Dagblaðið - 05.06.1978, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. JÚNt 1978
r*7!
Frakkargera
breytingar
Frakkar munu gcra þrjár breytingar á
liði sínu frá leiknum við Ítaliu, þegar þeir
leika við Argendnu á þriðjudag.
Vörn Frakka var slök gegn ítölum og
þar verða breytingarnar. Patrick
Battiston kemur f vörnina i stað Quedc-
loupe eða Gerard Hanvion, sem meiddist
á ncfi gegn Itölum. Þá kemnr Domi-
nique Batheney á ný i liðið en hann gat
ekki leikið fyrsta leikinn vegna meiðsla.
í sóknina kemur Rocheteau í stað
Christian Dalger.
Haukarunnu
á Akureyri
Haukar i Hafnarfirði hlutu tvö
dýrmæt stig I 2. deild gegn Þór á Akur-
eyri á laugardag. Sigruðu með 2—0 og
það voru bakverðir liðsins, sem skoruðu
mörkin. Fyrst Daniel Gunnarsson á 14.
min. eftir hornspyrnu og síðan Vignir
Þórhailsson á 20 min. með hörkuskoti af
rúmlega 30 metra færi.
Ekki var þetta beint sanngjarn sigur.
Þór átti meira i leiknum og fékk góð færi
í báðum hálfieikjum en inn vildi knöttur-
inn ekki hinum akureyrsku áhorfendum
til hrellingar. Þrisvar björguðu Haukar
á marklinu i leiknum og eitt sinn átti Þór
stangarskot. St. A.
Keegan til
Barcelona
Enski landsliðsmaðurinn hjá Ham-
burger SV, Kevin Keegan, ságði f sjón-
varpi i Lundúnum i gær, að Barcelona
væri að reyna að fá hann til sin i stað
Johan Crijuff. Hann sagði að kaupverð-
ið væri „vitlaust”, tvær milljónir sterl-
ingspunda — eða um 950 milljónir is-
lenzkra króna. „Þó mér finnist ég eiga
ýmislegt ógert i Þýzkalandi mun ég ekki
segja nei við tilboði Barcelona ef Ham-
burger SV samþykkir. Ef af kaupum
verður er Kecgan „dýrasti” knatt-
spyrnumaður heims. Hamborg keypti
hann frá Liverpool fyrir 500 þús. pund.
Elding laust
golfmenn
Sex golfmenn sem voru að leika golf í
Lundúnum voru keyrðir i snarhasti á
sjúkrahús í gær, þegar þeir urðu fyrir
eldingu. Þeir fengu taugaáfall og minni
háttar brunasár. Fyrir nokkrum árum
lczt einn kunnasti knattspyrnumaður
Skotlands, John White, Tottenham, á
golfvelli, þegar eldingu laust niður í
hann.
Heimsmet
jafnað
Marita Koch, A-Þýzkalandi, jafnaði
heimsmet sitt i 200 m hlaupi í Karl-
Marx-Stadt í gær. Hljóp á 22.06 sck. Á
laugardag náði Marlies Ölsncr bezta
heimstimanum i 100 m í ár 11.11 á sama
stað. Henry Rono, Kcnya, hljóp 3000 m
hindrunarhlaup á 8:12.4 min. í Eugenc
Oregon i gær. Sjö sek. lakara en heims-
metið, sem hann setti á dögunum. Mike
Tully reyndi við nýtt heimsmet í stangar-
stökki 5.73 m en tókst ekki. Steve Scott,
USA, náði bezta heimstimanum í 1500
m. Hljóp á 3.37.6 mín. og Peter
Lamashon, Kenýa, hljóp 800 m á 1:45.7
mín.
Á móti í Varsjá náði Grasyna
Rabsztynof, Póllandi, bezta heimstíman-
um í 100 m grindahlaupi kvenna. Hljóp á
12.61 sek. 2/10 úr sek. frá heimsmetinu.
Thomas Sjöberg rennir sér milli tveggja Brasilfumanna og skorar sfðan mark Svia i leiknum við Brasiliumenn.
