Dagblaðið - 07.09.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1978.
Erlendar
fréttir
REUTER
Fiat ráðgerir
innrás á
Bandaríkja-
markað
ítölsku Fiatbílaverksmiðjumar munu
kynna nýjan Fiatbíl á Bandarikja-
markaði næsta ár. Þessi kynning er hluti
mikillar áætlunar Fiatverksmiðjanna að
auka mjög sölu sína á heimsmarkaði.
Nýi billinn er framhjóladrifinn bill.
sem kynntur var á Ítalíu i júni sl. undir
nafninu Ritmo. Hann er mjög likur
hinum vinsæla Volkswagen Golf.
Claudio Ferrari forstjóri Fiat í Banda-
ríkjunum sagði að hinn nýi Fiat yrði
settur Golf, Ford Fiesta. Dodge Omini
og Plymouth Horizon til höfuðs. Verðið
verður svipað og á Golf i Bandarikjun-
um eða um 5000 dollarar, eða um 1.5
milljón islenzkra króna.
HIN DULAR-
FULLA HER-
MANNAVEIKI
KOMIN
— kom áður upp í
Fíladelfíu 1976
Hinnar dularfullu veiki „hermanna-
veiki" hefur aftur orðið vart i New
York. Árið 1976 veiktust margir þing-
fulltrúar á þingi fyrrverandi bandariskra
hermanna i Fíladelfiu. Alls létust þá 29
manns. Veiki þessi þykir likjast lungna-
bólgu.
Hinn 25. ágúst sl. lézt 31 árs maður úr
þessari dularfullu veiki. en hann hafði
þá dvalið i hálfan mánuð á sjúkrahúsi.
Tveir bræður hans voru einnig lagðir
inn á sjúkrahúsið. en þeir eru nú á bata-
vegi, og fá að fara af sjúkrahúsinu
bráðlega.
Þá lézt og maður á fimmtugsaldri eftir
10 daga sjúkrahússvist og er talið að
hann hafi orðið „hermannaveikinni" að
bráð. Þessir menn. sem nú hafa fengið
að kenna á þessunt dularfulla sjúkdómi.
hafa allir unnið á svipuðum stað í
Manhattan i New York.
Heilbrigðisyfirvöld i New York
rannsaka nú þessi tilfelli hins litt kunna
sjúkdóms.
EINN AF MORDINGJUM
SCHLEYERS SKOTINN
— Lögregla skaut hryð juverkamanninn Willy Peter Stoll á veitingahúsi
V-þýzka lögreglan skaut Willy
Peter Stoll 28 ára gamlan borgar-
skæruliða til bana i gær. Stoll var
margeftirlýstur af lögreglunni og
grunaður um þátttöku í þremur
morðum á síðasta ári. Hann var
skotinn á kinversku veitingahúsi i
Dusseldorf. nálægt járnbrautarstöð-
inni í gær. Lögreglan hafði fengið
upplýsingar um það að Stoll og e.t.v.
fleiri hryðjuverkamenn væru á
veitingahúsinu. Er lögreglan kom á
staðinn og bað hann um skilriki, dró
hann upp skammbyssu, en lögreglan
var fyrri til og skaut hann þegar til
bana.
líu, kröfðust frelsis til handa leiðtogum
Baader Meinhof hópsins. Eftir að v-
þýzkar leiftursveitir gerðu áhlaup á
vélina í Mogadishu og björguðu gísl-
unum fundust leiðtogar Baader Mein-
hof hópsins, Andreas Baader og
Gudrun Enslin, látin í klefum sinum í
Stammheim fangelsinu i Stuttgart,
þar sem þau afplánuðu lífstiðarfang-
elsi. Lik Schleyers fannst næsta dag í
farangursgeymslu bíls í Mulhouse i
Frakklandi, skammt frá landamærum
V-Þýzkalands. Stoll var einn þriggja
skæruliða, sem eftirlýstir voru fyrir
morð. Hin eru Christian Klar og Adel-
heid Schulz. Lögreglan tók mynd af
þeim þremur er þau fóru um borð í
þyrlu skammt frá Heildelberg fyrir
mánuði. En þau höfðu breytt útliti
sínu svo, að lögreglan þekkti þau ekki
er filmurnar voru framkallaðar. Er hið
sanna kom síðar í Ijós hafði lögreglan
misst af þeim.
