Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ1978
19
Brasilíumenn rifust og
þverslá þeirra nötraði
— Jafntefli Svíþjóðar og Brasilíu, þar sem Svíar léku mjög vel
Það munaði aðeins millimetrum, að
Svíar heinlínis kafsigldu Brasiliumenn I
Mar del Plata I fyrri hálfleiknum f HM-
leik liðanna á laugardag. Svfar réðu
öllum gangi leiksins eftir fyrstu 15 mín.
Thomas Sjöberg, miðherji Svfa, komst
frfr að brasilfska markinu á 20. mfn.
Hörkuskot hans sleikti þverslána ofan-
verðu — en sautjan mfn. sfðar bætti
hann það upp eftir mistök Oscars. Náði
knettinum og skoraði. Fjórum mfn. sfðar
nötraði þverslá marks Brasilfu eftir
hörkuskalla Lennart Larsson — eftir
fyrirgjöf Bo Larsson. En Brassarnir
sluppu fyrir horn. Reinaldo jafnaði
nokkrum sekúndum fyrir leikhléið. Fleiri
mörk voru ekki skoruð. Jafntefli 1—1.
„Svfar hefðu auðvcldlega unnið þennan
leik ef þeir hefðu haft meiri trú á getu
sinni,” sag'ði Alan Parry, fréttamaður
BBC. Brasilíumenn rifust innbyrðis og
ef þeir voru felldir lágu þeir lengi á
vellinum, emjandi.
Dökk ský hrönnuðust yfir leikvöllinn
í Mar Del Plata, þegar áhorfendur
streymdu á völlinn til að sjá fyrsta
leikinn í 3. riðli. ískaldur vindurinn og
regnskúrir bárust inn á völlinn frá
Atlantshafinu. Brasilíumenn á áhorf-
endapöllunum reyndu að halda á sér
hita með því að dansa sömbu og berja
rythmann á járnhandriðin.
Áhorfendasvæðin voru hálfskipuð,
þegar leikurinn hófst. Brasiliumenn
byrjuðu betur og fengu þrjú góð
tækifæri að sögn Reuters — ekkert að
sögn BBC, sem sagði að vörn Svía með
Björn Nordquist í broddi fylkingar, hefði
verið mjög sterk. Svíar mun betra lið i
fyrri hálfleik. Nordquist setti landsleikja-
met — lék sinn 109. landsleik og bætti
met Bobby Moore.
En snúum okkur að frásögn Reuters,
sem segir, að fyrst hafi Rivelino leikið
Gil frían. Hellström varið skot hans með
tilþrifum — og síðan hafi þeim Toninho
og Reinaldo ekki tekist að hitta markið
sænska úr góðum stöðum.
Siðan fóru Svíarnir að sækja í sig;
veðrið. Benny Wendt og Sjöberg mis-
notuðu auðveld tækifæri — og Sjöberg
'spyrnti yfir markið af tveggja metra
færi, frir.
Þá segir Reuter, að Svíar, mjög sterkir
í vörn, hafi náð yfirtökunum í leiknum.
Pressa þeirra skapaði mikla ólgu í vörn
Brasiliu hvað eftir annað og á 37. mín.
tókst Sjöberg að skora. Flestir hinna 30
þúsund áhorfenda urðu þá mjög miður
sin. En Brasiliu tókst að rétta sinn hlut.
Miðherjinn Reinaldo sendi knöttinn i
mark Svía eftir fyrirgjöf Cerezo. Þá var
komin ein mínúta fram yfir leiktímann,
en hinn snjalli dómari leiksins, Clive
Thomas, Wales, lét leikinn halda áfram í
tvær mín. vegna tafa, sem urðu í fyrri
hálfleiknum. Tveimur mín. áður hafði
Reinaldo misnotað gott tækifæri.
Hellström varði skot hans eftir að
Edinho hafði leikið hann frían.
Hellström hélt ekki knettinum en Gil
spyrnti yfir þverslá.
Brasilíumenn léku betur í'síðari hálf-
leiknum og á 50. min. munaði litlu, að
sænskur varnarmaður skoraði sjálfs-
márk. En Svíar voru sterkir fyrir en þó
munaði litlu í lokin. Batista skallaði
„Já, ég var að koma frá Sviþjóð, þar
sem ég gerði samnming við sænska liðið
IFK Kristianstad og ég mun leika með
þvi handknattleik og knattspyrnu.
Félagið er með þekktari félögum
Svíþjóðar i handboltanum og i knatt-
spyrnunni leikur það i 2. deild”, sagði
Stefán Halldórsson, þegar DB ræddi við
hann i Brussel í gær. Samningur Stefáns
erí 18mánuði.
„Ég losna ekki frá Union fyrr en 15.
júní og enn á sænska liðið eftir að semja
við Union. Það ætti þó að ganga i gegn.
