Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 05.06.1978, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1978 35 Barbara Murray og Iain Cuthbertson fara með hlutverk lögmannsins og eiginkonu hans I leikritinu Lokkafögur lögmanns-1 frú, sem sýnt verður i sjónvarpinu í kvöld. Sjónvarp íkvöld: Lokkafögur lögmannsfrú Frúnni leiðist og hvað er þá til ráða? Lokkafögur lögmannsfrú nefnist brezkt sjónvarpsleikrit, sem sýnt verður i sjónvarpinu i kvöld kl. 21.00. Þýðandi er Óskar Ingimarsson 3g sagði hann okkur að leikritið ?erðist í Edinborg í Skotlandi nú á Jögum. Fjallar myndin aðallega um konu sem er gift hæstaréttardómara. Á ýmsu gengur i hjónabandi þeirra og það er víst ekki tekið út með sældinni ið vera i hennar stöðu,- því henni Jauðleiðistlifiðog finnst hún ekki hafa tækifæri til að njóta þess sem skyldi. Dómarafrúin á vinkonu sem er óreglumanneskja og er dómaranum heldur illa við heimsóknir hennar. Finnst víst eiginkonu sinni ekki sam- boðið að eiga hana fyrir vinkonu. Dómarafrúin tekur nú að sækja hárgreiðslustofu í bænum og þótt henni reynist nokkuð erfitt að fá peninga hjá karli sínum, jafnvel þótt hann sé mjög vel efnaður, tekst henni að aöstoðla eigendur stofunnar við reksturinn. Þessi hárgreiðslustofa reynist hreinasta gullnáma fyrir frúna og lendir hún þar í ýmsum skemmtilegum ævintýrum. Og vinkonan, sem karlinum var svo illa við, reynist ekki öll þar sem hún er séð og á eftir að koma á óvart í lokin. Með aðalhlutverkin í leikritinu fara Barbara Murray og Iain Cuthbertson. Leikstjóri er June Howson og er leikritiðí litum. RK. I i Sjónvarpf kvöld kl. 21.50: Flokkakynning Alþingiskosningarnar25. júní Alþingiskosningar fara fram 25. júní nk. og i tilefni þeirra verða þeir flokkar sem bjóða fram lista til Alþingis kynntir i sjónvarpinu. Fer sú kynning fram i kvöld kl. 21.50, annað kvöld kl. 21.50 og nk. miðvikudagskvöld kl. 21.40. Verður fyrirkomulag kynningarinnar þannig að hver þingflokkur fær 30 mín- útur til uniráða. Þó munu þeir fram- boðslistar sem aðeins eru bomir fram í einu eða tveimur kjördæmum fá 10—15 mínútur hver. Dregið hefur verið um röð framboðs- listanna og er hún sem hér segir: Mánu- dagur 5. júní: 1. Óháðir kjósendur í Reykjaneskjördæmi, 2. Sjálfstæðisflokk- ur, 3. Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Þriðjudagur 6. júní: 1. Óháð framboðá Vestfjörðum, 2. Framsóknar- flokkur, 3. Fylkingin, 4. Stjórnmála- flokkurinn. Miðvikudagur 7. júní: 1. Mánudagur 5. júní 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Glerhúsin” cftir Finn Söeborg. Haildðr S. Stefánsson les þýðingu sina(ll). 15.00 Miðdegistónleikar. Islenzk tónBst. a. Sin fóniuhljómsveit islands leikur lög eftir Bjama Þorsteinsson i útsetningu Jóns Þórarinssonar; Páll Pampichler Pálsson stjórnar. b. Anna As- laug Ragnarsdóttir leikur Pianósónötu eftir Leif Þórarinsson. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 16.20 Popphorn. Þorgeir Ástvaldsson kynnir. 17.20 Sagan: „Trygg ertu, Toppa” eftir Mar> O’Hara. Friögeir H. Berg Islenzkaði. Jóniná H. Jónsdóttir les(9). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöklsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Gisli Jónsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Dr. Jakob Jónsson talar. 20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.20 Búnaðarþáttur í aldarfjóröung. GisU Kristjánsson flyturerindi. 21.40 Ór visnasafni Utvarpstíöinda. Jón úr Vör flytur þáttinn. 