Áhorfendur fóru að streyma snemma
á hinn nýja, fagra leikvöll í Mendoza og
tveimur klukkustundum áður en
leikurinn hófst var pakkað fyrir aftan
baeði mörkin. Það fór vel um áhorfendur
• i heitri háustsólinni.
Liðin voru þannig skipuð. Holland.
Jongbloed, Suurbier, Rijsbergen, Krol,
Willy van der Kerkhof, Janssen, Neesk-
ens, Rene van der Kerkhof, Rep og
Rensenbrink. íran. Hedjazi,
Eskandarian, Abdollahi, Nazari,
Nayebagha, Kazerani, Parvin, fyrirliði,
Ghasempoor, Sadeghi, Jahani og
Faraki. Dómari Archundia frá Mexikó.
Það tók hollenzka liðið 40 min. að
brjóta niður hina sterku vörn Iran, sem
oft lék mjög ólöglega — og loksins, þeg-
ar skorað var, kom markið úr víta-
spyrnu, Hollendingar réðu lögum og
lofum á vellinum, en þó var markvörður
íran, Nasser Hadjazi, varla i vand-
ræðum. Hann greip vel inn i. Kaldur og
öruggur hirti hann knöttinn eftir send-
ingar fyrir markið frá kantinum — úr
horn- og aukaspyrnum, og varði auk
þess nokkur skot, sem á markið komu.
Johan Neeskens var felldur innan víta-
teigs en aðeins var dæmd óbein auka-
spyrna — og hann varð að yfirgefa völl-
inn vegna meiðsla um tíma.
Tæklingar írana urðu dýrar og á 40.
min. braut Nasrollah Abdolahi á Rene
van der Kerkhof, bezta manni Hollands,
auk Rensenbrink — og vinstri fótar víta-
spyrnu Rensenbrink réð Hedjazi ekkert
við. Tvívegis áður hafði markvörðurinn
varið mjög vel frá Rensenbrink. Iran átti
varla upphlaup i fyrri hálfleik. Hinn 38
ára Jan Jongbloed. elzti leikmaðurinn á
HM. hafði lítið sem ekkert að gera allan
leikinn.
í siðari hálfleiknum höfðu leikmenn
Hollands öll völd og léku þá eins og á
HM 1974, þegar þeir voru það liðið, sem
hreyf áhorfendur mest. Á 62. mín.
„Þetta var ekkí nógu mikill marka-
munur gegn iiói eins og íran en hinn
gljúpi völlur gerði okkur erfitt fyrir hvað
hraðann snerti i leikstil okkar. Eg er viss
um, að við getum bætt leik okkar sam-
kvæmt getu mótherjanna,” sagði Ernst
Hnappel, þjálfari hollenzka silfurliðsins
frá 1974 eftir að það hafði sigrað íran
3—0 í Mendoza á iaugardagskvöld.
Robby Rensenbrink, leikmaðurinn
snjalli frá belgíska liðinu Anderlccht,
skoraði öll mörk llollands. Tvö úr vita-
spyrnum. Þetta er fyrsta þrenna
Rcnsenbrik í ár og í fyrsta skipti, sem
hann hefur skorað tvö mörk úr víta-
spyrnum í þrennu. „Við getum betur,”
sagði þjálfari ' íran, Heshmat
Mohegerani og kvartaði undan að síðara
vítið skyldi dæmt.____________________
skoraði Rensenbrink annað mark liðsins
með skalla eftir fyrirgjöf Rene van der
Kerkhof á stöngina fjær. Á 78. min.
brauzt Johnny Rep i gegn en varfelldur
innan vítateigs. Rensenbrink skoraði af
öryggi — en fleiri urðu mörk
Hollendinga ekki í leiknum, þrátt fyrir
mikla pressu. Nanninga lék í stað Rene
van der Kerkhof síðustu 27 mín.
leiksins.
^humrriel |3
fótboltaskór í miklu úr-
vali, númer 33—45 jafnt á
unga sem aldna.
Fást í öllum helztt’ snort-
»oruverzlunui>; íu:-.ns.
RENSENBRINK SK0RAM
ÞRJÚ MÖRK GEGN ÍRAN