Ég vonast til að fara til Svíþjóðar um 20.
júní og verð að hafa dvalið þar i landi i
tvo mánuði áður en ég get leikið með
Kristianstad. Það verður því ekki mikil
knattspyrna á þessu sumri þar — en í,
knöttinn í mark Svía — en á flugi knatt-
arins í markið hafði Clive Thomas flaut-
að leikslok. Áhorfendur og leikmenn
Brasiliu ærðust, þegar markið var ekki
dæmt gilt. En það hefði verið mikið
óréttlæti ef Brasiliumenn hefðu hlotið
sigur í leiknum. Svíar voru betri
lengstum og virðast hafa góða
möguleika á að komast i milliriðil eftir
þessa frammistöðu sina.
Mjög kom á óvart hin slaka
frammistaða Rivelino, hins 32ja ára
fyrirliða Brasiliu. Sendingar hans í leikn-
um voru mjög slæmar og fréttamenn
BBC gengu svo langt að segja, að ef
Brasilíumenn ætluðu sér einhvern hlut á
HM yrðu þeir að setja Rivelino úr
liðinu.
„Leikmenn mínir náðu ekki sínum
bezta leik vegna þess að þeir voru of
taugaóstyrkir — margir í fyrsta sinn á
HM. Mark Svía gerði hlutina enn verri
— en ég verð að óska Svíum til
hamingju með frammistöðu sína,” sagði
þjálfari Brasiliu, Claudio Cautinho, eftir
leikinn.
handboltann fer ég í vetur. Þá þarf ég
einnig að fá áhugamannaréttindi mín
aftur”, sagði Stefán ennfremur.
Stefán Halldórsson var miðherji Vik-
Þrátt fyrir slæmt veður á laugardag,
þegar Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum hófst náði Elías Sveinsson, KR,
mjög athyglisverðum árangri í tugþraut.
Hlaut 7382 stig og var því aðeins 200
stigum frá íslandsmeti Stefáns
Hallgrimssonar. Þráinn hafsteinsson, Á,
varð annar með 6868 stig og Pétur
.Pétursson þriðji með 6499 stig.
Stefán Hallgrímsson, UÍA, hafði for-
ustu allt fram að sjöundu grein en felldi
Andretti vann
íMadrid
Mario Andretti, USA, sigraði i
grand prix kappakstrinum í Madrid i
gær. Ók á 1 klst. 41.47.06. Annar varð
Ronnie Petterson, Svíþjóð, á 1:42.06.02.
Meðalhraði Andretti 150.5 km á klst.
Hann er nú efstur í stigakeppninni með
36 stig. Petterson annar með 26 stig og
Patrick Depailler, Frakklandi, þriðji
með 23 stig.
„Þeir verða erfiðir hvaða liði sem er i
þessari heimsmeistarakeppni. Sviar léku
nákvæmlega éins og við höfðum búizt
við. Sterkir í vörn og hættulegir i
skyndisóknum. Ég veit að þetta verður
erfitt. Það er kannski ekki alvarlegt að
tapa stigi — en við lékum illa í dag. Við
höfum þó unnið HM áður eftir að hafa
gert jafntefli. Hins vegar hef ég aldrei
séð annað eins og þegar dómarinn
dæmdi markið af í lokin. Það var alveg
furðulegt en ég kvarta þó ekki." sagði
Cautinho ennfremur.
„Þetta er góður leikur og bæði lið léku
vel. Ég hélt fyrir leikinn að jafntefli væri
líklegra en sænskur sigur. Dómarinn var
frábær," sagðiu George „Aby” Ericson
þjálfari Svia eftir leikinn.
Liðin voru þannig skipuð. Brasilía.
Leao, Toninho, Oscar, Amaral, Edinho,
Batista, Cerezo (Dirceu 88 mín.),
Rivelino, Gil (Nelinho 68 min.l,
Reinaldo og Zico. Svíþjóð. Hellström.
Borg, Andersson, Nordquist, Erlands-
son. Tapper. Larsson, (Edström 84
mín.), Linderoth, Bo Larsson, Sjöberg og
Wendt.
ings i 1. deild í knattspyrnunni áður en
hann fór til Union fyrir tæpum tveimur
árum. Þá var hann einnig í handknatt-
leiknum með Víking og lék marga lands-
leiki.
þá byrjunarhæð þá, sem hann reyndi í
stangarstökkinu og var úr leik (3.80 m).
Þá var hann 39 stigum á undan Eliasi.
5289 gegn 5250, en Elías stökk 4.35 m í
stangarstökkinu. Ólíklegt er að Stefán
hefði sigrað i þrautinni þó svo hann
hefði stokkið yfir 3.80 m i stangar-
stökkinu.
Árangur Eliasar í einstökum greinum
var þessi: 11.0 sek. 6.34 m. 13.72 m. 1.85
m og 51.6 sek. Siðari dagur 15.4 sek„
45.38 m, 4.35 m, 62.52 m og 4:49.3 min.
