Dagblaðið - 21.08.1978, Síða 19
19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
ittir
Sþróttir
ðþróttir
Iþróttir
Iþróttir
HALLUR
SIMONARSON
létimin á Kanari
Núerad véfja ferðina
Þetta eru brottfarardagarnirívetur:
’78
25/10, 17/11,
1/12, 15/12, 22/12.
’79
5/1, 12/1, 26/1,
2/2, 16/2, 23/2,
9/3, 16/3, 30/3,
6/4, 20/4, 27/4.
Þú getur valið um viku - 2ja vikna,
3ja vikna eða 4ra vikna sólarfrí
í skammdeginu, suður á Kanarí.
FLUGFÉLAC LOFTLEIDIR URVAL UTSYN
ISLANDS
Lækjargötu 2
Simi 25100
Eimskipafélags
húsinu
Simi 26900
Austurstræti 17
Sími 26611
Botnbaráttan eykst stöðugt
— jafntefli FH og Þróttar í 1. deild
Spennan eykst stöðugt í sambandi við
það hvaða lið fellur með Breiðabliki
niður i 2. deild. í gærkvöldi gerðu FH og
Þróttur markalaust jafntefli i Kapla-
krika en KA tapaði i Vestmannaeyjum.
Þegar aðeins tvær umferðir eru eftir eru
KA, FH og Þróttur með 10 stig en
Þróttur stendur að þvf leyti betur að vígi
að liðið á eftir þrjá leiki, ÍBV og Breiða-
blik á útivöllum —KA i Reykjavfk. KA á
auk þess eftir að leika við Val fyrir
norðan — en FH á Víking eftir i Rcykja-
vík, Breiðablik f Kaplakrika. Spennan er
þvf mikil.
Jafntefli FH og Þróttar var
sanngjarnt í gær. Taugaspennan var
mikil og maður hafði reyndar á
tilfinningunni frá byrjun að mark yrði
ekki skorað. Ekki það að tækifærin
skorti heldur hitt að leikmenn beggja
liða voru of taugaóstyrkir þegar að úr-
slitastundinni kom, og mikið fum í
marktækifærum.
Heldur betra heildarskipulag var á
leik Þróttar sem lék án Páls Ólafssonar.
Agabrot. Hins vegar byggðist leikur FH
meira á sterkum einstaklingum og þar
lék Janus Guðlaugsson aðalhlutverkið
sem aftasti maður í vörn. Þróttur átti
þrivegis í fyrri hálfleik langskot sem
geystust fram hjá marki FH — en á
stundum var ólga í vítateig Þróttar
vegna harðfylgis Ólafs Danivalssonar. í
s.h. fékk FH bezta tækifærið en Leifur
Helgason hitti ekki knöttinn innan
markteigs, ætlaði að koma honum i
mark með hælnum. Fátt var um fina
drætti og leikmenn höfðu sætzt á jafn-
tefli löngu áður en dómarínn flautaði
leikslok. Flestir voru þá fegnir. -hsim.
öster í
efsta sæti
— Teitur Þórðarson
skoraði
Öster skauzt upp i efsta sætið í gær i
Allsvenskan þegar liðið vann góðan
sigur á Norrköping á hcimavelli, 4-1, en
á sama tíma tapaði Malmó FF i
Vesterás — fyrir neðsta liðinu.
Norrköping náði forustu um miðjan
fyrri hálfleikinn í Váxjö, lék betur
framan af, en Teitur Þórðarson braut ís-
inn fyrir Öster og tókst að jafna tveimur
min. fyrir hálfleik.
1 síðari hálfleiknum hafði Öster öll tök
á leiknum og skoraði þá þrívegis, Matts
Nordgren fljótlega og síðan aftur. Undir
lokin skoraði Tommy Evensson fjórða
mark Öster.
Vesterás vann Malmö 2-1, þannig að
efsta liðið tapaði fyrir þvi neðsta. Öster
og Malmö FF hafa nú 21 stig hvort
félag. Sami markamunur er hjá liðunum
en Öster hefur skorað fleiri mörk og er
því komið í efsta sætið i fyrsta sinn á
leiktímabilinu. Kalmar er i þriðja sæti
með 18 stig og síðan kemur Norrköping
með 17 stig.
Breti á bezta
heimstímanum
Í800 m hlaupi
Sebastian Coe, Bretlandi, náði bezta
heimstimanum i 800 m hlaupi I ár þegar
hann hljóp á 1:44.3 min. á móti i Brussel
á föstudag. Heimsmet Juantorcna,
Kúbu, er 1:43.44 min. Þetta skeði á
minningarmóti um belgíska hlauparann
Van Damme. Áhorfendur voru 45
þúsund á Heysel-leikvanginum og hafa
ekki verið fleiri siðan á EM 1950 þegar
íslenzkir fþróttamenn voru svo mjög i
sviðsljósinu. Gunnar Huseby og Torfi
Bryngeirsson Evrópumeistarar.
