Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 36
Lögreglan eltist við þýzka feðga á þrem bílum vítt um landið: Höföu útbúnað til að ræna hreiður fálka ______________________________ _ . r iiim i i . . —' ........ ; ' ■" ' '■ ■ Á þessum fólksvagen voru fuglaveiðimennirnir. í honum fannst margvíslegur útbúnaður til rána á eggjum og ungum. — verð fyrir veiðifálka geysihátt erlendis Á fjórða sólarhring eltist lögreglan við feðga sem ferðuðust um landið og lögðu sérstaka áherzlu á að koma við á stöðum þar sem vitað er um fálka- eða hrafi shreiður eða góð skilyrði eru fyrir slík hreiður. Feðgar þessir eru ^zkir og hefur sá eldri komið við sögu 1 sambandi við þjófnaðá fálkaungum. Feðgarnir komu til landsins þann 30. maí. Daginn eftir lögðu þeir upp og óku á Volkswagen „rúgbrauði” norður að Mývatni með viðkomu á Akureyri og ýmsum krókum. Þar sneru þeir við og óku aftur í bæinn. Mestallan þann tima var lögreglan á eftir þeim. Samkvæmt upplýsingum frá William Th. Möller fulltrúa lögreglu- stjóra voru mennirnir með ýmsan út- búnað í bil sinum sem auðveldar þeim að ná ungum og að halda eggjum heitum til þess að unga þeim út seinna. Voru þeir til dæmis með fullkominn sigútbúnað með stól og langa stöng með snöru og háf. Núna er óvist hvað verður um menn þessa. Eins og William benti á hafa þeir ekki framið neitt lögbrot því þeir rændu engin hreiður nú og fóru aldrei of nálægt hreiðrum til þess að Allt var rannsakað mjög nákvæmlega og meira að segja þefað upp úr brús- um. — DB-myndir Sveinn. trufla ekki fuglana. Þó þeir hafi þenn- an útbúnað er ekkert sem sannar að þeir hafi ekki ætlað að steypa undan hrafni eða svartbak. Máli feðganna hefur verið vísað til dómsmálaráðu- neytis og er það þar í athugun. Viða um heim eru geysiháar upp- hæðir í boði fyrir fálkaunga sem tamdir eru til veiða. - DS Tveim siglingamönnum bjargað á elleftu stundu — Voru blautir og kaldir á kili eftir óhapp Tveir menn sem fóru i siglingu i gærmorgun eiga líf sitt nú að launa Birni Guðjónssyni, grásleppuveiðimanni við Ægissíðu, og syni hans Ásgeiri. Það óhapp varð hjá siglingamönnunum tveimur, sem voru svona árla á ferð, að bát þeirra hvolfdi og komust þeir á kjöl bátsins en voru síðan hjálparvana blautirogkaldir. Björn kom auga á eitthvað það sem honum fannst athugunar vert, og er þó afar erfitt að greina svo litlar þústir sem tveir menn á kili eru í fjarlægð. Við athugun kom í ljós að þarna voru menn í nauðum og björguðu þeir feðgar mönn- unum tveimur. Að þeim slepptum sem gera út á grá- sleppu frá Skerjafirði eru fáir á ferli árla morguns á þeim slóðum þar sem sigl- ingabátnum hvolfdi. Mega mennirnir tveir því sjálfsagt þakka líf sitt árvekni Björns trillumanns. ASt. Sigurfréttir i fjörukambi Þcssa mynd tók ungur áhugaljós- staði. Slíkt virðist árátta hjá allt of myndarí vcstur á Seltjarnarnesi um mörgum. Hvcrnig pakkarnir með helgina þegar hann arkaði um fjörur í sigurfréttum Þjóðviljans eru svo leit að efni til að festa á filmu. Það komnir í fjörur þcirra á Nesinu er víst verður víst aldrei of oft brýnt fyrir fólki flestum ráðgáta. að fleygja ckki rusli í fjörur og á fagra ~ 'myn ' Lík rak við Staf nes 1 gærkvöldi fannst lík í fjörunni og þykir líklegt að um sé að ræða lik niður af Stafnesi á Reykjanesi. Var ungs manns sem fórst er hann lagði til likið nokkuð illa farið og er það nú til róðurs frá Höfnum fyrir nokkrum rannsóknar. Likið var klætt I sjóstakk vikum. ASt. HALDA AFRAM Garðmenn vilja