Lögreglan neitaði i gær orðrómi
sem gekk í Dusseldorf, að annar
skæruliði hefði verið handtekinn eftir
aðStoll varskotinn.
Lögreglan setti þegar upp miklar
vegatálmanir i nágrenni veitinga-
hússins og við borgarmörkin. til þess
að kanna hvort einhverjir hefðu verið
i fylgd meðStoll.
Talið er að Stoll hafi tekið þátt i
þremur morðum með öðrum skæru-
liðum á síðasta ári, morði dómarans
Siegfried Buback, bankastjórans
Jiirgen Ponto og mannráni og morði
Hanns-Martin Schleyer, v-þýzks iðju-
hölds.
Yfirvöld höfðu heitið hverjum þeim
er veitt gæti upplýsingar sem leiddu
til handtöku Stolls 50 þúsunda
mörkum eða nær 8 milljónum króna.
Stoll var bókhaldari og skattaráðgjafi
áður en hann gekk i flokk borgar-
skæruliða.
Hanns-Martin Schleyer var rænt á
götu í Köln í september fyrir ári og
fjórir lífverðir hans drepnir.
Ræningjar hans og síðar flugræningj-
ar. sem rændu v-þýzkri Lufthansa vél. Willy Peter Stoll er m.a. talinn hata átt patt I morot Hanns iviartin Schleyers, en I farangursgeymslu þessa bíls fannst Ifk
sem snúið var til Mogadishu i Sóma Schleyers.
^ -
Keppnismenn á þessum 25 kajökum mynduðu þessa fallegu stjörnu er stund gafst á milli stríða á keppnismóti i Ungverjalandi nýlega.
EKKITVEIR SKOTMENN
— segir John Connally er f yrstur vitnaði í Kennedy-réttarhöldunum
John Connally fv. rikisstjóri i Texas
var fyrsta vitnið. sem leitt var fyrir
bandarísku þingnefndina i gær. en
þingnefndin rannsakar nú morðið á
Kennedy forseta fyrir 15 árum.
Connally neitaði þeirri tilgátu að um
tvo skotmenn hefði verið að ræða.
Connally rikisstjóri særðist alvar-
lega í skotárásinni í Dallas hinn 22.
nóvember 1963. en hann sat við hlið
forsetans i bilnum. Hann bar vitni um
það i gær, að byssukúlumar hefðu
komið úr skólabókasafninu, en það
var einmitt þar sem Warren nefndin
sem rannsakaði málið á sinum tínia
taldi að Lee Harvey Oswald hefði
verið er hann skaut á forsetann.
Oswald var siðan myrtur daginn eftir
af næturklúbbaeigandanum Jack
Ruby.
John Connaliy og kona hans Nellie
skýrðu frá skotárásinni á áhrifamikinn
og tilfinninganæman hátt i gær. Þau
eru fyrstu vitnin. sem rannsóknardeild
fulltrúadeildar Bandarikjaþings kallar
fyrir vegna þessa máls. Nefndin
reynir að komast að þvi hvort morðið
var samsæri eða aðeins verk eins
manns. 1 dag verða kallaðir fyrir
nefndina læknamir sem krufu lik
forsetans og verður krufningar-
skýrslan rædd.
Vitnisburður Connallys studdi hinn
umdeilda úrskurð Warrennefndar-
innar. sem sagði að skotin hefðu
komið aftan að bílnum en ekki að
framan. Surnir halda þvi fram að skot
hafi einnig komið frá grasflöt framan
við forsetabílinn sem bendi til þess að
skotmennirnir hafi verið tveir.
Það fékk greinilega nokkuð á áhorf-
endur er sýndar voru litteiknimyndir
af skotárásinni. Er Connally var að
lýsa skotárásinni sagði hann m.a.
„Mér fannst ég heyra riffilskot og
óttaðist þegar morðárás.” Hann sagði
að önnur kúlan hefði hitt hann þegar
hann hefði snúið sér að forsctanum.
„Afl kúlunnar þrýsti mér niður og er
ég leit niður sá ég að ég var löðrandi i
blóði. Ég vissi þegar að ég var illa p
særður.”
Eftir að hann varð fyrir skotinu
sagðist hann hafa séð blóð og heila-
slettur úr forsetanum um allan bil. „í
bílnum voru hlutar úr heila forsetans á
stærð við litla fingur manns,” sagði
Connally.