Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.06.1978, Qupperneq 5

Dagblaðið - 05.06.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ1978 5 Frá torfæruaksturskeppninni við Hellu: Sigraöi annaö áriö í röö Margir áttu i stökustu vandræðum við fyrstu þraut keppninnar, að komast yfir gryfju fulla af hjóibörðum. Þar gilti sama lögmálið og i öðrum greinum torfæru- aksturs: beztu ökumennirnir komust yfir. — leiðinlegt veður og óhöpp settu svip sinn á keppnina Rok og rigning settu svip sinn á torfæruaksturskeppni Flugbjörgunar- sveitarinnar á Hellu, sem fór fram í fimmta skiptið á laugardaginn. Um tíma gerði meira að segja haglél og var þá ekki laust við að furðusvipur kæmi á suma áhorfendur sem í sakleysi sinu héldu að sumarið væri komið. Sigurvegari i keppninni var Benedikt Eyjólfsson. Hann hlaut 1200 stig af jafn- mörgum mögulegum. Benedikt sigraði einnig í sömu keppni i fyrra. Þorsteinn Guðjónsson varð í öðru sæti og hlaut 890 stig. Þriðji varð Gunnar Svein- björnsson með 790 stig og tiu stigum neðar varð fjórði maðurinn, Gunnlaugur Bjarnason. Allir fjórir efstu óku Willys jeppum. Alls hófu þrettán bílar keppnina sem fór fram í sandhólum skammt austan við Hellu. Einn heltist úr lestinni er keppnin var hálfnuð. Aðstandendur hennar höfðu ákveðið að miða þátt- tökuna við tíu bíla en umsóknir fóru langt fram úr þvi sem búizt hafði verið við. „Við ætlum i framtiðinni að gera mun meiri kröfur til keppendanna en hingað til,” sagði Óskar Jónsson, einn umsjónarmanna keppninnar, sem Dag - blaðið ræddi við. „Hér áður fyrr vorum við alltaf tilbúnir með nokkra bíla frá félagsmönnum Flugbjörgunarsveit- arinnar ef þátttaka yrði ekki nægileg. Nú voru keppendur hins vegar of margir og við gátum ekki leyft þeim að gera nema eina tilraun við hverja þraut í stað tveggja áður.” Segja má að óheppnin hafi elt Flug- björgunarsveitarmenn á laugardaginn. Auk óveðursins, sem spillti mjög fyrir keppninni, varð óhapp á þriðju braut keppninnar. Þá missti ökumaður eins bilsins vald á tæki sinu og ók inn í hóp áhorfenda. Þar fór þó allt betur en horfðist í fyrstu. Ungur drengur slasaðist þó og var fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi. Frá þessu slysi er sagt á öðrum stað í blaðinu. Eftir slysið var hætt við keppni á braut þrjú. En siðar var að beiðni keppendanna einnig hætt við loka- þrautina. Að sögn Óskars Jónssonar var ekki fallizt á að þrautin yrði felld niður fyrr en allir ökumennirnir voru orðnir sammála um að þeir treystu sér ekki í i'hana. Talsvert áberandi var hversu vel ökumenn eru farnir að búa bíla sína út til torfæruaksturs. Allir eru þeir nú komnir með veltigrindur og skilyrði var sett um að þeir þyrftu að hafa bilbelti og öryggishjálma. Áhorfendur að torfæruaksturs- keppninni voru á þriðja þúsund talsins, þegar mest var. Hins vegar flúði fólk í stórum hópum þegar rigningarskúrir og él gengu yfir. Dálitið ölvun var á svæðinu en þó ekki mjög áberandi. Auk flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu gengst Björgunarsveitin Stakkur i Keflavík fyrir árlegri torfæruaksturs- keppni. Sú keppni fer fram á Suður- nesjum seinni hluta sumars. -ÁT- Sigurvegarí keppninnar, Benedikt Eyjólfsson, rennb- sér af staö I dekkjahrúguna. Eftirtektarveröir eru hjólbarðarnir undir Willy’s jeppa hans, sem eru verulega breiðari en gengur og gerist. — Benedikt sigraði í keppninni með tólf hundruð stigum af jafn mörgum mögulegum. Sunna býöuralitþaö bezta sem til er á Grikklandi Hægt er að skipta Grikklandsvöl milli þessara staða og upplifa þetta allt í einni og sömu Grikklandsferðinni. AÞENUSTRENDUR RHODOS SKEMMTISIGLING 1 11 111 Glifada, eftirsóttasti tízkubað- strandarbærinn. öll Sunnuhótel og ibúflir mefl einkasundlaug og sólbaðs- görðum. Fjölbreytt skemmtana- og vertingahúsalff. Glifada baflstrandarbærinn er Hka dvalarstaður Onassis- fjölskyldunnar og annarra þeirra sem kunna afl velja sér beztu dvalarstaðina i Grikklandi. VOULIAGMENI Fyrir þó sem vilja dvelja ó afskekktum stað fjarri veitinga- húsum og skemmtistöðum. Þar býður Sunna upp ó hótel vifl sjólfa baðströndina og afl sjólfsögðu mefl góðri sund- laug og sólbaðsaflstöðu. Vouliagmeni er tilvalinn staður fyrir þó sem kjósa kyrrð og rólegheit i sumarleyfinu. — blómaeyjan fagra Góðar baflstrendur, hótel og ibúflir, fjölbreytt skemmtana- Kf. islenzkur fararstjóri Sunnu ó Rhodos sér um fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferflir, m.a. yfir sundið til Tyrklands. Rhodos er tollf rjóls eyja þar sem fólk getur gert góð kaup. Blómaeyjan Rhodos hefur lengi verið ein vinsælasta sól- skinsparadis frænda okkar ó Norðurlöndum, enda er um helmingur allra ferðamanna þar Norfluriandabúar. með 1700 lesta, fljótandi ævintýraborg á Miðjarðarhafinu. Ævintýrið sem alla dreymir uml Viflkomustaflir: Rhodos — Krit — Korfú — Júgóslavia — Feneyjar — Aþena. DAGFLUG Á ÞRIÐJUDÖGUM: Þegar fullbókafl suma flugdaga og afleins örfó sœti laus flesta hinna. Brottfarardagar: 27. júni — 18. júli — 1. —8. — 15. — 22 og 29. ógúst, 5 — 12. og 19. sept. FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRÆH10, SÍMI29322

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.