Dagblaðið - 07.09.1978, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1978.
Veljum íslenzkt
— kjörorð „Markaðsvikunnar”
Dagana 4.-8. september stendur yfir
„Markaðsvika” í Holtagörðum á vegum
Iðnaðardeildar Sambandsins. Sýndar
verða vörur frá Iðnaðardeild Sambands-
ins víðs vegar af landinu. „Markaðs-
vikan er fyrst og fremst vörukynning
ætluð þeim er selja vörur Sambandsins,
en hún er ekki opin almenningi. Meðal
þeirra sem sýna eru Hekla, Gefjun og
skóverksmiðjan Iðunn á Akureyri,
Dyngja á Egilsstöðum, Sif á Sauðárkróki,
Höttur í Borgarnesi og Fataverksmiðjan
Gefjun i Reykjavík. Við opnun
sýningarinnar í gær hélt Erlendur
Einarsson forstjóri ávarp og sagði meðaf
annars að „þótt Iðnaðardeild Sam-
bandsins sé stærsti útflytjandi almennra
iðnaðarvara frá íslandi, þá hefur innan-
landsmarkaðurinn samt sem áður verið
stærsta og þýðingarmesta sölusvæðið,
en á síðastliðnu ári seldi Iðnaðardeild'
vörur á heimamarkaði fyrir rúma 2,8
milljarða króna.” Ennfremur sagði
Erlendur að iðnaður hér á landi ætti
við sömu vandamál að striða og annar
atvinnurekstur i landinu, sem þarf að
standa af sér 40—50% verðbólgu mörg
ár í röðog þann rekstrarfjárskort, ásamt,
þeirri miklu vaxtarbyrði og þeim svipt-
ingum i launamálum, sem þvi fylgir.
Röng gengisskráning hefur haft mjög
truflandi áhrif á markaði innlendra
iðnaðarvara bæði hér og erlendis. Að
Þangað
leita viðskiptin
semúmaEð
ermesL
1
Smáauglýsingar
BIAÐSIN5
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Meðal þess fatnaðar sem sýndur er á
sýningunni eru mokkajakkar jafnt fyrir
dömur og herra.
lokum sagði Erlendur „Þessi kynning
hér á vörum Iðnaðardeildar á að sanna
viðskiptavinum okkar gildi íslenzks
iðnaðar. Þótt iðnkynningarári sé lokið,
tekur iðnkynningarstarfið aldrei enda.
og vonandi getur hér orðið um árvissan
atburð að :æða." Eftir ávarpið var síðan
tízkusýning þar sem sýnd voru íslenzk
föt en kjörorð „Markaðsvikunnar” er
„Veljum íslenzkt”.
ELA
Á sýningunni er fjölbreytt
úrval ullarfatnaðar og sport-
og tómstundafatnaður er þar
einnig i rikum mæU.