Dagblaðið - 18.04.1978, Side 6
6
f
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978.
' 1,1
Amnesty samtökin taka að
sér milligöngu í máli Moros
Kristilegi demókrataflokkurinn á
Ítalíu hefur fagnaö tilboði hinna
alþjóðlegu Amensty samtaka um að
reyna að hafa millgöngu i máli Aldo
Moros, formanns Kristilega
demókrataflokksins og fv. forsætis-
ráðherra ltalíu og reyna á þann hátt
að koma í veg fyrir að Moro verði
tekinnaf lífi.
Tilboðið kom frá London i gær og
hafa kristilegir demókratar á ítaliu
lýst því yfir að þetta skref sé mjög já
kvætt. Flokkurinn hafði áður gefið út
yfirlýsingu þar sem sagði að hann
myndi leita allra hugsanlegra leiða
sem samrýmdust stjórnarskrá Italíu
til þess að bjarga lifi Aldo Moros.
Rauðu herdeildirnar á Italiu, sem
rændu Aldo Moro 16. marz sl., sögðu
á laugardaginn að Aldo Moro hefði
verð dæmdur til dauða vegna glæpa
gegn alþýðunni. Ekki var tekið fram í
TOGSPIL
6-8tonnalágþrýsttogspil
óskastkeypt
Uppl. i síma 10403 Reykjavík
og1350 Hvammstanga
Skrifstof ustarf í austurborginni
Félagasamtök óska eftir að ráða starfskraft til
almennra skrifstofustarfa. Vélritunarkunnátta
áskilin. Kunnátta í einu Norðurlandamálanna
æskileg. Hálfsdagsstarf kemur til greina. Þyrfti
að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Dagbl. merkt:
„FCC — 1978” fyrir 20. apríl nk.
Kjarvalsstaðir
Síðasti fyririesturum
uútíma höggmyndalist
íkvöldkl. 18.
USTARÁÐ.
Raf
Kóp
Italíuljósin kominaftur
Pantanir óskast sóttar
Takmarkaðarbirgðir
Kópavogs h/f
Hamraborg 11, Kópav. Sími 43480.
tilkynningunni hvenær aftakan ætti
að fara fram. Maður, er ekki sagði til
nafns sins, hringdi í blað kommúnista,
L’Unita, í gær og sagði að Moro hefði
þegar verið tekinn af lífi en ekki er
vitað til þess að maður þessi sé á veg-
'um Rauðu herdeildanna og gæti þvi
verið um gabb að ræða.
Bæði Carter Bandaríkjaforseti og
Kurt Waldheim aðalframkvæmda-
stióri Sameinuðu þjóðanna endur-
nýjuðu óskir sinar um að Moro yrði
sleppt ómeiddum.
Amnesty eru alþjóðasamtök sem
berjast fyrir frelsi pólitískra fanga
víða um heim. Talsmaður samtakanna
sagði að fólk nátengt Moro hefði haft
samband við samtökin og beðið þau að
hlutast til um milligöngu i máli
Moros.
Amnesty samtökin hafa sent
tilkynningu til Rauðu herdeilanna, þar
sem farið er fram á viðræður við
mannræningjanna, þar sem ástæður
mannránsins verði ræddar.
Leiðtogi Rauðu herdeildanna, sem
er fyrir rétti i Tórinó, var fluttur úr
réttarsalnum, er hann sagði dómaran-
um að dauðarefsing Moros gilti fyrir
alla valdastétt ttalíu.
Mannrán Aldo Moros hefur þegar kostað sex mannslif og siðast var fangavörður, sem gætt hetur ieiðtoga Kauðu her-
deildanna í Tórínó, myrtur. Hér sézt hann eftir árás skæruliða Rauðu herdeildanna en áður hafði hann náð að særa einn
skæruliðanna sem nú liggur á sjúkrahúsi.
AGAPOVA Á GEÐSJÚKRAHUS
- að sögn Ludmilu tengdadóttur hennar
Antonina Agapova, sem reyndi að
stytta sér aldur á vegabréfaskrifstofu
fyrir skömmu, eftir- að yfirvöld neituðu
siðustu bón hennar um að fá að flytjast
úr landi, verður send á geðsjúkrahús til
meðferðar, að sögn tengdadóttur hennar
Ludmilu Agapova. Eiginmaður Lud-
milu, Valentin, strauk af sovézku verzl-
unarskipi til Sviþjóðar árið 1973.
Ludmila sagði vestrænum fréttamönn-
um að hún hefði fengið aö vita um þessa
ákvörðun frá læknum sem annazt hafa
um Antoninu vegna brunasára af völd-
um sýru sem hún drakk. Antonina,
sem er sextíu og átta ára, er illa brennd
af sýrunni í munni, hálsi og maga.
Ludmila hefur margreynt að komast
úr landi með þrettán ára gamla dóttur
sina, til þess að komast til eiginmanns
síns. Hún sagði i gær, að líf sitt væri ein
martröð.
Eins og áður hefur komið fram í frétt-
um var gerð misheppnuð tilraun til þess
að ná mæðgunum úr landi en sænskur
flugmaður var tekinn fyrir að brjóta loft-
helgi yfir landamærum Finnlands og
Sovétríkjanna.
Antonina Agapova
Erfittað vera Gyðingur
LÍKICHAPLINS STOLIÐ AF
TRÚARLEGUM ÁSTÆÐUM
— Oona ekkja Chaplins fékk þegar að
vita hvar líkið væri að finna
Dagblaðið Los Angeles Herald
Examiner hefur upplýsingar um að líki
Charles Chaplin hafi verið stolið frá
grafreiti í Sviss vegna þess að hann var
Gyðingur, en ekki jarðsettur í grafreit
Gyðinga.
Blaðið segir einnig að ekkju Sir
Charles, Oonu, hafi verið tilkynnt um
þetta innan sólarhrings eftir að líkinu
var stolið og einnig fékk hún að vita
hvar það væri að finna.
Kvikmyndaskýrandi blaðsins, James
Bacon, sagði aö ef líkinu hefði verið
stolið af trúarlegum ástæðum, þá skýrði
það hvers vegna ekki hefði verið farið
fram á lausnargjald fyrir líkið. Líki
leikarans heimskunna var stolið frá
svissnesku smáþorpi, Corsier-sur Vevey,
en þar bjó Chaplin með fjölskyldu sinni
síðustu æviárin.
Bacon vitnaði í heimildir blaðsins og
sagði: „Líkstuldurinn var eingöngu
trúarlegs eðlis og einskis annars. Engar
kröfur voru gerðar um fjárútlát vegna
þjófnaðarins og ekkjunni var nær sam-
stundis tilkynnt um hann, og hvar likið
væri að finna. Chaplin var Gyðingur og
grafinn meðal fólks sem játaði aðra trú.
Fjölskyldur annarra sem grafnir hafa
verið á þessum stað komust að þessu og
fjarlægðu líkið.
Charlie Chaplin