Áhorfendur urðu fyrir miklum von-
brigðum að Juantorena keppti ekki i 800
m hlaupinu. Hann sigraði hins vegar i
400 m á 45.30 sek. en Belginn snjalii,
Fons Bryjdenbach, varð að hætta i
hlaupinu vegna tognunar. Fyrir atvikið
virtist hann hafa alla möguleika á að
sigra Kúbumanninn. Belginn er talinn
hafa mikla sigurmöguleika á EM i Prag.
í 800 m hlaupinu varð Tom McLean,
USA, annar á 1:46.2 mín. Jose Marajo,
Frakklandi, hljóp á 1:46.4 min. Marc
Nevens, Belgíu, sigraði 11500 m hlaupi á
3:38.1 min. Francis Gonzalez hlaut sama
tlma. Silvio Leonard, Kúbu, sigraði I 200
m á 20.36 sek. Bill Collins, USA, varð
annar á 20.95 sek. Arie Robinson, USA,
sigraði í langstökki, 8.12 m, en Ronald
Desruellcs setti belgiskt met, stökk 7.95
m. Hasley Crawford, ólympíumeistarinn
frá Trinidad, sigraði I 100 m á 10J5 sek.
Steve Riddick, USA, varð aðeins fimmti
á 10.61 og Collins sjöundi á 10.73 sek.
Tveir riðlar voru. Charles Wells, USA,
sigraði í þeim siðari á 10.56 sek.
Mjög góður árangur náðist I milu-
hlaupi i Vestur-Berlfn á laugardag.
Thomas Wessinghage, V-Þýzkalandi,
sigraði á 3:55.4 mln., Steve Scott, USA,
varð annar á 3:55.7 mín. Wilson
Waigwa, Ke lýa, þriðji á 3:55.8 mín.,
Mike Manke, USA, fjórði á 3:58.8 mín.
og Lars Eriksson, Svlþjóð, fimmti á
3:59.3 sek. Malinkowski, Póllandi, hijóp
3000 'm hindrunarhlaup á hinum frá-
bæra tima 8:11.6 min. Knud Hjeltnes,
Noregi, sigraði I kringlukasti, kastaði
62.90 m.
Kef Ivíkingar íslandsmeistar
ar í 3. flokki í fyrsta sinn
Austri missti
stig á Húsavík
Völsungur og Austri, Eskifirði, skildu
jöfn, 1-1, í 2. deild íslandsmótsins á
Húsavik á laugardag. Austri var heppinn
að ná stigi af Völsungum sem þegar eru
nánast fallnir i 3. deild.
Austri náði forustu á 30. minútu fyrri
hálfleiks og var Bjarni Kristjánsson þá
að verki. En Völsungar lögðu ekki árar i
bát og Magnús náði að jafna fyrir Völs-
ung, 1-1.
Keflvikingar unnu i fyrsta sinn
íslandsmeistaratitilinn I 3. aldursflokki á
Selfossi í gærdag þegar þeir sigruðu
Breiðablik I aukaúrslitaleik með fjórum
mörkum gegn einu. Fyrri leik liðanna,
sem leikinn var á Húsavík, lauk með
jafntefli, 1—1, eftir framlengingu.
Flestir bjuggust við að ÍBK ætti á
brattann að sækja í seinni leiknum, þar
sem bezti framherji þeirra, Ragnar Mar-
geirsson, meiddist illa i leik fyrir nokkr-
um dögum og hann gat því ekki spilað.
Fjarvera hans virtist efla félaga hans til
dáða. Þeir börðust eins og Ijón allan
leikinn og tókst að ná forustunni í fyrri
hálfleik með marki Jóns Kr. Gislasonar
— þrumuskoti af stuttu færi.
Sigurjóni Kristjánssyni tókst að jafna
fyrir Blikana snemma í seinni hálfleik —
fylgdi vel eftir og náði knettinum eftir
mistök markvarðarins. Litlu munaði að
Blikunum tækist að bæta marki við á
næstu minútum en úr skyndiupphlaupi I hann skoraði úr hornspyrnu að vísu með
fékk Ólafur Magnússon knöttinn rétt aðstoð varnarmanns UBK. Fjórða og
utan vitateigs, lék á tvo vamarmenn og fallegasta markið skoraði svo Sigurður
„negldi” í netið, 2—1. Jón Kr. Magnús- ísleifsson með skalla — tók svif og skall-
son gerði eiginlega út um leikinn þegar aði i netið. -emm.