Dagblaðið - 07.09.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 07.09.1978, Blaðsíða 6
6 EIGNAVÖR -SÍMI28311 Ti/sölu Einbýlishús í Þorlákshöfn 120 ferm ' (fokhelt), á Eyrarbakka 80 ferm, á Selfossi 120 ferm (tilbúið). Raðhúsagrunnur i Hveragerði, allar teikningar fylgja. Kvöldsímar: 41736 og 74035. Tilsölu 4—5 herb. íbúð við Álfaskeið, 115 ferm, sér þvottahús + sameiginlegt stór geymsla og frystiklefi. Bílskúrssökklar. Kvöldsímar: 41736 og 74035. Tilsö/u 3 herb. íbúð við Skaftahlíð, 90 ferm, allt sér, ekkert i áhvílandi. 3 herb. íbúð við Kópavogs- braut, 100 ferm, góð íbúð. Okkurvantar; Mikið af eignum úti á landi t.d. á Selfossi — Stokkseyri —Eyrarbakka — Keflavík — Hveragerði og víðar. Kvöldsímar: 41736 og 74035. Kvöldsímar: 41736 og 74035. Tiisöiu íbúðir; 4 herb. við Æsufell, 105 ferm, 4 herb. við Grundarstíg, ca lOOferm, 5 herb. við Leifsgötu, ca 100 ferm, 160 ferm hæð i Garðabæ (fokheld) Kvöldsímar: 41736 og 74035 Okkur vantar t.d. 4 herb. íbúð í vesturbæ, 4 herb. íbúð i austurbæ, 3ja herb. íbúð i Hlíðunum, 3ja herb. íbúð í vesturbæ, 2ja herb. íbúð á Reykja- víkursvæðinu. einbýlishús í byggingu. Kvöldsímar: 74035 og 41736 Sendimaður óskast til starfa allan daginn fyrir fjármála-, félagsmála- og dómsmálaráðuneyti. Æskilegt er að hann hafi réttindi til aksturs létts bifhjóls. Lágmarksaldur 15 ára. Umsóknir sendist fjármálaráðuneyti fyrir 15. september nk. Fjármálaráðuneytið, 6. sept. 1978. Símar84848 og 35035 Hjá okkur snýst hamingjuhjóliö! HÖFUM BÆTT VIÐ BÁTADEILD f BÚIÐ! DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1978. - Mikil launung á leiðtogafundinum —viðræðurnar í Camp David halda áf ram í dag Carter Bandarikjaforseti heldur i dag áfram viðræðum sinum við Begin forsætisráðherra Israels og Sadat Egyptalandsforseta. Leiðtogarnir þrir héldu sinn fyrsta fund í gær með ráðgjöfum sí á Camp David sveitasetri Br jaríkjaforseta. Talið er að viðræðuinar geti staðið i vikutíma eða lengur. Mikil leynd hvilir yfir fundunum og liggur ekki fyrir um hvað verður rætt er leiðtogarnir hittast aftur í dag. Fundurinn í gær var fyrsti fundur Begins og Sadats i lOmánuðiogfyrstu beinu afskipti Carters af deiluni fyrir botni Miðjarðarhafs. Samkvæmt ákvörðun Bandaríkja- forseta var engin yfirlýsing gefin að loknum fundinum i gær og engar fréttir hafa borizt af þvi hvað leiðtogunum fór á milli. Fréttir hafa þó borizt af því að viðræðurnar hafi verið nokkuð þvingaðar og ekki hafi ríkt hið óformlega andrúmsloft, sem Carter hafði vonast eftir. Fáum klukkustundum fyrir fundinn hittust Begin og Sadat af tilviljun, þar sem þeir voru á gangi í skóginum kringum sveitasetur Banda- rikjaforseta. Þeir heilsuðust stuttlega og óskuðu hvor öðrum góðrar heilsu. Fyrir fundinn í gær sögðu Egyptar, að Sadat hefði meðferðis nýjan samning um tvö megin deiluefnin, framtíð ísraelsmanna á Vesturbakka Jóran og vandamál Palestinumanna. Carter talaði einslega bæði við Begin og Sadat fyrir fundina. Allir leiðtogarnir þrír eru mjög trúaðir menn og hafa þeir beðið fólk í heiminum að biðja fyrir góðum árangri friðarviðræðnanna. Um það leyti sem viðræðurnar hófust bað Jóhannes Páll páfi fyrir góðum árangri í viðræðunum. Frelsissamtök Palestínumanna, Plo, segjast vera á móti öllum samningum, sem gerðir verða í Camp David. Tals- menn samtakanna segjast munu rifta öllum slikum samningum. í S-Lib- anon var brennd brúða af Sadat, vafrn inn i bandariskan fána í mótmæla- skyni. Sovétmenn hafa itrekað mótmæli sín gegn fundinum. Sovétmenn hafa ásakað Bandarikjamenn fyrir að ógna heimsfriðinum og að nota fundinn til að styrkja hernaðarstöðu sína i Miðausturlöndum, nærri sovézku landamærunum. Er Begin og Sadat hittust fyrir tilviljun á göngu i skóginum hjá Camp David heilsuðust þeir aðeins stuttlega og öskuðu hvor öðrum góðrar heilsu. HRYGGBROT TANKBÍLSINS Hryggbrot eru alltaf slæm, hvort sem menn eru hryggbrotnir er þeir ganga á biðilsbuxum eða hryggbrotin verða á annan hátt. Þessi stóri oliubill varð fyrir þvi að hryggbrotna á dögunum er hann var á leið nálægt New Yorkborg. Billinn flutti reyndar ekki oliu eða bensin að þessu sinni heldur iðnaðarsýrur, hættulegar mönnum. Enda fór það svo, að flytja þurfti 16 manns á sjúkrahús vegna slyssins, þar af 10 slökkviliðsmenn og þrjá lögreglumann. Skák: EBE-LÖNDIN í SKÁKKEPPNI —og sterkt skákmót i Hollandi Þjóðir Efnahagsbandalagsins leiða nú saman hesta sina i skákkeppni. Keppnin fer fram í Middlesbrough í Englandi. Að loknum þremur umferðum hefur Dan- mörk nauma forystu, en V-Þýzkaland, sem er í öðru sæti, gæti komizt í fyrsta sætið þar sem sveit V-Þýzkalands á eina biðskák til góða. Úrslit i þriðju umferð urðu þau, að sveit Bretlands sigraði Luxemburg4—0. Belgia—Holland 2—1 og ein skák i bið. V-Þýzkaland—Írland 2 1/2—1/2 og ein skák i bið og Italía og Danmörk gerðu jafntefli 2—2. Staðan er þvi þessi eftir þrjár umferðir. 1. Danmörk 8 1/2. 2. V- Þýzkaland 8 og biðskák. 3. Ítalía og Bretland með 7 vinninga. 5. Belgía 5 1/2 og biðskák. 6. Holland 4 vinninga og biðskák. 7. Írland 2 1/2 vinningur og biöskák og 8. Luxentbourg með 2 1/2 vinning. Þá er einnig sterkt skákmót í Tilburg i Hollandi og eftir 6 umferðir þar eru efstir og jafnir Timman, Miles og Portisch með 3 1/2 vinning. Larsen er i fjórða sæti með 3 vinninga og 5.-6. eru Zindzichasvili og Hort með 2 1/2 og 8.- 9. eru Spassky og Ribli með 2 vinninga. Sosonko, Hubner og Lubojevich reka lestina i mótinu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.