Dagblaðið - 21.08.1978, Page 16
16
í
Iþróttir
Sþróttir
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 21. AGUST 1978.
Iþróttir
íþróttir
3
Sigurlás skoraði
fjögur mörk ÍBV
— þegar liðið sigraði KA 6-2 í Eyjum
Hinn sókndjarfi miðherji Eyjamanna,
Siguríás Þorleifsson, var í essinu sínu
þegar ÍBV vann stórsigur á KA í Eyjum
í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu.
Sigurlás Þorleifsson skoraði fjögur
mörk og lagði tvö mörk upp fyrir sam-
herja sína í 6—2 stórsigri á KA sem nú á
mjög í vörk að verjast með að forðast fall
í 2. deild.
KA var slakt, hreint ótrúlega slakt i
Eyjum og ÍBV átti alls kostar við
norðanmenn. Það var aðeins í byrjun að
KA stóð í Eyjamönnum, fyrstu
minúturnar, en eftir að Eyjamenn
skoruðu fyrsta mark sitt, var allur
vindur úr norðanmönnum, yfirburðir
ÍBV algjörir og Sigurlás Þorleifsson.
langbezti maður vallarsins, í essinu sinu.
Sigurlás Þorleifsson kom ÍBV yfir á
38. minútu er hann skallaði knöttinn i
netið eftir þóf í vítateig KA. Aðeins
fjórum minútum siðar var Sigurlás Þor
leifsson aftur á ferðinni, mikil varnar-
mistök KA og Örn Óskarsson sendi
knöttinn til Sigurlásar sem skoraði, 2—
°.
Á 10. mínútu síðari hálfleiks skoraði
Sigurlás þriðja mark sitt, enn Ijót mistök
KA. Páll Pálmason markvörður tók
langt útspark. vamarmenn KA misstu
knöttinn yfir sig og Sigurlás komst inn
fyrir vörn KA og skoraði örugglega, 3—
0. Aðeins fimm mínútum síðar komst
Sigurlás inn fyrir vörn KA og lék á Þor-
berg Atlason, markvörð KA, en varnar-
menn náðu að bjarga í horn. KA tókst
að minnka muninn i 3—1 á 21. mínútu
er Gunnar Gunnarsson skoraði.
En Sigurlás hafði ekki sagt sitt síðasta
orð, aðeins tveimur minútum síðar
skoraði hann fjórða mark sitt. Eftir að
Þorbergur hafði hálfvarið skot Einars
Friðþjófssonar skoraði Sigurlás af stuttu
færi, 4—1. Á 38. mínútu tætti Sigurlás
vörn KA í sundur, lék á Þorberg
markvörð og sendi knöttinn til Arnars
Óskarssonar sem skoraði, 5—1.
Friðfinni Finnbogasyni urðu á mikil
mistök á 42. minútu. Ætlaði hann að
gefa á Pál Pálmason markvörð en Óskar
Ingimundarson komst í sendinguna og
skoraði örugglega, 5—2.
Eyjamenn með Sigurlás i broddi
fylkingarhöt'ðu ekki sagt sitt síðasta orð.
Hann lagði upp mark fyrir Gústaf
Baldvinsson og nýliðinn skoraði
örugglega, 6—2 — stórsigur lBV. I raun
hefði sigurinn getað orðið enn stærri —
Eyjamenn beinlinis óðu í færum. Sigur-
lás Þorleifsson var langbezti maður
vallarins og Sveinn Sveinsson var
drjúgur, sívinnandi. Hjá KA rikti
meðalmennskan, helzt að Elmar Geirs-
son sýndi takta.
Sævar Sigurðsson dæmdi leikinn í
Eyjum.
-RS.
Haukar aftur
f toppbaráttu
Haukar úr Hafnarfirði blanda sér nú í
baráttuna um sæti i 1. deild eftir sigur á
Þór, 1-0 i Hafnarfirði á laugardag.
