Dagblaðið - 21.08.1978, Side 4
Nýr umboðsmaður á:
Stöðvarfirði
Jóna Maja Jónsdóttir
Heiðmörk 11B
Sími 5822.
mmiABW
Seljum í dag.
Renault 16TL
Renault 16TL
Renault 16 TL
Renault 12 TL
Renault 12TL
Renault 12 Station
Renault 12TL
árg. ’74 verð 1.650þús.
árg. ’73 verð 1.400þús.
árg. ’72 verð l.lOOþús.
árg. ’74verð 1.450þús.
árg. ’74 vcrð 1.450þús.
árg. '74 verð 1.550þús.
árg. '73 verð l.lOOþús.
Suðurlandsbraut 20. Sími 86633.
Alh.: Casio-fx-2200 er meö 36 vísimlalega mönuleika or rafhliiöurnar
endast í 1000 klst. eða i 5 ár me<) 1/2 tíma notkun á dan-
CASIO-umboðið á íslandi
Bankastræti 8. Sími 27510.
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 21. AGUST 1978.
DB é neytendamarkaði
Frysting á grænmeti
Flestar grænmetistegundir er hægt
að geyma með þvi að frysta þær.
Sumar þarf að snöggsjóða fyrir
frystingu en aðrar er hægt að frysta
hráar. — Hentugast er að byrja á þvi
að aúka frostið á frystikistunni eins og
leiðarvisir hennar segir til. Flestar
tegundir matvæla geymast vel við -18
til -20°C en eru yfirleitt frystar við
meiri kulda. öruggast er að hafa
hitamæli í frystinum til þess að ganga
úr skugga um að frostið í kistunni
haldist jafnt.
Umbúðirnar
mikilvægar
Hafið nægilegt af góðum og
hentugum umbúðum við höndina.
Gott er að nota plastpoka sem innri
umbúðir og vaxbornar öskjur til þess
að verja pokana hnjaski. Hafið einnig
handbæra límmiða og túss til að
merkja pakkana með Gleymið ekki að
merkja þá með dagsetningu og þyngd.
Þá er einnig hentugt að eiga nóg af
ísmolum til . þess að hraðkæla
grænmetið eftir suðuna.
Frystið aðeins fyrsta flokks
grænmeti og viðhafiðýtrasta hreinlæti
við undirbúning frystingar.
Hreinsið grænmetið vandlega.
Fleygið visnumblöðumog skerið burtu
skemmdir og trénaða hluti. Skerið
grænmetið niður eftir þörfum og setjið
það i sigti og siðan í sjóðandi vatn.
Suðutiminn er tekinn frá því að suðan
kemur upp.
Þá er grænmetið kælt annaðhvort í
rennandi köldu vatni eða með
ísmolum álika lengi og suðutíminn er.
Látið vatnið síga vel af grænmetinu
áður en búið er um það i frysti-
umbúðunum. Frystið það eins fljótt
og frekast er kostur eftir suðuna.
Eftirtaldar grænmetistegundir eru
frystar hráar í heilu lagi, skornar eða
klippar niður: Steinselja, dill, gras-
laukur, paprika, gúrkur, kerfill og
rabarbari,
Meðferð einstakra grænmetistegunda.
Suðutlml Suðutimi
Grænmeti: Hsfni: Hreinsun: fyrir frystlngu: fyrir framrelðslu
BlaSlaukur góð skolaður, skor- inn i bita, 3 cm 3—4 minútur 6—7 minútur
Blómkál góð, sé þaö þétt skolað og skipt I hríslur, ef vill heilt 6—8 mín. hrislur 2—3 min. heilt 5—10 mln. i hrislum 4—5 minútur
Grænkál góð rlfið af blað- leggjunum, skolað 2 mln. og siðan hakkaö um 8—10 mín.
Gúrkur góð skolaðar, nlðursneiddar frystar hráar þiddar i sterk- um edlkslegi
Hvitkál góð. Frystið til neyzlu á vorin, þegar erfitt er að fá nýtt kál skorlð i þunnar ræmur 2—4 mín., fer eftir hve smátt kálið er skorið 6—10 mln.
Rauökál, soðiö góð matreitt á venju- legan hátt og slðan fryst
Spergilkál góö fjarlæglð gróf blöð, kljúfið svera leggi 2 minútur 6—8 minútur
Spinat góð skolað, fjarlægið grófa leggl 2 minútur; saxað, ef vill 3 mínútur
Steinselja Sólselja Kerfill góð þvegið, saxað, látið hæfilega skammta i smá- poka. látið beint út i súpu eða aðra tilbúna rétti
Tómatar léleg, séu þeir frystir heilir þvoið þá, merjið, og látið i krukk- ur eða þess hátt- ar; fylllð ekki ilátin alveg látið belnt út i ýmsa rétti
Ætisvepplr ekki sérlega góð hreinsaðlr, skolaðir, skorn- ir i sneiðar 10—15 minútur I 1 dl vatns; 10 g salt og 2 g sitrónu- sýra I hvert kg, frystir í leginum látnir beint i sósu eða rúpu eða soðnir með leginum.
Allt kál er vel fallið til frystingar. Það verður að snöggsjóða það og snöggkæla
fyrir frystingu. DB-myndir Bjarnleifur.
Þessar tegundir eru snöggsoðnar og gulrætur. — Sjá meðfylgjandi töflu
snöggkældar eins og áður er lýst fyrir yfir meðferð.
frystingu: Blómkál, hvitkál, spínat, A.Bj.
grænkál, brokkál, rauðkál, blaðlaukur,
Glóðað ostabrauð
með hvítlauksosti
í dag skulum við borða léttan mat, eru lagðar tómatsneiðar og siðan þykk
glóðað ostabrauð. Nota má annað- ostsneið ofan á. Glóðað I grillinu þar
hvort hveiti eða heilhveitibrauð. Má til osturinn er orðinn Ijósbrúnn (i
reikna með minnst tveimur sneiðum á fáeinar mínútur). Verð: Allur
mann 8 brauðsneiðar smurðar með skammturinn um 1012 kr. eða 253 kr.
þykku lagi af smurosti, hvítlauks-, á mann.
papríku- eða sveppaosti. Ofan á þær A.Bj.
Raddir neytenda
V