úr mér, meira að
segja á kafla vegarins þar sem bannað
er að aka fram úr. Malarbillinn var
fullhlaðinn og fór svo hratt að við
borð lá að hann hyrfi úr augsýn á svip-
stundu!
Ég þori að veðja að hann var að
minnsta kosti á 100 km hraða ef ekki
meir. Mér er til efs að bíllinn hefði
getað stoppað þótt líf hefði legið við.
Ég held að lögreglan ætti að reyna
nýju hraðamælingartækin sín á þess-
um vegi.”
Raddir
lesenda
Ætlar þú í siglingu
í sumar?
Steinunn Guðný Magnúsdóttir bók-
haldari: Já, ég er einmitt á förum næstu
Jaga. Ferðinni er heitið til Kanaríeyja
og eru þær algert uppáhald. Ætli ég hafi
ekki fariðsvona 10—11 sinnum.
Magnea Öiafsdóttir skrifstofustúlka:
Það er verið aðspái það að fara til Kaup-
mannahafnar. Ég hef einu sinni áður
komið þangað.
Framhalds-
þætti
Saltkráku
E.A. skrifar:
Ég vil vekja athygli forráðamanna
sjónvarpsins á að taka til sýningar
framhaldsþætti um Saltkrákuna. Þeir
hafa aldrei verið sýndir hér en yrðu ef-
laust vel þegnir hjá yngri sem eldri.
Þessir þættir voru sýndir í Sænska
sjónvarpinu i vetur og hétu „Vi bor pá
Saltkrákan”.
Hljómbur ðurinn
einmitt
eins og þú
óskar þér
hann...
Auður Rafnsdóttir nemi: Alveg örugg-
lega ekki. Hef bara ekki efni á þvi.
Ásgeir Ármannsson bókbindarj: Alveg
örugglega. Ég fer til Norðurlanda og hef
farið þangað ótal sinnum.
(mótsetningu viðöllönnurstereo-heyrnar-
tæki getur þú á KOSS Technican/VFR stjórnað
hljómburðinum alveg eftir þínu höfði. ístaðinn
fyrirað þú hlustirá uppáhalds tónverkin eins og aðrir heyra þau, nýtur þú þess að geta
framkallað þann hljómburð sem er þér að skapi- aðeins með því að færa til VFR-stillinn.
Tæknilegar upplýsingar: 50 mm aflhátalarar • Mótstaða : 230 ohm/1 kHz
• Tíðnisvið: 10-22000 Hz • Næmleiki: 95 V-rms/1 kHz • Bjögun: Minni en 0,4%/1 kHz/100
dB SPL • Hljóðstyrkur við 1% bjögun: 108 dB/1 khlz • 3 metra gormlaga aðtaug
• „Pneumalite" eyrnapúðar. • Tenging fyrir gálgahljóðnema • Þyngd: 483 g (u/aðtaug)
Helgi Jónsson bóndi: Það væri gaman
að geta það, en ég hef öðrum hnöppum
að hneppa.
Verð hr. 29.255.-
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
, fiekking
/tynsla
Þjonust
Dagur Ásgcirsson skrifstofumaður: Ég
reikna alls ekki með því. Ég hef nú látið
innanlandsferðalög nægja mér. Ætlið
þið kannski að bjóða mér?