Möguleikar Hauka eru að visu ekki
miklir, en engu að síður eygja þcir mögu-
leika ásamt Þór, ÍBÍ, Austra og Reyni.
Fyrri hálfieikur var slakur í Hafnar-
firði en í siðari hálfieik var mun meira
spil, einkum af hálfu Hauka. Á 29.
mínútu skoruðu Haukar sigurmark sitt,
eftir laglega sóknarlotu skoraði Lárus
Jónsson með góðu skoti, 1 -0.
Haukar áttu meiri möguleika að auka
forustu sina en Þór að jafna, sanngjarn
sigur Hauka, 1-0.
Sex heimsmet
hjá konum!
Mörg heimsmet í kvennagreinum í
frjálsum íþróttum voru sett um helgina.
Austur-þýzk sveit hljóp 4X100 m boð-
hlaup á 42.27 sek. I Potsdam. Eldra
metið var 42.50 sek. frá 1976. Þá stökk
sovézk stúlka yfir sjö metra I langstökki,
fyrst kvenna, nánar tiltekið 7.07 metra.
Tatyana Providokhina, Sovét, setti
heimsmet í 1000 m hlaupi í Moskvu,
hljóp á 2:30.6 mín. Krystyna
Kacperczyk, Póllandi, setti á föstudag
nýtt heimsmct í 400 m grindahlaupi I
Vestur-Berlín, hljóp á 55.44 sek., en á
móti í Moskvu á laugardag bætti
Tatyana Zelentsova, Sovét, metið i
55.31 sek. Ulrika Bruns, A-Þýzkalandi,
hljóp 1000 m í V-Berlín á 2:32.0 min. á
laugardag, sem þá var heimsmet.
KVENFATNAÐUR
Torgsins Iðnaðarmannahúsinu
Hallveigarstíg t.
Iðnaáarmannahúsinu.
Kjólar
Pls
Blússur
Peysur
Buxur
Gallabuxur
Sokkabuxur
3 stk. i pk.
frá kr. 2990
3500
- - 1350
- - 1450
2900
• 1990
- 750
SKOR
Kvenskór
Karlmannaskór
Bamaskór
Strigaskór
Stigvól
Kuldaskór
frá kr. 1900
- 1900
- - 1500
395
950
1900
HERRAFATNAÐUR
Föt
Jakkar staki
Skyrtur
Terylenebuxur
Galabuxur
Peysur
Hattar
Mittisjakkar
frákr. 17900
- 9900
- - 1500
4900
1990
3500
1200
2900
BARNAFATNAÐUR
Mittisblússur
Peysur
Galabuxur
Skyrtublússur
Skyrtur
Sumarboír
2900
1350
1750
1250
1250
645
A/lur
skó/a-
fatnaður
Æ
a
Torgsins
GLUGGATJALDAEFNI Flónel
STÓRESEFNI Riffiað flauel
ÖNNUR METRAVARA Denim-efni Léreft köflótt
VALSMENN SKORTIR AÐEINS
Ein STIG í MEISTARATIGN
— Sigruðu Breiðablik á laugardag 4-2
Valsmenn eru nú á þröskuldi 16.
íslandsmeistaratignar sinnar eftir 4—2
sigur á neðsta liðinu í 1. deild, Breiða-
bliki, I Laugardal. Valsmenn unnu sinn
16. sigur I röð I 1. deild og er Ijóst að
íslandsbikarinn mun verða varðveittur
að Hlfðarenda 1 ár. Skagamenn geta nú
náð Valsmönnum að stigum en engum
blandast hugur um að eftir sextán sigra í
röð muni Val ekki verða skotaskuld úr
að hreppa eitt stig úr tveimur siðustu
leikjum sinum.
Valsmenn baða sig í ljóma frækilegra
afreka, sigurganga þeirra hefur vakið
verðskuldaða athygli. Engum blandast
nú hugur um, að Valsmenn eru beztir.
Allt annað er aftur á móti uppi á
teningnum í Kópavogi, hjá Breiðabliki.