greinilega ekki missa sveitarstjórann sinn, Harald, Gíslason, þótt nýr meirihluti hafi fengið völd við sveitarstjórnárkosning- arnar. Undanfama daga hefur verið safnað undirskriftum, þar sem skorað er á hann að gefa kost á sér til áfram- haldandi starfa fyrir Gerðahrepp og hefur söfnunin gengið vel. Haraldur er fyrsti sveitarstjórinn i hreppnum og var ráðinn fyrir fjórum árum. Þótti flestum byggðarlagið taka miklum stakkaskiptum undir hans framkvæmdastjórn, auk þess sem hann gegndi ýmsum forystu- og trúnaðarstörfum i samstarfi sveitar- félaganna á Suðurnesjum. Fyrir rúmu ári tók að bera á missætti á milli hans og þáverandi meirihluta. sem lauk með þvi að hann sagði upp starfi rétt eftir áramótin og miðaði við aðhættaijúní. Af hálfu þáverandi meirihluta í hreppsnefnd var því haldið fram í kosningabaráttunni að sveitarstjóra- embættið væri óþarft. Oddviti gæti gegnt þvi mjög auðveldlega. En Garð- menn voru á öðru máli. H-listinn, lapaði tveimur mönnum af fjórum, i kosningum og missti meirihlutavaldið. sem aðilar hans höfðu haft uni ára- tuga skeið. Sennilega er það mjög fátítt. ef ekki einsdæmi, að kjósendur nýí meiri- hluta óski eftir að sami sveitarstjóri og áður gegni áfram störfum að kosningum loknum, en á það mun reyna næstu daga með Harald Gisla- son sveitarstjóra i Gerðahreppi. GS. Haraldur Gislason sveitarstjóri, lagt er að honuni að halda áfram störfum fyrir sveitarfélagið I Garðinum. SKORA Á SVEIT- ARSTJÓRANN AÐ frjálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1978! Nefbrotnaði íkoddaslag Smáóhapp varð í Þorlákshöfn er sjó- menn og fleiri gerðu sér ýmislegt til gamans I tilefni sjómannadagsins. Meðal skemmtiatriða var koddaslagur. Einn þátttakandi var sleginn úr stöðu sinni og í falli slóst andlit hans við nálægan hlut. Skrámaðist maðurinn i andliti og var hugsanlega talinn nefbrotinn. Af þessu má ýmislegt ráða um hættuna sem koddaslagur getur haft í för með sér.ASt. Splunkunýju hjóli stolið — frá 9 ára telpu Splunkunýju reiðhjóli var stolið frá niu ára gamalli telpu, frá heimili hennar að Bolholti 6 Reykjavik á föstudaginn var. Þeta fjögurra daga gamla hjól telp- unnar er af ESKA gerð og rautt að lit, með brúnu sæti og verkfæratösku. Þetta er svokallað fjölskylduhjól og er hægt að leggja það saman i miðju. Hafi einhver fundið hjólið eða geti gefið upplýsingar um hvar það er niður komið, er hann beðinn að hringja strax í lögregluna í Reykjavík, simi 11166, eða Dagblaðið í síma 85112. 'KhP DB-mynd Örn Lúðviksson. Fylgjast með Greenpeace-málinu: Sjónvarps- menn á skútu Einhver glæsilegasta seglskúta sem hingað hefur komið er nú I Reykjavíkur- höfn og mun væntanlega halda á hval- veiðimiðin í dag. Skútan, sem heitir Spirit of Labrador. er hér i leigu belgiska sjónvarpsins, sem ætlar að fylgjast náið með aðgerðum Greenpeacemanna i þá veru að trufla veiðar íslenzku hvalbát- anna á langreyði. Skútan kom í gær. en sjónvarps- mennirnir koma með'flugi til landsins. Skútan er 75 feta löng, með tveim stórum möstrum og miklu seglhafi. Er ekki óvarlegt að segja að hún gangi a.m.k. 20 mílur í góðum byr en hjálpar- vélarnar einar koma henni á 10 milna hraða með felldum seglum. Eitthvað minni svipur er á „aðal- leikara” málsins, gamla togaranum Rainbow Worrier, sem skv. nýjustu fréttum er kominn að hvalveiðiflotanum suð-vestur af landinu. Samtals hyggjast samtökin eyða um 23 milljónum króna til mótmælaaðgerðanna hér. - GS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.