21.50 Sigfúsarkviöa. Sinfóniuhljómsveit íslands leikur lagasyrpu eftir Sigfús Halldórsson i út- setningu Magnúsar Ingimarssonar; Páll P. Pálsson stjórnar. 22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Siguröar Ingjalds- sonar frá BalaskaröL Indriði G. Þorstcinsson rithöfundur les siðari hluta (17). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Frá norskri tónlistarviku l Stokkhólmi i febrúar. Flytjendur: Knut Skram baritón- söngvari og Eva Knardahl pianóleikari. Flutt eru verk eftir Christian Sinding, Halfdan Kjerulf, Rikard Nordraak, Agathe Backer- Gröndahl, Anne-Marie örbeck, Sparre Olsen ogöisten Sommerfeldt. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. t sjónvarpinu vcrða kynntir þcir listar sem bjðða frani til Alþingis. Alþýðubandalagið, 2. Alþýðuflokkur- inn, 3. Kommúnistaflokkur íslands, 4. Framboð óháðra kjósenda i Suðurlands- kjördæmi. í kvöld verður þvi fyrst kynntur listi Óháðra kjósenda i Reykjaneskjördæmi og munu tala þeir Sigurður Helgason, Gísli Sigurkarlsson og Vilhjálmur G. Skúlason. Enginn spyrjandi verður þar sem listinn fær aðeins 10 mínútur til um- ráða. Fyrir Sjálfstæðisflokkinn mun Geir Hallgrimsson forsætisráðherra sitja fyrir svörum og munu þær Berglind Ás- geirsdóttir og Erna Ragnarsdóttir spyrja hann ýmissa spurninga. Fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna munu Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, Magnús Torfi Ólafs- son og Steinunn Finnbogadóttir sitja fyrir svörum. Spyrjandi verður Sigur- borg Ragnarsdóttir. Stjórn upptöku annast Örn Harðar- son. - RK Þriðjudagur 6. júní » 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag- bl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Ingibjörg Þorgeirsdóttir les annan lestur sögu sinnar „Um stekkjartið". Annar kafli: „í stekknum”. Tilkyéíningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Áöur fyrr á árunum kl. 10.25 Ágústa Bjöms dóttir sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Kammersveit Telemann-félagsins i Hamborg leikur „Concert royal” nr. 3 i A-dúr’ eftir Couperin/Campoli og Georg Malcolm leika Fiðlusónötu í g-moll, „Djöflatrillusónöt- una” eftir Tartini / Josef Chuchro og Zuzana Rúzickova leika Sónötu fyrir selló og sembal eftir Bach. Sjónvarp Mánudagur 5. júní 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson. 21.00 Lokkafögur lögmannsfrú (L). Breskt sjónvarpsleikrit eftir ölmu Cullen. Leikstjóri June Howson. Aðalhlutverk Barbara Murray og Iain Cuthbertson. Dómarafrú nokkurri í Edinborg leiðast þeir lífshættir sem taldir eru sæma konu I hennar stöðu, og þegar tilbreyt- ing gefst, gripur hún tækifærið fegins hendi. Þýðandi óskar Ingimarsson. 21.50 Flokkakynning j kvöld og tvö næstu kvöld veröa kynntir i Sjónvarpi þeir stjórn- málaflokkar og aðrir aðilar, sem bjóða fram til Alþingis 25. júni næstkomandi. Þing- flokkamir fá til umráða 30 min. hver en þeir framboðslistar, sem eru aðeins bomir fram i einu eða tveimur kjördæmum fá 10—15 minútur hver. Dregið hefur verið um röð. i kvöld verða kynntir Óháðir kjósendur i Reykjaneskjördæmi, Sjálfstæðisflokkurinn og Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Stjórn upptökuöm Haröarson. 22.55 Dagskrárlok. Sá mest seldi ár eftir ár Pólar h.f. EINHOLTI 6 BLAÐBURÐARBÖRN ÓSKAST STRAX: Skjólin Aðalstrœti Hagar Miðbœrinn Uppl. á afgreiðsíunni, sími27022. mmiABlB HJOLBARÐA ÞJÓNUSTAN HREYFILSHÚSINU SÍMI 81093 Nýir og sólaðir hjóibarðar. Aiiar stærðir fyrir fóiksbifreiðir. Jafnvægisstíilum hjólbarðana án þess að taka þá undan bifreiðinni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.