Ósigurinn á laugardag var sá 13. i 1.
deild í sumar og Breiðablik er nú fallið í
€€
Ingi Björn Albertsson reyndist Blikun-
um erfiður á laugardag, skoraði þrjú
mörk með stuttu millibili I lok f.h. Hann
er fremstur á DB-mynd Bjarnleifs. Skall-
ar að marki.
2. deild. Það datt fáum i hug í vor að
Blikarnir féllu, þvert á móti var liðinu
spáð velgengni, jafnvel einu af efstu
sætunum. Undir stjórn Þorsteins
Friðþjófssonar höfðu Blikarnir fest sig í
sessi i 1. deild, staðið sig vel og leikið
ágæta knattspyrnu. Blikarnir hugðust
feta sig áfram, reyna að brjótast upp á
toppinn. Þeir réðu Tékka, Jan Fabera —
nú skyldi stefnt á toppinn.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Þess í stað hefur lið Breiðabliks ekki
verið svipur hjá sjón. Hvert tapið á
fætur öðru hefur fylgt, og ekki bætti lán-
leysi og í bland klaufaskapur. Valsmenn
sendu blikana endanlega niður i 2. deild
á laugardag. Ef að líkum lætur verður
vera þeirra í 2. deild ekki löng —
efniviðurinn í Kópavogi er nægur, og
aðstaðan er ein hin bezta á landinu.
Breiðablik mun koma aftur.
En snúum okkur að leiknum á laugar-
dag. Blikarnir fengu óskabyrjun, þegar á
2. mínútu skoraði Sveinn Ottósson með
skoti af stuttu færi eftir þvögu í vítateig
Valsmanna. Sannarlega óvænt — í
fyrsta sinn í sumar var Valur undir, já,
hvorki í deild né bikar hafa Valsmenn
verið undir í sumar. Markið virtist setja
Valsmenn úr jafnvægi og skömmu síðar
var Valdimar Valdimarsson í dauðafæri
— einn fyrir framan mark Vals, á mark-
teig, en skaut fram hjá. Valsmenn voru
ólíkir sjálfum sér, hið óvænta mark gaf
Blikunum byr undir báða vængi.
En Valsmenn náðu að jafna á 35.
minútu og á næstu fimm mínútum
skoraði Valur þrívegis. Ingi Björn
Albertsson, sem lék aftur eftir meiðsli,
var að verki i öll skiptin, og náði að snúa
leiknum Val í hag. Ingi Björn skoraði úr
vítaspyrnu á 35. minútu og þegar á
næstu mínútu var hann aftur á ferðinni,
skaut föstu skoti, knötturinn fór í Einar
Þórhallsson, breytti stefnu og hafnaði í
netmöskvunum. Og Ingi lét ekki staðar
numið, á 43. minútu skoraði hann þriðja
mark sitt. — Einar Þórhallsson fór úr
vörninni, brunaði upp en missti
knöttinn. Atli Eðvaldsson náði knettin-
um og gaf góða sendingu á Inga Björn
sem einn á auðum sjó skoraöi fram hjá
Sveini Skúlasyni, 3— 1.
Blikarnir náðu að minnka muninn í
síðari hálfieik er Þór Hreiðarsson
skoraði með góðu skoti, framhjá Sigurði
Haraldssyni, og spenna aftur, Blikarnir
sóttu i sig veðrið. En Valsmenn áttuðu
sig, náðu aftur öllum tökum á leiknum,
drifnir áfram af stórgóðum leik Harðar
Hilmarssonar á miðjunni og sóknar-
loturnar buldu á vörn Blikanna. Vals-
menn beinlínis óðu í færum en það var
ekki fyrr en tveimur mínútum fyrir
leikslok að Atli Eðvaldsson gulltryggði
sigur Valsmanna með skoti af stuttu
færi, 4—2.
Valsmenn eru því á þröskuldi íslands-
meistaratignar, en Blikarnir fallnir í 2.
deild. Ágætur dómari var Eysteinn
Guðmundsson.
-H. Halls.