Ágúst Þorsteinsson, UMSB, var ís-
landsmeistari í 10 km hlaupi og náði
sínum bezta tima 32:17.6 min. Gunnar
Snorrason, UBK, varð annar á 34:18.4
mín. Thelma Björnsdóttir, UBK, varð
íslandsmeistari i 3000 m hlaupi á
12:00.4 mín. Hjördis Árnadóttir,
UMSB, önnur á 12:32.2 mín. 1 4x800
m boðhlaupi varð sveit ÍR íslandsmeist-
ari á 8:51.4 mín.
Lára Sveinsdóttir, Á, varð íslands-
meistari í fimmtarþraut með 3496 stig.
íris Gröndfeldl, ÍR, varð önnur með
2641 stig og Rut Ólafsdóttir, A, þriðja
með 2538 stig, sem er nýtt telpnamet.
Markmenn
Hanzkar,
húfur, hnéhfífar
og olnbogahfífar
Póstsendum
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44. Sími 11783.
Stefán til Svíþjóðar
Góður tugþrautar-
árangur hjá Elíasi
L. ...... 111
Rivelino
meiddur
„Það er ekki víst, að fyrirliði Brasilíu,
Rivelino, geti leikið á miðvikudag. Hann
meiddist á hægri ökkla í siðari hálfleik
gegn Svíum og er nú mjög bólginn,”
sagði blaðafulltrúi Brasilíu, Dacio da Al-
meida, við blaðamenn i Mar del Plata i
gær.
Þrátt fyrir þá staðreynd, að Rivelino
hafi átt slakan leik á laugardag áður en
hann meiddist ætlar þjálfari Brasilíu,
Cautinho, að nota hann gegn Spáni ef
hann verður búinn að ná sér.
„Ég veit ekki hver tekur stöðu Rive-
iino ef þörf er á þvi en Cautinho vonast
eftir að geta teflt fram óbreyttu liði.
Liðið gat ekki leikið verr en gegn Svíuni
svo það hlýtur að lagast,” bætti biaða-
fulltrúinn við.
Johnston
íleikbann?
Lyfjapróf, sem skozki landsliðsmaður-
inn Willie Johnston, WBA, gekkst undir
eftir leiki Perú og Mexíkó, reyndist já-
kvætt. Lækni skozka liðsins var tilkynnt
þetta í gær af FIFA. Johnston fer aftur I
próf i dag og ef það reynist aftur jákvætt
verður hann i leikbanni i þeim leikjum,
sem Skotland á eftir að leika á HM.
Lyfjapróf var einnig gert á Kennv
Dalglish en var neikvætt. Það er tölva,
sem framkvæmir lyfjaprófin og um 400
lyft eru talin jákvæð, m.a. töflur gegn
kvefi og minni háttar sjúkdómum.
Johnston er með „heymæði” en læknir
Skota gleymdi að tilkynna FIFA að
hann tæki töflur vegna þess.
Sveinn vann
þotukeppnina
Þotukeppnin í golfi fór fram um helg-
ina á vegum Keilis í Hafnarfirði. Keppni
þessi gefur stig til landsliðs. Leiknar
voru 36 holur. 18 holur hvorn dag, með
og án forgjafar. Furðugóður árangur
náðist á laugardag þrátt fyrir mjög
slæmt „golfveður”, bezta skori náði
Sveinn Sigurbergsson, 73 högg, og á
hæla honum komu þeir Hálfdán Karls-
son 76 högg og Óskar Sæmundsson á 77
höggum.
Í gær háðu þeir þremeningarnir svo
harða keppni um fyrsta sætið fram á síð-
ustu holu. Sveini tókst að sigra þó
naumt væri það, aðeins eitt högg á
næsta mann.
Þrirefstuán forgjafar voru:
högg
Sveinn Sigurbergss. Keili 73-78= 151
Hálfdán Karlsson Keili 76-76 = 152
ÓskarSæmundsson G.R. 77-76= 153
Ekki tókst að skera úr um sigurvegara
með forgjöf þar sent þrir nienn eru efstir
og jafnir á 141 höggi. Þeir eru Sveinn
Sigurbergsson, Magnús Birgisson og
Gunnlaugur H. Jónsson og þurfa þeir að
leika 18 holur aukalega um þrjú fyrstu
sætin. Þeir sem fengu stig til landsliðs
eru:
1. Sveinn Sigurbergsson Keili
2. Hálfdán Karlsson Keili
3. Óskar Sæmundsson G.R.
4. Magnús Birgisson Keili
5. Björgvin Þorsteinsson G.A.
6. Geir Svansson G.R.
.7. Atli Arason N.K.
8. Sigurður Hafsteinsson G.R.
9. Þorbjöm KjærboG.S.
10. Hannes Eyvindsson G.R.
HBK
Los Angeles Aztecs, liðið, sem
George Best leikur með 1 USA, sigraði í
gær New York Cosmos 2-0 í Kaliforníu.
Það er fyrsti tapleikur New York-liðsins
á lciktímabilinu.